Morgunblaðið - 24.10.2000, Page 58

Morgunblaðið - 24.10.2000, Page 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ Kraftur á landsbyggðinni EIN helsta sérstaða Reykjavíkur - menn- ingarborgar Evrópu árið 2000 í samanburði við hinar menningar- borgirnar átta er hið víðtæka samstarf sem tókst á þessu ári milli menningarborgarinnar og sveitarfélaga í öllum landshlutum. Þetta samstarf hefur þegar skilað meiri árangri en nökkur þorði að vona. Upphaf þessa sam- starfs má rekja rúm tvö ár aftur í tímann en 1. september 1998 sendu forsvarsmenn menningarborgarinn- ar erindi til allra sveitarfélaga á landinu þar sem þeim var boðið til samstarfs á menningarárinu 2000. Viðbrögðin voru afar góð og tóku 30 sveitarfélög í öllum landshlutum þessari áskorun um samstarf. Verkefni sveitarfélaganna voru af- ar margbreytileg og endurspegluðu m.a. sterk tengsl heimamanna við náttúru sína og sögu. Nokkur sveit- arfélög settu á fót menningarhátíðir með fjölbreyttum dagskrárliðum, AJnnur einstaka listviðburði og loks voru nokkur sveitarfélög sem notuðu menningarárið til að opna eða byggja upp aðstöðu til ýmiss konar menningarstarfsemi. Vandaður undirbúningur Menningarborgin stóð að kynn- ingu á þessum samstarfsverkefnum - í dagskrárritum sín- um bæði á íslensku og ensku sem var dreift í tugþúsundum eintaka heima og erlendis, á mánaðarlegum vegg- spjöldum, á fjölsóttum vef menningarborgar- innar, sem er bæði á ís- lensku og ensku, og með sérstökmn aðgerð- um. Þá styrkti menn- ingarborgin nokkur viðamestu verkefnin með beinum fjárfram- lögum. Alls má meta þetta framlag menn- ingarborgarinnar tii samstarfsverkefna við sveitarfélögin á þriðja tug milljóna króna. Ástæða er þó til að leggja áherslu á að sveit- arfélögin sjálf eiga mestan heiður af þessum verkefnum, þau hafa lagt fram hugmyndirnar og séð um fram- kvæmdina í aðalatriðum. Þetta samstarf hefur þegar vakið athygli og hefur t.d. verið til skoðun- ar í nefnd á vegum menntamálaráð- herra sem nú er að skila skýrslu um eflingu menningarmála á lands- byggðinni. Nauðsynlegt er að halda áfram þessu gjöfula samstarfi milli höfuðborgar og landsbyggðar, t.d. er nú verið að styrkja starfsumhverfi Listahátíðar og vel mætti nýta þann vettvang til að halda áfram formlegu menningarsamstarfi ríkis og borgar annars vegar og sveitarfélaga út um landið hins vegar. Rifja má upp orð borgarstjórans í Reykjavík á Horna- Menning Heimamenn eru best til þess fallnir, segir Skúli Helgason, að nýta þær auðlindir sem búa í sögu þeirra, menningu og umhverfi. firði fyrir tæpu ári þegar samstarfs- verkefnin voru kynnt. Þar lagði borgarstjóri áherslu á að Reykjavík ræktaði samstöðu með öðrum sveit- arfélögum í landinu í stað þess að þessum aðilum sé stillt upp sem and- stæðum pólum. Glæsileg uppskera Flest samstarfsverkefnin við sveitarfélögin eru nú um garð gengin eða 29 af 33 verkefnum. Árangur af þessu samstarfi er ótvú-æður og í mörgum tilvikum hefur tekist frá- bærlega til. Þar má nefna jöklasýn- ingu á Hornafirði sem fléttaði listi- lega saman sögu, náttúru og menningu þar sem Vatnajökull, stærsti jökull Evrópu, var í for- grunni. Álls sóttu 3.000 gestir þessa sýningu og veltan var í kringum 9 milljónir króna. Áhugi er á að sýn- ingin myndi grundvöll jöklasafns á Hornafirði í framtíðinni. í Sögusetrinu