Morgunblaðið - 24.10.2000, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ
___________________________________ÞRIÐJUDAGUR 24. QKTÓBER'2000 75 ^
FÓLK í FRÉTTUM
Brattar bárur
Tónllst
Laugardalshull
ICELAND AIRWAVES
Stórtónleikar Iceland Airwaves í
Laugardalshöll 21. október 2000.
Fram komu Suede, The Flaming
Lips, Thievery Corporation, Egill
Sæbjörnsson, Mínus og Súrefni.
ÞEGAR litið var yfir efnisskrá
tónleikanna verður ekki annað sagt
en að flytjendur hafi verið valdir af
djörfungu og hug. Að undanskildum
Suede verða þeir nefnilega allir að
teljast æði nálægt jaðrinum, hver á
sinn máta. Næststærsta númerið,
The Flaming Lips, hefur lítið sem
ekkert heyrst á öldum ljósvakans
þrátt fyiir að vera fremur auðmelt
sveit og aðgengileg, Thievery Corp-
oration flytur danstónlist sem vart er
til þess fallin að dansa mikið við, Súr-
efni flytur svo til einvörðungu leikna
tónlist, Egill Sæbjörnsson var nær
algjörlega óþekkt stærð og við skul-
um bara segja að harðkjarna-
hausarnir í Mínus séu ekki alveg
allra. Með öðrum orðum var mikið
lagt undir og gat brugðið til beggja
vona. En þegar veðjað er stórt er
ávöxturinn líka að sama skapi þeim
mun ríkulegri og sú varð raunin á
laugardagskvöldið í Laugardalshöll-
inni. Það vafasama hlutskipti féll í
skaut Mínuss að hefja tónleikana.
Allt frá fyrsta hljóðfæraslætti
streymdi um mig taktfastur straum-
ur sem var einhvem veginn blandað-
ur sælu- og ónotatilfinningu. Sveitin
lék vænan skammt af nýju plötunni
sem virðist ætla að verða hvalreki
fyrir unnendur sveitarinnar.
Súrefni flutti blöndu af nýlegu og
eldra efni og það fer ekki á milli mála
að grúvið er máttur Súrefnis og meg-
in. Verst hvað lagasmíðamar era
daprar og litlausar. Trekk í trekk
heyrði maður þessa líka fínu byijun,
sló taktinn og beið vongóður fram-
vindunnar - sem síðan var hvorki
fugl né fiskur. Eftir stóðu nokkrar
huggulegar hugmyndir þar sem
heyra gat einhvers konar blöndu af
teknó og suðurríkjarokki, rétt eins
og Underworld væri í bólinu með ZZ
Top.
Nú bjóst ég við að næstur yrði Eg-
ill Sæbjörnsson en það var öðra nær.
Eftir að hafa bragðið mér örstutt frá
á meðan hið hvimleiða tónleikamillis-
pil - einhverskonar dans-sýru-
djassblanda - leið hjá kom ég að svið-
inu og sá mér til furðu að í myrkrinu
uppi á sviði voru staddir hlið við hlið
kumpánar tveir sem ég auðkenndi
fljótlega sem Thievei-y Corporation.
Og ég sem hélt að millispilið væri
enn í gangi. I því vora ljóskastaram-
ir tendraðir - í miðju lagi - og þá fór
það ekki lengur á milli mála - Wash-
ington-dúettinn hafði hafist handa.
Leikur þenra skiptist gróílega í
tvennt. Fyrri hlutann sungu tvær
söngkonur seiðandi röddu reykmett-
aðan og ofursvalan sófadjass í anda
Massive Attack og Morcheba en sá
síðaii var í höndum tveggja þel-
dökkra karlsöngvara með rastaflétt-
að hár sem vissu alveg hvar þeir
voru: „Hello Iceland“, „How are you,
Iceland?" og þar fram eftir götunum.
Egill Sæbjörnsson er mér hálf-
gerð ráðgáta. Ég veit að hann er
efnilegur myndlistarmaður sem gaf
nýverið út sína fyrstu breiðskífu með
framsömdu efni - hreint ágætis skífa
með fínum popplögum. Hitt veit ég
ekki - hvað, eða hvort hann yfir höf;
uð er að meina það sem hann gerir. í
það minnsta er maður einhvem veg-
inn alltaf á varðbergi - hræddur um
að hann stoppi allt í einu og híi á
mann fyrir það að falla fyrir slíku
poppmeti. Ég áttaði mig ekki heldur
alveg á vera hans á þessari stund og
stað - hann hefði kannski frekar átt
að bytja og Mínus að taka hans stað.
Þegar kemur að því að fjalla um
þátt The Flaming Lips skal strax
fullyrt kinnroðalaust að þar fer ein-
hver allra magnaðasta frammistaða
sem ég hef séð á sviði hérlendis.
Vissulega var ég hrifinn af síðustu
plötunni, The Soft Bulletin, en gat
vart talist sérstakur aðdáandi. Hins-
vegar tókst Wayne Coyne og félög-
um að lokka mig svo gjörsamlega á
sitt band með gjörningi sínum að ég
hefur síðan verið þeirra auðmjúki
hugfangi. Svona á að halda tónleika!
