Morgunblaðið - 30.12.2000, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Litlu munaði að þota með 400 manns færist
Oður farþegi reyndi
að taka stj órnina
Naírdbí. AFP, AP.
LITLU mátti muna að Boeing 747-
400 þota á vegum British Airways,
með tæplega 400 manns um borð,
færist á leið frá London til Nairobi
í Kenýa í gærmorgun. Lenti áhöfn-
in í átökum við mann sem réðst inn
í flugstjómarklefann og reyndi að
taka stjórnina, að því er flugfélagið
greindi frá.
Skelfingu lostnir farþegar hent-
ust til og frá um farþegarýmið er
þotan veltist um, að því er sjón-
arvottar sögðu. Eftir stutt áflog við
flugmennina, sem talið er að hafi
staðið í um tvær mínútur, var mað-
urinn, sem ráðist hafði inn í flug-
stjórnarklefann, yfirbugaður af
áhöfninni og farþegum. Þegar vélin
kom til Nairobi klukkan 7.10 í gær-
morgun að íslenskum tíma fylgdu
kenýskir lögreglumenn manninum
frá borði og á sjúkrahús.
Flugstjórinn, William Hagen,
sagði að einn áhafnarliði hefði
hjálpað sér að koma manninum út
úr flugstjómarklefanum og annar
áhafnarliði hefði náð stjórn á vél-
inni. „Með aðstoð nokkurra far-
þega tókst okkur að halda aftur af
þessum óboðna gesti,“ sagði Hag-
en. „Fyrir skjót viðbrögð sam-
starfsfólks míns og farþeganna
tókst að binda skjótan enda á þetta
atvik.“
Tók tvær dýfur
Um borð voru 379 farþegar, 16
flugliðar og þriggja manna áhöfn.
Var vélin í 35 þúsund feta hæð yfir
Afríku þegar atvikið átti sér stað.
„Þetta byrjaði eins og í rússíbana.
Flugvélin beygði skyndilega og
lækkaði flugið bratt. Öllum var
mjög brugðið, margir grétu og
margir æptu,“ sagði einn farþeg-
inn, Todd Engstrom, 41 árs læknir
frá Bandaríkjunum.
Annar farþegi, Benjamin Gold-
smith, sagði vélina hafa tekið tvær
dýfur. Eftir þá fyrstu hefði hún
stöðvast í andartak og „svo tók hún
aðra dýfu á furðulegan máta, fór
niður til vinstri ... og svo drapst á
hreyflunum."
Engstrom var á leið til Kenýa
ásamt konu sinni og tveim dætrum
til læknastarfa í sjálfboðavinnu.
Hann sagði að atvikið hefði átt sér
stað um klukkan fimm í gærmorg-
un, um það bil tveim tímum fyrir
lendingu.
„Það rákust allir upp í loftið,
[vélin] féll svo snöggt," sagði Kathi
Layborn, 18 ára breskur nemi.
Boeing 747-400 þota British Airways á Jomo Kenyatta-flugvelli í Naíróbí í gærmorgun.
Reuters
Kenýamaðurinn sem grunaður
er um að hafa ráðist til inn-
göngu í flugstjómarklefann.
„Það var eins og hún væri að
hrapa. Þetta var alveg hræðilegt,"
sagði vinkona hennar, Zoe
MeNaughton. Samkvæmt upplýs-
ingum flugfélagsins fótbrotnaði
einn áhafnarmeðlimur í látunum og
nokkrir farþegar meiddust lítillega.
Sjálfstýringin af
Engstrom sagði ennfremur að
farþegar á fyrsta farrými hefðu
sagt sér að maðurinn hefði farið
inn í flugstjórnarklefann, tekið
sjálfstýringuna af flugvélinni og
Todd Engstrom, bandarískur
læknir sem var meðal farþega
í vélinni.
glímt við flugmennina áður en
hann hafi verið yfirbugaður. Brit-
ish Airways hefur staðfest að sjálf-
stýringin hafi „farið af“ þegar at-
burðurinn gerðist.
Þá greindi flugfélagið ennfremur
frá því að maðurinn, sem réðst inn
í flugstjómarklefann, hafi bitið
flugstjórann, William Hagen, í ann-
að eyrað og fingur. Hagen er 53
ára og „einn reyndasti flugstjóri
félagsins, með 30 ára starfs-
reynslu".
„Geðsjúklingur um borð gekk
berserksgang,“ sagði Dola Indidis,
fulltrúi lögreglunnar í Kenýa.