á Hvolsvelli var boð- ið upp á söguveislu með söngdagskrá og leikþætti byggðum á Njálu auk veislumáltíðar að hætti forfeðranna. Uppselt hefur verið á nær allar sýn- ingar til þessa og hafa alls 2.000 manns tekið þátt í söguveislunni, veltan er 11 milljónii- og skapast hafa störf fyrir 12 manns. Nú stendur til að þýða dagskrána á þýsku og ensku fyrir erlenda ferðamenn. Loks má nefna galdrasýninguna á Ströndum en fyrsti áfangi hennar opnaði á Hólmavík um Jónsmessu. Velgengni þessarar sýningar hefur verið iyg- inni líkust - hvorki fleiri né færri en 6.000 manns hafa sótt sýninguna sem er ríflega þrettánfaldur íbúa- fjöldi Hólmavíkur en þar búa 450 manns. Galdrasýningar verða opnað- ar í Trékyllisvík, Bjarnafirði og Hrútafirði á næstu þremur árum. Fleiri dæmi um metnaðarfull verk- efni má nefna: Til dæmis sýningu Vesturfarasetursins á Hofsósi um sögu Utah-faranna, Bjartar nætur á Héraði, menningarveislu á Isafirði, þjóðlagahátíðina á Siglufirði, dagskrá Skagfirðinga: Búðir í Hópi og viða- mikiar dagskrár Hafnfirðinga, Grind- víkinga og Akumesinga um tengsl menningar og náttúruauðæfa. Mörg þessara verkefna munu eiga sér fram- haldslíf, góðar viðtökur á þessu sumri hafa kveikt elda í hugum aðstandenda sem vilja gjaman nýta meðbyrinn tii frekari dáða á næsta ári. Gífurleg aðsókn Alls hafa tæplega 70.000 gestir sótt þessa 29 viðburði á menningar- Skúli Helgason árinu. Fjómm verkefnum er ólokið, þ.á m. fjölmennustu sveitarfélag- anna utan Reykjavíkur: Kópavogs og Akureyrar. Því er ljóst að aðsókn- artölur eiga eftir að hækka umtals- vert. Ljóst er að þegar heimamenn bjóða upp á fyrsta flokks menningar- viðburði, sem laða til sín þúsundir gesta, rennir það stoðum undir ferðaþjónustu og annan efnahag í héraðinu. Slíkir menningarviðburðir em í senn atvinnuskapandi og laða að fjölda ferðamanna sem kaupir vörar og þjónustu í héraðinu. Marg- földunaráhrif slíkra menningarvið- burða era því ótvíræð fyrir sveitar- félögin ef vel er staðið að undir- búningi og framkvæmd. Lykillinn er heima Reynslan af samstarfi menningar- borgarinnar við sveitarfélögin hefur sannfært mig um að sóknarfærin í menningarmálum landsbyggðar felist í því að virkja frumkvæði heimamanna á grandvelli samstarfs höfuðborgar og landsbyggðai'. Heimamenn era best til þess fallnir að nýta þær auðlindir sem búa í sögu, menningu og náttúra síns heimabæjar. Opinberir aðilar, s.s. menntamálaráðuneyti og Reykjavík- urborg geta hins vegar lagt fram mikilvægan skerf með fjárframlög- um, aðstoð og ráðgjöf, m.a. við mark- aðssetningu. Því eiga stjórnvöld ekki að ein- blína á flutning stofnana út á land heldur fjárfesta í heimamönnum og aðstoða þá við að hrinda metnaðar- fullum hugmyndum í framkvæmd. Höfundur er framkvæmdastjóri innlendra viðburða Reykjavík - menningarborg Evrópu árið 2000. Askrift að sálum ÞEGAR barn fæðist í dag gerist einn afar sérkennilegur hlutur; það er skráð í félag. Af augljósum ástæð- um var það ekki spurt að því hvort það vildi vera meðlimur í félagi þessu, og ekki voru foreldrar þess spurðir að því. Nei, það er ís- lenska ríkið sem tók þá ákvörðun með lögum að skrá það í eitthvert félag við fæðingu. vjiíerkilega þægilegt fyrir félag þetta, ekki síst vegna þess að ríkið mun hefja greiðslur til félagsins vegna vera barnsins í því er það nær 16 