Nýta aðstæðurnar svo fullkomlega
að áhorfandinn geti vart annað en
tekið eftir og hrifist með. Coyne var
þannig ekki bara að syngja lögin sín,
heldur túlkaði hann þau á allan þann
máta sem honum vora kleifir; með
tilþrifamikilli leiktjáningu og ein-
földum en áhrifamiklum leikmunum
eins og gerviblóði, afmælisblöðram
og marglitu pappírskurli. Til að full-
komna upplifunina notaðist sveitin
við afai- áhrifarík myndskeið, sem
varpað var á skjá bak við sveitar-
menn og slógu fullkomlega í takt við
lögin. Þannig virtist ekkert eðlilegra
en að sjá sjálfan maestroinn Leonard
Bernstein stjórna The Flaming Lips
af krafti á meðan Coyne leit tilbiðj-
andi upp til hans.
Það var hægara sagt en gert að ná
sér eftir slíka snilld og setja sig í
stellingar fyrir tónlist af gjörsam-
lega ólíkum toga - rómantískt og
hressilegt gítarrokk Suede. Það fór
ekki á milli mála að flestir vora
komnir til þess að sjá þá. Söngvarinn
Brett sagði í viðtali fyrir komu sína
tU landsins að sveitin hygðist taka
allmörg ný lög sem íslenskir áhorf-
endur yrðu fyrstir í heiminum tU
þess að heyra. Hvað sem líður eftir-
væntingu að heyra eldri og kunna
smelli virði ég alltaf við listamenn
þegar þeh- afhjúpa hæfilegt magn
nýrra smíða. Einhverjir vora að agn-
úast út í það fyrir tónleikana að þeir
ætluðu að eyða svo miklu púðri í nýja
efnið á fyrstu tónleikunum hérlendis
en annað verðui- ekki sagt en að
Suede hafi kveðið þær raddir í kút-
inn með skotheldri frammistöðu og
sýnt hvernig bera skuli á borð
blöndu af nýju og gömlu efni.
Hvað nýja efnið varðar lofar það
nokkuð góðu, er heldur í rólegri
kantinum, og virðist nokkuð sterk-
ara en efnið á síðustu plötunni, Head
Music. Það féll og furðuvel í kramið
hjá fjöldanum og Brett var augsýni-
lega ánægður og undrandi yfir þess-
um jákvæðu viðbrögðum sem fersk-
metið fékk. Valið á eldra efninu
staðfesti algjörlega kenningu mína
um að sveitin eigi vh-kilega erfitt
með að horfast í augu við fyrstu tvær
plöturnar vegna ríkulegs þáttai- hins
brotthorfna Bernards Butler. Aðeins
eitt lag fékk að hljóma af þeim, hið
unaðslega „Wild Ones“ og æsti það
hungrið óbærilega eftir fleiram, sem
komu svo aldrei.
Lunginn af eldri lögunum var því
af Coming Up og Head Music.
Greinilegt var af viðbrögðum gesta
að dæma að sú fyrrnefnda er sú best
þekkta hér á landi og æstist leikur-
inn ætíð verulegaþegar lög af henni
tóku að hljóma. Ég hef alltaf verið
virkilega spældur út í Head Music en
komst að því við að heyra lögin af
henni flutt af krafti og þéttri og vel
spilandi sveitinni að sökin liggur í
upptökustjórninni því þau hljómuðu
mun betur lifandi en í gerilsneyddri
plötuútgáfunni. Það tel ég góð með-
mæli með tónleikaframmistöðu.
Brett náði allan tímann nánu og inni-
legu sambandi við æsta tónleikagesti
og það leyndi sér ekki að sveitin hafði \ !*
virkilega gaman af því sem hún var
að gera - nokkuð sem skilar sér allt-
af. A heildina litið voru aðrir stórtón-
leikar Iceland Airwaves í röðinni ná-
kvæmlega eins og stórtónleikar eiga
að vera; ferskir, hugdjarfir, fjöl-
breyttir, vandaðir og stórir. Eftir að
hafa eytt rúmum sex stundum í
Laugardalshöll sat eftir sú tilfinning
að maður hefði ekki fyrir nokkra
muni mátt vera neins staðar annars
staðar því að þá hefði maður niisst af
einstökum tónleikaviðburði á íslandi
- og þeir era nú ekki á hverju strái. ,
Skarphéðinn Guðmundsson *
VÁKORT
Eftiriýst kort nr.
4543-3700-0029-4648
4543-3700-0036-1934
4543-3700-0034-8865
4507-4100-0006-6325
4548-9000-0056-2480
4543-3700-0027-8278
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA (slandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
fyrir að klófesta kort
og vlsa á vágest
VISA (SLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
C/O
>
TOlYUnflfflfKEIÐ 3000
o
Tölvugruflnur
Ef þú hefur enga þekkingu á tölvum þá byijar
þú á þessu námskeiði.
