Morgunblaðið - 30.12.2000, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000 39
BaMHMHMMMMMMMHMMMMMaHMMHMMBMMBMMBMHH^^^^^^^HBBB.v
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Hilmir Snær Guðnason og Stefán Karl Stefánsson í hlutverkum sínum í leikritinu Með fulla vasa af grjóti.
í júní 1999. Skömmu síðar var sýn-
ingin flutt til Dublin og í ágúst á Ed-
inborgarhátíðina víðfrægu. Þai-
skipti engum togum að verkið sló
rækilega í gegn, og var það frum-
sýnt í New Ambassadors-leikhúsinu
á West End í London í maí 2000.
Skömmu fyrir frumsýningu verksins
á Islandi léku leikai'arnir í upphaf-
legu sýningu í síðasta sinn í London,
þai- sem þeir eru á leið til Toronto í
Kanada, en þar verður fhnm vikna
„upphitun“ áður en Með fulla vasa af
grjóti lendir á Broadway.
„Endurskriftin fólst í því að gera
leikritið aðgengilegra fyrir stærri
hóp áhorfenda. Upphaflega gerðin
lagði meiri áherslu á hinar írsku
andstæður milli norðurs og suðurs. í
vissum skilningi má segja að verkið
hafi verið pólitískara. Við drógum úr
því og lögðum meiri áherslu á hinn
mannlega þátt, tengslin á milli
Charlie og Jakes og sambandið á
milli þeirra. Þegar leikritið var
frumsýnt í þessari gerð í London
sagði Trevor Nunn leikhússtjóri
Konunglega breska þjóðleikhússins
að þetta væri „stórt leikrit í litlum
umbúðum“.“
Persónur verksins eru mai’gar og
skrautlegar, Hollywoodstjarnan
Caroline Guiseppi, leikstjórinn, að-
stoðarleikstjórinn, skriftan, lífvörð-
ur stjörnunnar, ýmsir þorpsbúar og
svo auðvitað náungarnir Charlie og
Jake sem koma frá sitt hvorum
hluta írlands, Charlie að norðan frá
Belfast og Jake er heimamaður. í
allt eru persónurnar 14 en leikararn-
ir aðeins tveir. Þeir Hilmir Snær
Guðnason og Stefán Karl Stefánsson
fara með öll hlutverkin og hafa fátt
sér til aðstoðar, enga sviðsmynd,
engin gervi, enga leikmuni, aðeins
líkama og rödd sem þeir beita til
hins ýtrasta svo hver persóna verð-
ur Ijóslifandi, hvort sem er karl- eða
kvenkyns.
Ian segir að það komi sér á óvart
hversu vel verkið þoli þýðingu yfir á
annað tungumál. „Eitt af grundvall-
aratriðum verksins er hreimur og
mállýska persónanna. Á hinu breska
menningarsvæði hefur hreimur
mjög skýra menningarlega og
félagslega vísun. Þegar þú heyrir
hreim viðkomandi þá staðsetur þú
hann ósjálfrátt félagslega, menning-
arlega og stéttarlega. Þetta skilst
mér að sé ekki til staðar hér á Is-
landi. Það er einmitt ánægjulegt að
sjá að verkið skuli þola þetta og að
persónur verksins séu nógu skýrt
mótaðar til að einkenni þeirra hald-
ist án þess að öll áhersla sé á þennan
eina þátt. Lykilatriði í þessu er auð-
vitað hvað leikararnir tveir eru fjöl-
hæfir og snjallir."
Ian fer mörgum fögrum orðum
um samstarfið við Hilmi Snæ og
Stefán Karl og segir að mikilvægast
af öllu sé sambandið á milli þeirra
tveggja. „Þeir þurfa að kunna allt
leikritið báðir. Það er ekki nóg að
kunna sitt hlutverk og láta hinn um
sitt. Ég hef sagt við þá að þetta sé
líkt því að leika tvo einleiki samhliða.