ára aldri. Það er ein- mitt aldurinn sem barnið verður að komast á til þess að geta sjálft tek- ið ákvörðun um úrsögn úr félaginu. Hvaða félag er þetta nú? Jú þetta er félag áhugafólks um ósýnilegan anda sem á heima uppi í himninum, oftast kallað þjóðkirkjan. Hið sama gildir reyndar um önnur svipuð fé- lög, hvaða anda sem þau aðhyllast. Sökum stærðar þessa félags, um 88% þjóðarinnar (1. des. 1999), hefur það augljóslega mestan hag þessu fyrirkomulagi, fyrirkomu- lagi sem ekki á heima í siðmennt- uðu þjóðfélagi nútímans. Lögin - lögleysan Lítum nú á „Lög um trúfélög" frá 1975. Þar stendur skýrum stöfum í 2. grein: „Enginn getur að lög- um bundist skyldu eða skuldbundið ann- an til að vera eða vera ekki aðili að trúfélagi, trúmálasamtökum eða trúarreglu.11 Ósamræmið kemur svo í 5. grein sömu laga, en þar segir í upphafi hennar: „Barn, sem fætt er í hjónabandi, skal frá fæðingu talið heyra til sama trúfé- lagi og foreldrar þess.“ Hvað er etta annað en skráning í trúfélag? þessari sömu grein er svo kveðið á um að barn skuli tilheyra trúfé- lagi móður þess ef foreldrar era ekki í sama trúfélagi. Þetta hlýtur útaf fyrir sig að stangast á við jafn- réttislög. Lögin segja sem sagt „það á ekki að skrá barn í trúfélag" og „það á að skrá barn í trúfélag". Þetta gengur ekki upp, það sér hver maður að hér er einhverju of- aukið. Það er vonandi enginn í vafa um að 2. greinin á fullan rétt á sér, og þar af leiðandi hlýtur það að vera eðlileg krafa að 5. greinin falli út! Magnús Ingi Magnússon vasfíhugi A L H L I Ð A VIÐ5KIPTAHUGBÚNAÐUR 1 Fjárhagsbókhald 1 Sölukerfi i Viðskiptamanna kerfi Birgðakerfi i Tilboðskerfi l Verkefna- og parrtanakerfi Launakerfi i Tollakerfi tU*'askhugi ehf. Síðumúla 15- Sími 568-2680 Hugtakið „upplýst samþykki" er talsvert í umræðunni þessa dagana og ætti það að eiga við í þessu máli þ.e. að enginn skuli vera skráður í félög eða samtök hverskonar, án upplýsts og sjálfstæðs vilja um slíkt. Börn hafa augljóslega ekki þroska til að mynda heilsteypta og sjálfstæða skoðun á trúmálum svo vel sé, og því ætti í raun enginn sem ekki er kominn á sjálfræðis- aldur að geta skráð sig í trúfélag. Fólk hlýtur að geta trúað á sinn anda og stundað sín andahús, (kirkjur, moskur, o.þ.h.) án þess að vera skráð í félag eða vera orðinn 16 ára. Það að breyta þessu til betri veg- ar gæti verið fyrsta skrefið til að hefja hinn löngu tímabæra aðskiln- að ríkis og kirkju. Eins þarf hið Trú Brýnustu verkefnin eru, að mati Magnúsar Inga Magnússonar, að hætta sjálfvirkri skráningu í (trú)félög og hætta að dæla pening- um í þau, ásamt því að taka trúboð út úr nám- skrá grunnskóla. fyrsta að hætta hinum óhugnan- lega fjáraustri úr ríkissjóði til trú- félaga (var á þessu ári a.m.k. 4 milljarðar en er sennilega mun meira). Það geta allir verið sam- mála um að það er nú eitt og annað þarfara hægt að gera við 4 þúsund milljónir. Það er merkilegt að fólk þurfi þvílíkt magn af peningum til að trúa á eitthvað. Skemmst er í því sambandi að minnast kristni- töku óhófsins. Sjaldan hefur jafn miklu af peningum verið jafn illa varið og fyrir jafn fáa, hvað svo sem líður afneitun sumra manna varðandi aðsóknina. Hvar á það heima í siðfræði kristninnar að safna einhverju smotteríi til að leysa þrælabörn á Indlandi úr ánauð en skemmta sér svo fyrir