Morgunblaðið - 30.12.2000, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 30.12.2000, Blaðsíða 58
58 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ í dag er laugardagur 30. desemb- er, 365. dagur ársins 2000. Orð _% dagsins: Guð vonarinnar fylli yður öllum fognuði og friði í trúnni, svo að þér séuð auðugir að voninni í krafti heilags anda. (Róm. 16,15,13.) Fréttir Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið til að hætta reykingum í Heilsu- stofnun NLFÍ Hvera- gerði, fundur í Gerðu- bergi á þriðjud. ki. 17.30. Frímerki. Kristniboðs- sambandið þiggur með þökkum alls konar not- uð frímerki, innlend og útlend, ný og gömul, klippt af með spássíu í kring eða umslagið í heilu lagi. Útlend smá- mynt kemur einnig að notum. Móttaka í húsi KFUMogK, Holtavegi 28, Reykjavík, og hjá Jóni Oddgeiri Guð- mundssyni, Glerárgötu 1, Akureyri. Áheit. Kaldrananes- kirkja á Ströndum á 150 ára afmæli á næsta ári og þarfnast mikilla end- urbóta. Þeir sem vilja styrkja þetta málefni geta lagt inn á reikn. 1105-05-400744. Mannamót Aflagrandi 40. Kii-kju- starf aldraðra, áramóta- guðsþjónusta í Graf- arvogskirkju 3. janúar kl. 14, prestur sr. Vigfús Þór Arnason og sr. Miyako Þórðarson, prestur heyrnariausra, sem mun túlka á tákn- máli. Litli kór Nes- kirkju syngur og leiðir almennan söng. Söng- stjóri og einsöngvari Inga J. Backman, org- anisti Reynir Jónasson. Kaffiveitingar í boði Grafarvogssóknar eftir guðsþjónustuna. Farið frá Aflagranda kl. 13. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Áramótadansleikur í kvöld kl. 20.30. Caprí tríó leikur fyrir dansi. Happdrætti, ásadans. Gerðuberg, félagsstarf Gerðubergs. Miðviku- daginn 3. janúar verður áramótaguðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl. 14 á vegum ellimálaráðs Reykjavíkurprófasts- dæma. Prestur sr. Vig- fús Þór Amason og sr. Miyako Þórðarson sem túlkar á táknmáli. Litli kór Neskirkju syngur og leiðir almennan safn- aðarsöng undir stjórn r Ingu J. Backman sem einnig syngur einsöng. Organisti Reynir Jón- asson. Kaffiveitingar í boði Grafarvogssóknar. Eftir athöfnina verður ekið um borgina ljósum prýdda. Mæting í Gerðubergi kl. 13.15. Skráning hafin. Þriðju- daginn 2. janúar opið kl. 9-16.30 spilasalur opinn frá hádegi. Miðvikudag- inn 3. janúar er banka- þjónusta kl. 12.30 -13.30. (ATH. breyttur ft tími). Veitingar í fallega skreyttu kaffihúsi. Allar upplýsingar um starf- semina á staðnum og í síma 575-7720. Starfs- fólk óskar öllum þátt- takendum og samstarfs- aðilum gleðilegs ár og friðar með þakklæti fyr- ir stuðning og samstarf á árinu sem er að líða, hlökkum til nýja ársins. Hraunbær Starfsemin hefst 2. janúar. Lausir tímar í myndlist og gler- skurði, uppl. í síma 587- 2888. Vesturgata 7. Áramóta- guðsþjónusta verður í Grafai-vogskirkju 3. janúar kl. 14. Lagt af stað frá Vesturgötu kl. 13.15. Prestar sr. Vigfús Þór Árnason og sr. Miyako Þórðarson, prestur heyrnarlausra, túlkar á táknmáli. Litli kór Neskirkju syngur og leiðir almennan söng, söngstjóri og einsöngv- ari Inga J. Backman, organisti Reynir Jónas- son. Kaffiveitingar í boði Grafarvogssóknar eftir guðsþjónustuna. Allir velkomnir og takið með ykkur gesti. Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnai’. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Nánari uppl. á skrifstofu GI, s. 530-3600. Minningarkort Samtök lungnasjúk- linga. Minningarkort eru afgreidd á skrifstofu félagsins á Suðurgötu 10 (bakhúsi), 2. hæð, s. 552-2154. Skrifstofan er opin miðvikud. og fóstud. kl. 16-18 en utan skrifstofutíma er sím- svari. Einnig er hægt að hringja í síma 861-6880 og 586-1088. Gíró- og kreditkortaþjónusta. MS-félag Islands. Minn- ingarkort MS-félagsins eru afgreidd á Sléttu- vegi 5, Rvk., í síma 568- 8620 og myndrita s. 568- 8688. FAAS, Félag aðstand- enda alzheimer- sjúklinga. Minning- arkort eru afgreidd alla daga í s. 533-1088 eða í bréfs. 