Þeir verða að vera með á nótunum
hvert einasta augnablik sýningar-
innar, annars dettur botninn úr
henni. Þeir mega heldur ekki fara
fram úr sjálfum sér. Ekki fara að
hugsa framfyrir sig. Þá missa þeir
tökin á augnablikinu og þá er ein-
beitingin líka horfin." Stefán Karl
sem setið hefur hjá okkur kinkar
ákafur kolli við þessu og bætir því
við að hann hafi misst einbeitinguna
eitt augnablik á aðalæfingunni og
hann hafi bókstaflega séð _ skelf-
inguna í augum Hilmis. „Á eftir
fannst okkur að þetta hefði staðið í
heila mínútu en það voru ekki nema
svosem tvær sekúndur." Ian segir
að báðir hafi þeir Hilmir og Stefán
sterka tilfinningu fyrir áhorfendum
og það sé greinilegt að þeir hafi tals-
verða reynslu. „Þeir eru greinilega
mjög ólíkir leikarar og hafa fengist
við ólíka hluti. En mér skilst að þeir
séu með þessu að takast á við nýja
hluti hvor fyrir sig og þeir hafa sagt
mér að þetta sé bæði ögrandi og
spennandi fyrir þá.“ Undir þetta má
sannarlega taka og líklega á Ian hér
við að Charlie sem Hilmir leikur er
kómískari persóna og undirgefnari
en Jake sem Stefán Karl leikur, en
eins og alþjóð veit þá hefur Hilmir
Snær ekki síst skapað sér orðstír
sem framúrskarandi dramatískur
leikari og Stefán Karl hefur á
skömmum tíma skipað sér í hóp
fremstu gamanleikara þjóðarinnar.
Björn Gunnlaugsson er aðstoðar-
leikstjóri við sýninguna og hefur
borið talsverðan þunga af æfingum
þar sem Ian hafði ekki tök á að vera
við æfingar nema í upphafi og við lok
æfingatímans. „Strákarnir hafa
staðið sig með sóma og klárað sig vel
af þessu,“ segir hann og er greini-
legt að hann hefur náð góðu sam-
bandi við þá þremenninga Björn,
Hilmi og Stefán. Leikmynd og bún-
ingar eru höndum Elínar Eddu
Árnadóttur og lýsingu hannar Ás-
mundur Karlsson. Frumsýningin er
í dag á Smíðaverkstæðinu kl. 16 og
síðan verður haldið áfram af fullum
krafti eftir áramótin.
Stj örnukórstónleik
ar á Ingólfstorgi
Sá yngsti, ísak Ríkharðsson (7 ára),
hóf einsönginn en við tóku Bfrkir
Örvarsson og Steinn E. Jónsson, er
voru töluvert eldri en ísak. Allir
sungu þeir mjög fallega, hver sitt
erindi, og kórinn tók svo undir í
viðlaginu. Létt og fjörugt lag frá
Vestur-Indíum, Boðskapur Lúkas-
ar, var hressilega sungið af kór og
einsöngvara, er var Axel Ingólfs-
son.
Lokakafli tónleikanna var sam-
söngur Drengjakórsins og eldri
félaga ásamt Garðari Thor Cortes
sem einsöngvara. Lögin voru Panis
angelicus eftir C. Franck, Ó, helga
nótt eftir A. Adam og Ave María
eftir Kaldalóns. Garðar Thor söng
þessi lög mjög fallega, sérstaklega
Panis angelicus. „Samkórinn" var
mjög góður og mátti heyra, að í
eldri félögunum eru efnilegir söng-
menn. Drengjakórinn er mjög fal-
lega hljómandi og hljómmjúkur og
syngur af töluverðu öryggi undir
stjórn Friðriks, enda stendur að
þessu með honum gott tónlistarfólk,
píanóleikarinn Peter Máté og Björk
Jónsdóttir, sem raddþjálfar kórinn
og á sinn þátt í fallegum hljómi
hans.
Jón Ásgeirsson
MENNINGARÁRIÐ verður kvatt
með Stjörnukórstónleikum á Ingólfs-
torgi laugardaginn 30. desember kl.
14.
I Stjömukórnum sameinast 17 kór-
ar; kirkjukórar, skólakórar-, karlakór-
ar, kvennakórar og blandaðir kórar
frá Reykjavík og nágrannabyggðum,
og munu kórarnir syngja út menning-
arborgarárið.
Hver kór syngur tvö til þrjú lög og
kl. 15.45 sameinast kóramir í einum
stærsta kór, sem sungið hefui- í borg-
inni, segir í fréttatilkynningu.
Stjörnukór Menningarborgarinnar
er samansettur úr rúmlega 600 rödd-
um, sem kveðja árið með áramóta- og
nýárssöngvum.