4 kennslustundir
lllindoui/ 98
Nauðsynlegt grunnnámskeið um stýrikerfið
og tölvuna.
9 kennslustundlr
Internetió
Frábært námskeið fyrir þá sem vilja læra á
Intemetið og nota tölvupóst.
9 kennslustundir
Ulindoui/. Ulord og CHcel
Námskeið fyrir þá sem vilja gott námskeið
um helstu forritin og stýrikerfi tölva, allt f
einum pakka.
22 kennslustundlr
Ulord ritvinn/lo
Yfirgripsmikið námskeið fyrir byijendur og
lengra komna. Við komum þér á óvart.
22 kennslustundir
iHcel tölflureiknirinn
Vandað og gott námskeið fyrir alla sem vinna
við tölur. Yfirgripsmikið og gagnlegt, líka
fyrir þá sem þegar nota Excel.
22 kennslustundir
fleee// gognogrunnurinn
Námskeið fyrir alla sem vilja smíða
gagnagrunna til þess að halda utan um
upplýsingar og vinna úr þeim.
22 kennslustundir
PouierPoint
Gagnlegt og skemmtilegt námskeið fyrir þá
sem þurfa að útbúa kynningarefhi, kenna eða
halda fyrirlestra.
13 kennslustundir
Þekking í þína þágu
©
0
o
Ulord II - fgrir regn/lumiklo
Námskeið fyrir notendur með mikla reynslu
af ritvinnslu sem hafa lokið Word námskeiði,
18 kennslustundir
iHcel II - fgrir regn/lumiklo
Námskeið sem aðeins er ætlað þeim sem
kunna mikið í Excel og hafa unnið lengi við
hann eða lokið Excel námskeiði okkar.
18 kennslustundír
iHcel vid fjórmólo/tjórn
Mjög gagnlegt námskeið fyrir þá sem vinna
við Qármál, stjómun og áætlanagerð.
18 kennslustundlr
iHoel tölfrœði
Námskeiðið spannar margs konar
tölfheðivinnslur með Excel.
18 kennslustundir
iHcel fjölror og forritun
Námskeið fyrir þá sem kunna allt í Excel,
nema að forrita hann.
31 kennslustund
flcce// forritun
Þegar þú kannt að smíða gagnagrunna þá er
þetta næsta skref. Yfirgripsmikið
framhaldsnámskeið fynr reynda notendur.
36 kennslustundir
Project verkefno/tjórnun
Grundvallaratriði góðrar verkefnastjómunar
og hvemig má nota tölvu til aðstoðar. ítarlegt
og vandað námskeið.
18 kennslustundir
Vef/íóugeró I ■ frontPoge
Eitt vinsælasta námskeiðið um vefsíðugerð.
Allt sem þarf til að komast á vefmn.
22 kennslustundir
Yef/íóugeró II - frontPoge
Námskeið sem byggir á reynslunni og bætir
mörgum skemmtilegum atriðum í
þekkmgarbrunninn.
22 kennslustundir
Vef/íóugerð III
Tengingar við gagnagrunna, hópvinnukerfi
og margs konar sjálfvirkni á vefsíðum.
13 kennslustundir
Publi/her útgófo bœklingo
Útgáfa alls konar bæklinga og kynningarefhis
verður leikur einn með þessu forriti.
18 kennslustundir
(Ilicro/oft Yi/io 9000 Yió/kipto-
og tœkniteiknun
Fjðlbreytt teikningagerð í viðskiptum og
tækni. Mjög fjölhæft og þægilegt forrit.
22 kennslustundir
UJindoui/ 9000 netum/jón
Frábært íslenskt námskeið um þetta nýja
netstýrikerfi sem er að ryðja sér til rúms.
36 kennslustundir
Ulindoui/ HT netum/jón
Margreynt og gott námskeið um netstýrikerfi
fyrir þá sem vilja hafa allt á hreinu.
36 kennslustundir
0
fgrirtœkjotilboó
Bjóðum fyrirtækjum sérsniðin námskeið og
afsláttarsamninga af öllum námskeiðum
okkar.
Hagkvæm lelð - hámarksárangur
fjornóm
Fjölmörg námskeiða okkar eru boðin í
fjamámi. Tilvalin leið fyrir þá sem vilja frekar
læra heima eða á vinnustað.
Fjamám - nútímanámsaðferð
Þú ávinnur þér afslátt með fleiri námskeiðum:
1. námskeið..............5% stgr. afsl.
2. og 3. námskeið........10% stgr. afsl.
4. og síðari námskeið....15% stgr. afsl.
Nánari upplýsingar á http://www.tv.is
Grensiovegl 16
108 Reykjavík
Slml: 620 9000
Fax: 520 9009
Netfang: tv@tv.la
pöntunarjlmi
FTBTIKI Raögreiðslulán til allt að 36 mánaða.
isaáasadLS^J Hagstæð námslán hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar.
t ö I V u -.
V e r k ff r
Símanútner
O fl
8B ð % þ j ð n u s t a n