533-1086. Heilavernd. Minningar- kort fást á eftirtöldum stöðum: í síma 588-9220 (gíró), Holtsapóteki, Vesturbæj arapóteki, Hafnarfjarðarapóteki, Keflavíkurapóteki og hjá Gunnhildi Elíasdótt- ur, Isafirði. Parkinsonsamtökin. Minningarkort Park- insonsamtakanna á ís- landi eru afgreidd í síma 552-4440, hjá Áslaugu í síma 552-7417 og hjá Nínu í síma 564-5304. Minningarkort Sam- taka sykursjúkra fást á skrifstofu samtakanna Tryggvagötu 26, Reykjavík. Opið virka daga frá kl. 9-13, s. 562- 5605, bréfsími 562-5715. Krabbameinsfélagið. Minningarkort félagsins eru afgreidd í síma 540 1990 og á skrifstofunni í Skógarhlíð 8. Hægt er að senda upplýsingar í tölvupósti (minn- ing@krabb.is). Minningarkort Sjálfs- bjargar, félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu, eru afgreidd í síma 551- 7868 á skrifstofutíma og í öllum helstu apótek- um. Gíró- og kredit- kortagreiðslur. Minningarkort For- eldra- og vinafélags Kópavogshælis fást á skrifstofu end- urhæfingardeildar Landspítalans í Kópa- vogi (fyrrverandi Kópa- vogshæli), síma 560- 2700, og skrifstofu Styrktarfélags vangef- inna, s. 551-5941, gegn heimsendingu gíróseð- ils. Félag MND-sjúklinga selur minningarkort á skrifstofu félagsins á Norðurbraut 41, Hafn- arfirði. Hægt er að hringja í síma 565-5727. Allur ágóði rennur til starfsemi félagsins. Landssamtökin Þroska- hjálp. Minningarsjóður Jó- hanns Guðmundssonar læknis. Tekið á móti minningargjöfum í síma 588-9390. Minningarsjóður Krabbameinslækninga- deildar Landspítalans. Tekið ervið minning- argjöfum á skrifst. hjúkrunarforstjóra í síma 560-1300 alla virka daga milli kl. 8 og 16. Utan dagvinnutíma er tekið á móti minning- argjöfum á deild U-E í síma 560-1225. Minningarkort Minn- ingarsjóðs Maríu Jóns- dóttur flugfreyju eru fá- anleg á eftirfarandi stöðum: Á skrifstofu Flugfreyjufélags ís- lands, s. 561-4307/fax 561-4306, hjá Halldóru Filippusdóttur, s. 557- 3333 og Sigurlaugu Halldórsdóttur, s. 552- 2526. Minningarkort Minn- ingarsjóðs hjónanna Sigríðar Jakobsdóttur og Jóns Jónssonar á Giljum í Mýrdal við Byggðasafnið í Skógum fást á eftirtöldum stöð- um: I Byggðasafninu hjá Þórði Tómassyni, s. 487-8842, íMýrdalhjá Eyþóri Ólafssyni, Skeið- flöt, s. 487-1299, í Reykjavík hjá Frí- merkjahúsinu, Laufás- vegi 2, s. 551-1814 og hjá Jóni Aðalsteini Jónssyni, Geitastekk 9, s. 557-4977. Slysavarnafélagið Landsbjörg, Stangarhyl 1,110 Reykjavík. S. 570 5900. Fax: 570 5901. Netfang: slysavarna- felagid@landsbjorg.is Minningarkort Rauða kross íslands eru seld í sölubúðum Kvenna- deildar RRKÍ á sjúkra- húsum og á skrifstofu Reykjavíkurdeildar, Fákafeni 11, s. 568- 8188. Minningarkort Hvíta- bandsins fást í Kirkju- húsinu, Laugavegi 31, s. 562-1581, hjá Kristínu Gísladóttur, s. 551-7193, og Elínu Snorradóttur, s. 561-5622. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 669 1222, auglýsingar 669 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 1.900 kr. í mánuði innanlands. I lausasölu 150 kr. eintakið. VELVAKAJVÐI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Nagladekk MIG langar að koma á framfæri athugasemd í sambandi við að nú er verið að tala um að banna nagla- dekk. Ég held að það sé ekki hægt að banna nagla- dekk. Það er mikið af fólki sem býr t.d. fyrir utan bæ- inn og þarf á nagladekkjum að halda. Svo er það líka fólk sem er óöruggir bíl- stjórar og veitir ekki af að hafa nagla í dekkjunum. Er ekki hægt að koma upp ein- fóldum leyfum fyrir þá sem vilja nagladekk? Það væri t.d. hægt í samvinnu við dekkjaverkstæði að gefa út leyfi sem kostar kannski 1.000 til 1.500 kr. og að þeir sem ekki hafi leyfi geti ver- ið sektaðir um ca. 10.000 kr. Mér finnst að þeir sem aki á nagladekkjum þurfi að borga fyrir það, því það er vitað að nagladekk skemma malbikið. Sú saltdýrkun sem borg- aryfirvöld hafa, er kannski ekki alltaf af því góða. Það er þekkt aðferð hjá veit- ingastöðum, að til þess að kæla freyðivínsflösku er flaskan sett í fötu fulla af ís og síðan stráð salti yfir til að halda kuldanum í flösk- unni og mynda meiri kulda. Er ekki möguleiki að þetta geti átt sér stað á götum borgarinnar? Eg heyrði um rannsókn sem gerð var í Svíþjóð um saltdreifingu. Þar var verið að prófa að úða saltblöndu á göturnar og kom fram að hægt var að nota 40% minna salt á fermetra en með venjulegri dreifingu og það skilaði betri árangri. Boð og bönn eru ekki alltaf lausn á öllu en að taka skref í rétta átt getur kannski fært okkur nær lausninni. Björn Ingvar Einarsson. „Þjónum starfsfólk- inu, ekki almenningi“! JA hérna hér, öðruvísi mér áður brá! Hringt var á pósthús Is- landspósts á Grensásvegi að morgni Þorláksmessu (þar sem okkar þjónustu- pósthús var lokað) og spurst fyrir um jólapakka sem m.a. voru til barna. Þeir voru sendir frá Kaup- mannahöfn mánudaginn 18. desember sl. í A-pósti, sama dag og frá sama póst- húsi voru sendir pakkar á Selfoss og þeir voru þangað komnir 22. desember sl. Svarið sem stúlkan á pósthúsinu á Grensásvegi gaf, var orðrétt „Það er verið að þjónusta starfs- fólkið, ekki almenning"! Ég spyr, á hvaða leið er þjónusta einkavæðingar- innar? Valgerður Kristjánsdóttir. Dyrahald Border collie fæst gefins á gott heimili. 2ja ára góður, fallegur og vel alinn border collie fæst gefins. Sárvantar góða eig- endur. Upplýsingar í síma 698- 2822 eða 690-6040. Kettlingar fást gefins BLANDAÐIR skógarkett- lingar fást gefins. Uppl. í síma 695-1485. Mala er týnd MALA er hálfs árs gömul flekkótt, þrílit læða. Hún er svarbrún, hvít og gul. Mala kom ekki heim á Grettis- götu 12 þriðjudaginn 26. desember sl. Hún er með rauða endurskinsól með bjöllu og símanúmeri um hálsinn og eyrnamerkt. Þeir sem vita hvar hún er niðurkomin, hafi sam- band í síma 561-1285 eða 581-1043. 'ptflrgftwfflaMfr Krossgáta LÁRÉTT: 1 dreng, 4 dinguls, 7 seg- ir ósatt, 8 drekkur, 9 veiðarfæri, 11 forar, 13 karlfugl, 14 rotna, 15 dig- ur, 17 eymd, 20 amboð, 22 dylur, 23 básúna, 24 rás, 25 vagn. LÓÐRÉTT: 1 gösla í vatni, 2 huglaus, 3 mjöl, 4 úrræði, 5 hrammur, 6 græt, 10 sýð- ur, 12 beisk, 13 agnúi, 15 er í svefni, 16 aldurs- skeiðið, 18 rfkir yfir, 19 glitra, 20 grenja, 21 flatt- ur fiskur. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 grábölvað, 8 lýsir, 9 tugga, 10 gat, 11 tíðka, 13 ósatt, 15 hratt, 18 sakir, 21 enn, 22 glati, 23 örlar, 24 gleiðgosi. Lóðrétt: 2 ræsið, 3 borga, 4 Lottó, 5 angra, 6 hlýt, 7 satt, 12 ket, 14 sóa, 15 hagl, 16 aðall, 17 teiti, 18 snögg, 19 kolls, 20 rýrt. Víkverji skrifar... VÍKVERJI hafði hugsað sér að fara skynsamlega í jólin að þessu sinni. Gæta hófs í mat og drykk og halda öllum herkostnaði innan eðlilegra marka. Þetta gekk ekki eftir frekar en fyrri daginn. Vík- verji át yfir sig af jólarjúpunni og stemmningin í miðbænum á Þorláks- messu virkaði göfgandi og örvandi á gjafrnildi Víkverja. Ekki það að Víkverji sé einhver nánös og sjái eftir peningunum sem hann eyddi í jólagjafir. Síður en svo. Víkverji telur sig hafa