margfalda þá upphæð á Þingvöllum og láta ríkið borga; þvílík yfirgengi- leg hræsni! Það að þetta sé mögu- legt er algjörlega óviðunandi ástand. Að lokum. Þetta tvennt, að hætta sjálfvirkri skráningu í (trú)félög og að hætta að dæla peningum í þau, ásamt því reyndar að taka trúboð út úr námskrá grunnskóla, eru brýnustu verkefnin í þessum mála- flokki. Því segi ég: hættum opin- beru trúboði í hvaða mynd sem það er - STRAX! Höfundur er vaktmaður og meðlimur i SAMT (Samfólag trúlausra). Vinnum gegn ör- birgð og ofbeldi! í DAG, þriðjudaginn 24. október, verður efnt til heimsgöngu og útifundar. Safnast verður saman á Hlemmi kl. 17:30 og gengið niður Lauga- veginn að Ingólfstorgi þar sem haldinn verð- ur útifundur. Heims- ganga kvenna gegn ör- birgð og ofbeldi er átak kvenna um allan heim í því skyni að knýja fram breyting- ar. Fjöldi samtaka í 157 þjóðlöndum hafa ákveðið að taka þátt í átakinu. Við á íslandi látum ekki á okkur standa, við ætl- um líka að ganga og það langt fram á veginn í baráttunni gegn örbirgð og ofbeldi. Það var rennt blint í sjóinn þeg- ar boðað var til stofnfundar Sam- taka um kvennaathvarf 2. júní 1982. Fundarboðendur voru konur úr ýmsum kvennahreyfingum ásamt konum sem höfðu kynnst áhrifum heimilisofbeldis í starfi sínu. Fyrirmyndin var einkum sótt til kvennaathvarfa á Norðurlönd- um en fyrsta kvennaathvarfið í þeirri mynd sem við þekkjum var opnað í London 1972. Ofbeldi á heimilum hafði lítið verið rætt opinberlega hér á landi og fáir gerðu sér grein fyrir að um útbreitt samfélagsvandamál væri að ræða. „Slíkt gerist ekki hér,“ heyrðist jafnvel fullyrt. En fólk dreif að, salurinn reyndist of lítill og strax á fundinum gerðust 200 einstaklingar og félagasamtök stofnfélagar. Um sumarið og haustið var málefnið kynnt fyrir ráðamönnum, leitað að hentugu húsnæði, starfsfólk ráðið og þjálfað og 6. desember 1982 var Kvenna- athvarfið opnað í Reykjavík. Markmið Samtaka um kvennaathvarf 1) Að reka athvarf, annars vegar fyrir konur og börn þeirra þegar dvöl í heimahúsi er þeim óbærileg vegna andlegs eða líkam- legs ofbeldis eigin- manns, sambýlis- manns eða annarra heimilismanna og hins vegar fyrir kon- ur sem verða fyrir nauðgun. 2) Að veita ráðgjöf og upplýsingar, efla fræðslu og umræðu um ofbeldi innan fjöl- skyldu, m.a. til að auka skilning í þjóð félaginu á eðli ofbeld- is og afleiðingum þess og stuðla að því að þjóðfélagið, lög þess og stofnan- ir verndi og aðstoði þá er slíkt of- beldi þola. Ganga s A I dag, segir Asta Júlía Arnardóttir, verður gengið gegn ofbeldi. Á íslandi búa margar konur við ofbeldi á heimilum sínum. Það get- ur birst í ýmsum myndum og verið bæði líkamlegt og andlegt. Fjöldi kvenna býr við ofbeldi án þess að bera þess sýnileg merki. Öfbeldið læðist oft hægt inn í sambandið en getur einnig þróast á skömmum tíma og þrífst í skjóli friðhelgi heimilisins. I dag verður gengið gegn of- beldi. Við hjá Samtökum um kvennaathvarf viljum minna á að á Islandi býr fjöldi kvenna við of- beldi á heimilum sínum. Ætlum við að láta það viðgangast? Við hvetjum alla til þess að taka þátt í göngunni í dag frá Hlemmi því leiðin „GEGN OFBELDI“ er bara hálfnuð. Höfundur er fræðslu- og kynningar- fulltrúi Samtaka um kvennaathvarf. Ásta Júlía Amardúttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.