Morgunblaðið - 30.12.2000, Blaðsíða 1
300. TBL. 88. ÁRG.
LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuters
hrapa. Einn flugliði fótbrotnaði og
fjórir farþegar meiddust lítillega.
Bandarískur farþegi í vélinni,
Rob Adam, tók myndir um borð
þegar atvikið var afstaðið. Eftir að
hafa yfírbugað manninn, sem réðst
inn í flugstjórnarklefann, hlúðu
áhöfn og farþegar að honum á gólf-
inu fyrir utan klefann. Til vinstri á
myndinni má þekkja breska popp-
söngvarann Bryan Ferry, sem var
meðal farþega.
■ Óður farþegi/28
ÁHÖFN og farþegum 1 þotu British
Airways tókst í gærmorgun að yf-
irbuga mann sem réðst inn í flug-
stjómarklefa þotunnar og reyndi að
brotlenda henni, að því er flugstjór-
inn tilkynnti farþegunum. Tæplega
400 manns vom um borð 1 vélinni,
sem er Boeing 747-400 og var á leið
frá London til Nairobi í Kenýa.
Aðeins tók fáeinar mínútur að yf-
irbuga manninn, sem talinn er van-
heill á geði, en vélin tók tvær miklar
dýfúr þar eð sjálfstýringin aftengd-
ist, og er talið að litlu hafi mátt
„Alger
skelfing“
muna að hún færist. Vélin var í 35
þúsund feta hæð yfir Afríku er at-
vikið átti sér stað, sex tímum eftir
brottför frá London.
Haft var eftir einum farþeganna
að „alger skelfing" hefði ríkt um
borð meðan á látunum stóð, og far-
þegar hefðu talið víst að vélin myndi
Umrótið á hlutabréfamörkuðunum
Yersta ár í
sögu Nasdaq
ÁRIÐ 2000 var hið versta í 29 ára
sögu Nasdaq-vísitölunnar og allar
helstu hlutabréfavísitölur heims
lækkuðu verulega.
Mikið umrót var á mörkuðunum á
aldamótaárinu og gengi tæknifyrir-
tækja olli mestum vonbrigðum.
Nasdaq-vísitalan, sem mælir gengi
hlutabréfa í slíkum fyrirtækjum,
lækkaði um 39,3% og er það mesta
niðursveifla á einu ári. Dow Jones-
vísitalan lækkaði um tæp 6,2% og er
þetta versta ár hennar frá 1981.
Þegar kauphöllinni í London var
lokað í gær hafði FTSE 100-vísitalan
lækkað um 10% frá síðustu áramót-
um og er þetta í fyrsta sinn frá 1994
sem hún lækkar á milli ára og aðeins
í þriðja sinn frá 1984 þegar hún var
fyrst tekin saman.
Nikkei-vísitalan í Tókýó kom einn-
ig illa út. Hún lækkaði um 27,2% á
árinu og um 34% frá því í mars þegar
hún var í hámarki. Vísitalan lækkaði
síðast á milli ára fyrir áratug þegar
japanska „efnahagsbólan" sprakk og
fasteignaverð hrundi.
136% hækkun í Kína
Uppsveifla var þó í nokkrum lönd-
um og gengi kínverskra hlutabréfa
hækkaði mest, hvorki meira né
AP
Fjárfestar í kauphöllinni í Chic-
ago fagna eftir að síðasta vinnu-
degi þeirra á árinu lauk.
minna en 136%. Vísitala kauphallar-
innar í Dublin hækkaði um 11%.
Fjárfestingarráðgjafar segja að
líta beri á hlutabréfakaup sem lang-
tímafjárfestingu og sérfræðingar
eru þegar farnir að spá því að hluta-
bréfamarkaðirnir verði miklu arð-
vænlegri á næsta ári.
Reuters
Palestmskir liðsmenn íslömsku hreyfingarinnar Hamas kveikja í eft-
irlíkingu af ísraelskri rútu sem varð fyrir sprengjuárás í fyrradag. Um
10.000 stuðningsmenn hreyfingarinnar komu saman í borginni Nablus á
Vesturbakkanum f gær til að mótmæla hernámi ísraela.
Bush tilnefnir
fjóra ráðherra
Washington. Reuters.
^ Meirihluti
Israela á móti
friðarsamningi
Gaza. Reuters, AFP.
PALESTÍNSKUR lögreglumaður
beið bana og sautján Palestínumenn
særðust í hörðum átökum við ísr-
aelska hermenn við landamæri Gaza-
svæðisins og Israels í gær. Leiðtogar
Palestínumanna sögðust enn vera til-
búnir að ræða við samningamenn Is-
raela um friðartillögur Bills Clintons
Bandarílgaforseta þótt ágreiningur-
inn væri mikill. Skoðanakönnun, sem
birt var í gær, bendir hins vegar til
þess að 58% ísraela séu andvíg því að
Ehud Barak forsætisráðherra und-
irriti friðarsamning við Palestínu-
menn fyrir forsætisráðherrakosning-
arnar 6. febrúar.