gefið vand- aðar og nytsamar jólagjafir að þessu sinni. I pökkunum frá honum var ekkert sem getur talist „fánýtt glingur" enda er Víkverji þeirrar skoðunar að hver sé sínum gjöfum líkastur. En það er vel hægt að gefa fallegar gjafir sem gleðja, án þess að setja sig á hausinn í leiðinni. Víkverji ætlar að reyna að muna það næst. XXX VÍKVERJI ákvað strax í byrjun desember að reyna að haga lífi sínu með eðlilegum hætti í þessum varhugaverða jólamánuði, þótt vissulega sé freistandi að fá sér brjóstbirtu í sótsvörtu skammdeg- inu. Víkverji forðaðist sem sagt öll jólateiti, jólaglögg og jólahlaðborð, enda þeirrar skoðunar að jólamat eigi menn ekki að borða fyrr en á jól- unum. Víkverji gekk jafnvel enn lengra og forðaðist samneyti við vini og kunningja, sem reyndu að fá hann með sér út á galeiðuna rétt fyrir jól- in. Fyrir bragðið leið honum miklu betur í maganum yfir þessi jól en oft- ast áður og hann fann gott bragð af jólamatnum. Víkverji ákvað að hlusta lítið sem ekkert á útvarp í desember, fyrst og fremst til að forðast auglýsinga- skrumið, og einnig til að hlífa sér við síbylju afbakaðra jólalaga. Þetta tókst að mestu leyti og þess vegna gat Víkveiji sungið jólalögin af hjartans lyst yfir hátíðirnar án þess að fá óbragð í munninn. Dagarnir fyrir jól voru líka mun afslappaðri og rólegri en oftast áður. Vegna breyttra aðstæðna í fjöl- skyldunni féll hið árlega jólaboð á jóladag niður að þessu sinni og Vík- verji upplifði það í fyrsta sinn í þijá- tíu ár að slappa af heima hjá sér á jóladag. Hann lá lengi frameftir og las í þriðja bindi ævisögu Einars skálds Benediktssonar. Síðan fór hann í langan göngutúr. Hann var líka kominn snemma í bólið á jóla- dagskvöld og hélt áfram að lesa í Einari Ben. Þetta var afskaplega þægileg og ánægjuleg tilbreyting. XXX ÍKVERJI hefur ekkert heyrt um það talað að menn ætli að hafa sérstakan viðbúnað nú um ára- mótin í tilefni af því að ný öld gengur nú loksins í garð, eftir talsvert japl, jaml og fuður. Ef Víkverji man rétt var hins vegar mikið um dýrðir í fyrra um gjörvalla heimsbyggðina, en líklega var það bara vegna þess að talan „tveir“ kom í stað tölunnar „einn“ fremst í ártalinu. Mönnum fannst eitthvað sérstakt við það. Síst af öllu vill Víkverji vekja upp þær hvimleiðu deilur, sem tröllriðu fjöl- miðlum um þetta leyti í fyrra, um það hvort miða ætti við núll eða einn sem upphafstölu og þá um leið hvort aldamótin hafi verið í fyrra eða verði nú, þegar árið 2001 gengur í garð. Spekingamir hafa líka kveðið upp sinn úrskurð og þar sem Víkveiji hefur ávallt borið djúpa virðingu fyr- ir lærdómi og menntun sættir hann sig við úrskurð þeirra, að minnsta kosti á yfirborðinu. Víkverji er samt ekki í neinu stuði til að halda sér- staklega upp á aldamótin nú um ára- mótin enda finnst honum lítil stemmning vera fyrir því. Þvert á móti ætlar Víkverji að reyna að fara skynsamlega í áramót- in að þessu sinni. Hann hefur til dæmis ákveðið að sleppa því að eyða mörg þúsund krónum í flugelda og knöll, eins og venjan hefur verið. Þess í stað ætlar hann að fara út á svalir heima hjá sér á gamlárskvöld og fylgjast með nágrönnunum kveikja í peningunum sínum gólandi eins og vitfirringar. Á meðan ætlar Víkveiji að hugsa um hvað hann get- ur gert fyrir alla peningana sem hann sparaði í flugeldakostnaði að þessu sinni, þótt sjálfsagt fari þeir allir upp í jóla-greiðslukortareikn- inginn sem áður er getið. En eins og danskurinn segir: „Den tid, den sorg.“ Víkverji óskar öllum landsmönn- um, nær og fjær, árs og friðar og far- sældar á nýrri öld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.