Kórarnir sem koma fram em:
Borgai'kórinn, stjórnandi Sigvaldi
Snær Kaldalóns; Barna- og unglinga-
kór Hallgrímskirkju, stjórnandi er
Bjarney Ingibjörg Gunnlaugsdóttir;
Mótettukór Hallgrímskirkju, stjóm-
andi er Hörður Askelsson; Lögi'eglu-
kór Reykjavíkur undfr stjórn Guð-
laugs Viktorssonai’; Dómkórinn,
stjómandi er Marteinn H. Friðriks-
son; Söngfuglar - Kór félagsstarfs
aldraðra Reykjavík, stjórnandi er
Sigurbjörg Hólmgrímsdóttir; Kór
Menntaskólans í Reykjavík, stjóm-
andi Marteinn H. Friðriksson; Grad-
ualekór Langholtskirkju, stjómandi
Jón Stefánsson; Söngfélag Félags
eldi-i borgara í Reykjavík, stjórnandi
Kristín Pjetursdóttir; Skólakór Kái's-
ness, stjórnandi Þómnn Bjömsdóttir;
Kór Hafnarfjarðarkirkju, stjómandi
Nathalía Chow; Kór Snælandsskóla,
stjórnandi Heiðrún Hákonardóttir;
Kvennakór Hafnarfjarðar, stjómandi
Hrafnhildur Blomsterberg; Skólakór
Mosfellsbæjar, stjómandi Guðmund-
ur Ómar Óskarsson; Kór Hofsstaða-
skóla, stjórnandi Hildur Jóhannsdótt-
fr: Kór Flensborgarskólans í
Hafnarfirði, stjómandi Hrafnhildur
Blomsterberg; Karlakórinn Fóst-
bræðui', stjórnandi Ami Harðarson.
Dagski'ánni lýkm' með því að sungin
verða falleg áramóta- og nýárslög.
Yfiramsjón með tónleikunum hefur
Þórann Björnsdóttfr.
BÓKASALA 1 .-24. des.
Röð Titill/ Hofundur/ Útgefandi
1 Draumar á jörðu/ Einar Már Guðmundsson/ Mál og menning
2 Steinn Steinarr-Leit að ævi skálds/ Gylfi Gröndal/ JPV forlag
3 Einar Benediktsson III/ Guðjón Friðriksson/ Iðunn
4 Undir bárujárnsboga-Braggalíf,../ Eggert Þór Bernharðsson/ JPV forlag
5 Harry Potter og fanginn frá Azkaban/ Joanna K. Rowling/ Bjartur
6 Útkall uppá líf og dauða/ Óttar Sveinsson/ Islenska bókaútgáfan
7 Dís/ Birna Anna Björnsdóttir, Oddný Sturludóttir og Silja Hauksdóttir/ Forlagið
8 Myndin af heiminum/ Pétur Gunnarsson/ Mál og menning
9 Steingrímur Hermannsson III/ Dagur B. Eggertsson/ Vaka-Helgafell
10 Dóttir gæfunnar/ Isabel Allende/ Mál og menning
Einstakir fiokkar: ÍSLENSK OG ÞÝDD SKÁLDVERK
1 Draumar á jörðu/ Einar Már Guðmundsson/ Mál og menning
2 Dís/ Birna Anna Björnsdóttir, Oddný Sturludóttir og Silja Hauksdóttir/ Forlagið
3 Myndin af heiminum/ Pétur Gunnarsson/ Mál og menning
4 Dóttir gæfunnar/ Isabel Allende/ Mál og menning
5 Mýrin/ Arnaldur Indriðason/ Vaka-Helgafell
6 Oddaflug/ Guðrún Helgadóttir/ Vaka-Helgafell
7 Stúlkan sem elskaði Tom Gordon/ Stephen King/ Iðunn
8 Þögnin/ Vigdís Grímsdóttir/ Iðunn
9 Endurfundir/ Mary Higgins Clark/ Skjaldborg
10 Himininn hrynur/ Sidney Sheldon/ Skjaldborg
ÍSLENSK OG ÞÝDD LJÓÐ
1 í bláum skugga-Stuðmenn/ Þórarinn Óskar Þórarinsson/ Mál og mynd
2 Vetrarmyndin/ Þorsteinn frá Hamri/ Iðunn
3 Blómið sem þú gafst mér/ Nína Björk Árnadóttir/ JPV forlag
4 Hnattflug/ Sigurbjörg Þrastardóttir/ JPV forlag
5 Undir bláhimni-Skagfirsk.../ Bjarni Stefán Konráðsson safnaði/ Bókaútgáfan Hólar
6 Perlur úr Ijóðum íslenskra kvenna/ Silja Aðalsteinsdóttir valdi/ Hörpuútgáfan
7 Ský fyrir ský-Ljóð 1982 -1995/ Isak Harðarson/ Forlagið
8 Gullregn úr orðlist Guðbergs Bergssonar/ Soffía A. Birgisdóttir valdi/ Forlagið
9 Gullregn úr ástarljóðum íslenskra kvenna/ Gylfi Gröndal valdi/ Forlagið
10 Gimsteinar - Ljóð 16 höfunda/ Ólafur Haukur Árnason vaidi/ Hörpuútgáfan
