Morgunblaðið - 24.10.2000, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000 65
HESTAR
Orri frá Þúfu virðist halda verðgildi sínu og vel það þvf nú í vikunni
verður gengið frá sölu á einum hlut í hestinum fyrir ríflega milljón.
Knapi er Gunnar Amarsson.
ræðan ekki eins harðvftug og hún
er í dag enda margfalt meiri fjár-
upphæðir um að tefla í dag en þá.
Það var helst að Andrés heitinn á
Kvíabekk reyndi að bregða fyrir
hann fæti þegar færi gafst á árs-
þingum eða árshátíðum hesta-
manna víða um land. Orri fæddist
ekki heldur með silfurskeið í
munni en fékk hana þó fljótlega
eftir sýningu á Stóðhestastöðinni
1990 og eftir það tölti hann veginn
beina og breiða til hæstu metorða.
Hrafn hlaut sína eldskírn í hat-
rammri baráttu 1974 á landsmóti
þegar hann sigraði Ófeig frá
Hvanneyri með brotamun en eftir
það skildi leiðir og fljótlega upp úr
1980 var hætt að bera þessa hesta
saman. En fyrir þá sem ekki vita
má hnýta því við að Hrafn er afl
Orra og úr því komið er út í þessa
sálma, að helsti gúrúinn á undan
Hrafni, Sörli frá Sauðárkróki, er
langafi Orra.
I næsta pistli væri áhugavert að
fjalla um verðmæti annarra stóð-
hesta sem eru framarlega í eldlín-
unni og umræðunni eins og Dyns
frá Hvammi, Töfra frá Kjartans-
stöðum, Hróða frá Refsstöðum,
Vestra frá Leirárgörðum og ým-
issa fleiri. Þessi markaður er ekki
síður áhugaverður en hinn eigin-
legi verðbréfamarkaður.
Ársþing Landsambands
hestamannafélaga
Veglegt þinghald
í Mosfellsbæ
ÞAÐ hefur sjálfsagt ekki farið
framhjá lesendum hestasíðunnar
að ársþing er í vændum. Fjallað
hefur verið um tillögur og stjórn-
arkjör og fleira í síðustu þáttum.
En lítið hefur verið vikið að hin-
um mannlega þætti þingsins og
hann er kannski ekki síður mikil-
vægur. Kannski er sá þáttur
hvati þess að þingum hefur ekki
fækkað þrátt fyri margítrekaðar
tilraunir stjórna samtakanna
undanfarin ár.
Þingið nú verður með nokkuð
öðrum hætti en tíðkast hefur því
þingstörf hefjast ekki fyrr en
klukkan 13 á föstudag en um
morguninn verður stjórnarfund-
ur. Venjan hefur verið sú að þing
hefst klukkan 10 árdegis. Saman-
borið við þing undanfarinna ára
virðst sem mun minni tími sé ætl-
aður til þingstarfa en en áður. En
mikið verður lagt undir til að
þingið verði sem glæsilegast og
upplýsti Rafn Jónsson félagi og
fyrrum stjórnarmaður í Herði að
þeir Harðarfélagar hefðu lagt
mikið í undirbúnig fyrir þetta
þing.
Þingfundur verður haldinn í
gamla íþróttahúsinu að Varmá,
nánar tiltekið heimavelli Aftur-
eldingar í handbolta en þingslita-
fagnaður yrði hinsvegar í nýja
íþróttahúsinu.
Sagði Rafn að aðstaða væri öll
hin glæsilegasta í íþróttamiðstöð-
inni og hefðu þeir í Herði notið
dyggilegs stuðnings bæjarstjórn-
ar Mosfellsbæjar varaðandi þing-
haldið. Þá hefðu ýmis fyrirtæki
lagt gott lið við undirbúning og
nefndi hann sem dæmi að þing-
gögn yrðu í veglegum plastmöpp-
um. Eins og venja er til á ár-
sþingum yrði boðið upp á ferð um
Mosfellsbæ fyrir maka þingfull-
trúa og aðra gesti þar sem kynnt
verða undur Mosfellsbæjar þar
sem gestir fá að kynnast bænum
eins og hann er í raun og veru.
„Mjög áhugavert“ sagði Rafn.
Lokapunkturinn verður svo
þingslitafagnaðurinn sem hefst
klukkan 19:30 í nýja íþróttahús-
inu eins og áður sagði. Þar mun
Mosfellsbær bjóða upp á for-
drykk sem túlka má sem loka-
punkt á góðan stuðning bæjarfé-
lagsins við þingið. Rafn lagði
áherslu á að þingslitafagnaður-
inn væri opinn öllum bæði félög-
um Harðar sem og öðrum áhuga-
mönnum um hestamennsku.
Þetta væri sameiginleg afmælis-
hátið LH og Harðar sem varð 50
ára á þessu ári.
Fréttir á Netinu ^mbl.is
ALL-r*r= eirrHVAa /vfn
Hjartavernd
Vinningar í Happdrætti Hjartaverndar
Útdráttur 21. október 2000.
Vinningar féllu þannig:
1. Terrano II Luxury 2.7TDI, 5 dyra,
kr. 2.860.000 nr. 46091
2-3. Nissan Almera Luxury 1.81, 4 dyra,
hvor á kr. 1.560.000 nr. 7503, 96119
4-13. Maxdata ferðatölva frá Heimilistækjum,
hver á kr. 209.000
14-33. Ferðavinningur að vali með Úrval/Útsýn,
hver á kr. 180.000
34-53. Ferðavinningar að vali með Úrval/Útsýn,
hver á kr. 100.000
54-60. Reiðhjól eða þrekhjól frá Erninum,
hvert á kr. 50.000
nr. 10308, 19344, 32664, 35816,
42113, 51662, 89305, 92419,
94790, 100744
nr. 240, 2489, 7669, 11502,
17924, 19712, 27910, 32363,
34671, 37332,58804,60951,
65886, 80517, 80728, 83258,
86574, 91936, 93488, 103247
nr. 987, 1199, 6100, 6945,
7958, 12011, 15232, 16714,
17155,19225, 21911, 26375,
27346, 29140, 51893, 53193,
64530, 69487, 73392, 104225
nr. 1870, 30443, 42667, 56545,
88245, 100969, 103389
Vinninga má vitja á skrifstofú Hjartaverndar, Lágmúla 9, 3. hæð, Reykjavík
Þökkum veittan stuðning.
Gangstéttarefni
* ^askapur?
Mikill sóðaskapur er á gangstéttum
borgarinnar af tyggjóklessum sem
fleygt hefur verið þar í hugsunarleysi.
Hugsaðu áður en þú hendir og notaðu
ruslatunnur fyrir allt rusl, líka tyggjóið.
Láttu ekki tyggja þetta ofaní þig aftur.
Borgarstjórinn í Reykjavík
Hreinsunardeild Gatnamálastjóra
LOSAÐU ÞIG VIÐ
HANA í RUSLIÐ