Palestínumenn sögðu að lögreglu-
maðurinn hefði beðið bana þegar
ísraelskur skriðdreki hefði skotið
sprengikúlu á palestínska varðstöð
nálægt Erez milli Gaza-svæðisins og
ísraels. ísraelsher sagði að her-
mennimir hefðu áður orðið fyrir
harðri skotárás palestínskra lög-
reglumanna og leyniskyttna. Er
þetta einn harðasti skotbardagi sem
blossað hefur upp á svæðinu í rúma
viku.
Að minnsta kosti 346 manns hafa
beðið bana í átökunum síðustu þrjá
mánuði, þar af 305 Palestínumenn.
ísraelar lokuðu Vesturbakkanum
og Gaza-svæðinu í gær vegna tveggja
sprengjutilræða sem kostuðu tvo Is-
raela lífið í fyrradag, auk þess sem
fimmtán særðust.
Fylgi Baraks minnkar
Bill Clinton sagði að ísraelar og
Palestínumenn væru nær friðarsam-
komulagi en nokkru sinni fyrr og
kvaðst ætla að bíða eftir formlegu
svari Palestínumanna við friðartil-
lögum hans. Leiðtogar Palestínu-
manna hafa miklar efasemdir um
nokkur atriði tillagnanna en sögðust
þó í gær vilja halda viðræðunum
áfram og reyna til þrautar að ná sam-
komulagi.
ísraelska dagblaðið Maariv birti
skoðanakönnun sem bendir til þess
að 66% ísraela séu andvíg því að Bar-
ak undirriti friðarsamning fyrir
kosningamar 6. febrúar. Barak hafði
sagt af sér og boðað til kosninga 1 von
um að friðarsamningur myndi hjálpa
honum að ná endurkjöri.
Aðeins 39% aðspurðra sögðust
vilja friðarsamning íyrir kosningarn-
ar og 5% höfðu ekki gert upp hug
sinn.
I nýrri Gallup-könnun sögðust að-
eins 24% aðspurðra ætla að kjósa
Barak en 45% Ariel Sharon, leiðtoga
Likud-flokksins. Er þetta minnsta
fylgi sem Barak hefur fengið í skoð-
anakönnunum frá því að hann varð
forsætisráðherra í júlí á síðasta ári.
GEORGE W. Bush, verðandi forseti
Bandaríkjanna, tilnefndi í gær fjóra
ráðherra sem eiga að fara með ýmis
innanríkismál í stjóm hans.
Tommy Thompson, rfldsstjóri
Wisconsin, varð fyrir valinu sem
næsti heiíbrigðisráðherra og Rod
Paige, fræðslustjóri Houston-borg-
ar, var tilnefndur í embætti mennta-
málaráðherra. Gale Norton, fyrrver-
andi ríkissaksóknari Colorado, var
valin innanríkisráðherra og Anthony
Principi á að stjóma ráðuneyti sem
fer með málefni fyrrverandi her-
manna, en hann var aðstoðarráð-
herra í því ráðuneyti í forsetatíð föð-
ur Bush. Öll ráðherraefnin eru
eindregnir stuðningsmenn íhalds-
stefnu Bush sem hefur lýst sér sem
„brjóstgóðum íhaldsmanni".
Bush hefur þar með tilnefnt tólf af
fimmtán ráðherrum sínum. Hann á
enn eftir að velja ráðherra orku-,
samgöngu- og vinnumála.
Norton er þriðja konan og Paige
þriðji blökkumaðurinn sem Bush
velur í stjórnina. Bush hefur stefnt
að því að fá einhvem háttsettan
demókrata í stjórnina en hann við-
urkenndi að það hefði reynst erfitt.
■ Cheney/35
Barnavíxl
leiðrétt
Mazara del Vallo. AP.
TVÆR stúlkur, sem fóm til
rangra foreldra fyrir mistök
skömmu eftir að þær fæddust á
sjúkrahúsi á Sitóley 1. janúar
1998, eiga að halda upp á þriggja
ára afrnæli sitt saman á nýárs-
dag og fara síðan til réttra for-
eldra.
Yfirvöld staðfestu mistökin í
október eftir að foreldrar ann-
arrar stúlkunnar tóku að spyrja
lækna sjúkrahússins í bænum
Mazara del Vallo á Sikiley
hvemig á því stæði að hún líktist
hvorki móðurinni né föðumum.
Blóðrannsóknir leiddu í Ijós
að hjónin vora ekki foreldrar
stúlkunnar og frekari rannsókn-
ir staðfestu að hún var dóttir
annarra hjóna sem höfðu alið
upp barn íyrrnefndu foreldr-
anna.
Stúlkumar fæddust með 15
mínútna millibili og þær vora
ekki með armbönd með nöfnum
foreldranna eins og reglur
kveða á um. Þar sem foreldram-
ir bjuggu í sama bæ léku stúlk-
urnar sér oft saman á leikvelli
áður en mistökin uppgötvuðust.
Foreldrar þeirra vora einnig
vinir og ákváðu að skiptast á
bömum að ráði sérfræðinga.
MORGUNBLAÐIÐ 30. DESEMBER 2000