ÍSLENSKAR OG ÞÝDDAR BARNA- OG UNGLINGABÆKUR
1 Harry Potter og fanginn frá Azkaban/ Joanna K. Rowling/ Bjartur
2 Matreiðslubók Latabæjar/ Ragnar Ómarsson/ Magnús Scheving
3 Ert þú Blíðfinnur? Ég er með .../ Þorvaldur Þorsteinsson/ Bjartur
4 Frelsun Berts/ Sören Olsson og Anders Jacobsson/ Skjaldborg
5 Harry Potter og leyniklefinn/ Joanna K. Rowling/ Bjartur
6 Mói hrekkjusvín/ Kristín Helga Gunnarsdóttir/ Mál og menning
7 Bert og bræðurnir/ Sören Olsson og Anders Jacobsson/ Skjaldborg
8 Eva & Adam-Kvöl og pína á Jólum/ Máns Gahrton/ Æskan
9 Kafteinn ofurbrók og ævintýri hans/ Dav Pilkey/ JPV forlag
10 Leikur á borði/ Ragnheiður Gestsdóttir/ Vaka-Helgafell
ALMENNT EFNI OG HANDBÆKUR
1 Undir bárujárnsboga-Braggalíf... / Eggert Þór Bernharðsson/ JPV forlag
2 Útkall uppá líf og dauða/ Óttar Sveinsson/ Islenska bókaútgáfan
3 ísland í aldanna rás-20. öldin 1900 -1950/ lllugi Jökulsson o.fl./ JPV forlag
4 Betri heimur/ Dalai Lama/ JPV forlag
5 20. öldin - Brot úr sögu þjóðar/ Ritstj. Jakob F. Ásgeirsson/ Nýja bókafélagið
6 Fyndnir íslendingar/ Hannes H. Gissurarson/ Nýja bókafélagið
7 20. öldin - Mesta umbreytingaskeið.../ Simon Adams o.fl./ Vaka Helgafell
8 Heimur vinsins/ Steingrímur Sigurgeirsson/ Salka / Morgunblaðið
9 Hálendið í náttúru íslands/ Guðmundur Páll Ólafsson/ Mál og menning
10 Fluguveiðisögur/ Stefán Jón Haístein/ Mál og menning
ÆVISÖGUR OG ENDURMINNINGAR
1 Steinn Steinarr-Leit að ævi skálds/ Gylfi Gröndal/ JPV foriag
2 Einar Benediktsson III/ Guðjón Friðriksson/ Iðunn
3 Steingrímur Hermannsson III/ Dagur B. Eggertsson/ Vaka-Helgafell
4 Engin venjuleg kona-Litríkt líf.../ Þórunn Valdimarsdóttir/ JPV forlag
5 Einn á ísnum/ Haraldur Örn Ólafsson/ Mál og menning
6 Svínahirðirinn/ Jeffrey Kottler og Þórhallur Vilhjálmsson/ JPV forlag
7 í hlutverki leiðtogans-Líf fimm .../ Ásdís Halla Bragadóttir/ Vaka-Helgafell
8 Seiður Grænlands/ Reynir Traustason/ Islenska bókaútgáfan ehf
9 Nærmynd af Nóbelsskáldi/ Ritsj. Jón Hjaltason/ Bókaútgáfan Hólar
10 Mynd af konu-Vilborg Dagbjartsdóttir/ Kristín Marja Baldursdóttir skráði/ Salka
Bókabúðir sem tóku þátt í könnuninni
Höfuðborgarsvæðið:
Bókabuð Máls og menningar, Laugavegi
Bókabúð Máls og menningar, Síðumúla
Bókabúðin Hlemmi
Bókabúðin Mjódd
Bóksala stúdenta, Hringbraut
Bónus, Holtagörðum
Bónus, Kjörgarði
Eymundsson, Kringlunni
Griffill, Skeifunni
Hagkaup, Kringlunni
Hagkaup, Skeifunni
Hagkaup, Spönginni
Penninn-Eymundsson, Austurstræti
Penninn, Kringlunni
Nettó, Mjódd
Bókabúðin Hamraborg, Kópavogi
Bónus, Kópavogi
Hagkaup, Smáratorgi
Penninn-Eymundsson, Hafnarfirði
Utan höfuðborgarsvæðisins:
Penninn-Bókabúð Keflavíkur, Kefiavík
Hagkaup, Njarðvík
Nettó, Akranesi
Kaupf. V-Húnvetninga, Hvammstanga
Samkaup, Egilsstöðum,
Tónspil, Neskaupstað Bónus, Akureyri
KÁ, Selfossi Hagkaup, Akureyri
Bókav. Jónasar Nettó, Akureyri
Tómassonar, ísafirði Penninn-Bókval, Akureyri
Samantekt Félagsvísindastofnunar á sölu bóka 1.- 24. des. 2000. Unnið fyrir Morgunblaðið,
Félag íslenskra bókaútgefenda og Félag bóka- og ritfangaverslana. Ekki eru taldar með þær
bækur sem seldar hafa verið á mörkuðum ýmiss konar á þessu tímabili, né kennslubækur.