Hefði maðurinn verið fluttur á
sjúkrahús í Nairobi þar sem hann
væri nú undir læknishendi. Að
sögn lögreglunnar er maðurinn 27
ára, frá Kenýa og kann að vera
haldinn geðsjúkdómi. Ekki væri
ljóst hvort hann yrði ákærður.
Að sögn nokkurra farþega var
flugstjóri þotunnar þeirrar skoð-
unar að maðurinn hefði verið van-
heill á geði. „Það kom brjálaður
maður inn í flugstjórnarklefann og
ætlaði að brotlenda vélinni og
fremja sjálfsvíg," höfðu farþegarn-
ir eftir flugstjóranum.
Féll um 10 þúsund fet
„Ég held að allir um borð hafi
talið að vélin væri um það bil að
farast,“ sagði Goldsmith við frétta-
stofu Sky-sjónvarpsins. „Fullorðnir
karlmenn voru æpandi. Fólk bað
bænir.“
Goldsmith bætti við að flugstjór-
inn hefði sagt að fimm til tíu sek-
úndur til viðbótar hefðu þýtt að
flugmaðurinn hefði ekki getað náð
stjórninni aftur því að [vélin] var
næstum komin á bakið.“
Meðan á ryskingunum stóð hafi
„alger skelfing" ríkt um borð.
Sagði Goldsmith að sér hafi skilist
að þotan hafi fallið um tíu þúsund
fet, sem eru rúmir þrír kílómetrar.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti fer ekki til Norður-Kóreu
Samningar um eld-
flaugamál bíða Bush
Washington. AP, AFP.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
lýsti því yfir á fimmtudag, að ekkert
myndi verða úr því að hann færi í op-
inbera heimsókn til Norður-Kóreu
áður en hann lætur af embætti. Úr
þessu yrði það að verða hlutverk arf-
taka hans, George W. Bush, að ná
meiri árangri í að semja við komm-
únistastjórnina í þessu einangraða
Iandi um frekari hömlur við eld-
flaugavopnaáætlun hennar.
Á blaðamannafundi í Hvíta húsinu
sagðist Clinton hafa tjáð Bush að
þær þrjár vikur sem hann ætti eftir í
embætti dygðu honum einfaldlega
ekki til að ljúka málinu með full-
nægjandi hætti.
Clinton gaf út yfirlýsingu, þar sem
fullyrt er að „nægileg árangursvon"
fælist í þeim samningaviðræðum
sem ríkisstjórn Clintons hefði komið
af stað við stjórnina í Pyongyang um
smíði eldflaugavopna og dreifingu
slíkrar tækni til að það borgaði sig að
halda þeim áfram. „Bandaríkin eiga
augljósra hagsmuna að gæta í því að
viðræðunum sé fylgt eftir,“ sagði
Clinton.
„Ég hef trú á því að stjórnin sem
tekur við muni geta komið þessu
samkomulagi í höfn,“ sagði Clinton.
„Ég reikna með gagnkvæmum heim-
sóknum [æðstu ráðamanna
ríkjanna]. Ég held að mikið muni
gerast sem muni gera heiminn mun
öruggari."
Clinton hefur lagt mikið uppúr því
í utanríkisstefnu sinni að ná árangri í
viðræðum við Norður-Kóreumenn.
Árið 1994, þegar fyrra kjörtímabil
Clintons var u.þ.b. hálfnað, náði
stjóm hans samningum um að Norð-
ur-Kóreumenn hættu að vinna frek-
ar að þróun kjarnorkuvopna og
fengju í stað þess aðstoð frá Banda-
ríkjamönnum, Japönum og Suður-
Kóreumönnum við þróun friðsam-
legrar nýtingar kjarnorkunnar.
í síðustu viku sagði Madeleine Al-
bright, fráfarandi utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, að „raunverulegur
möguleiki" væri á því að Norður-
Kóreumenn gengjust inn á það að
setja hömlur við framleiðslu og út-
flutningi hemaðareldflauga og eld-
flaugatækni.
Ein ástæðan fyrir þróun hins um-
deilda eldflaugavamarkerfis Banda-
ríkjamanna er eldflaugavopnasmíði
Norður-Kóreumanna.
Danmörk
Börn með
meiri peninga
á milli handa
DÖNSK börn og danskir unglingar
hafa nú meiri peninga á milli handa
en nokkm sinni fym. Skýring þessa
er að æ fleiri sinna vinnu með skóla
auk þess sem foreldrar borga í sífellt
meira mæli fyrir hluti barna sinna.
Afleiðing þessa er sú að framleið-
endur merkjavöru og hljómflutn-
ingstækja hafa fengið augastað á
þessum hópi og er því spáð að þeir
eigi eftir að beina sjónum að börnum
í auknum mæli á næstunni.
,Áhugi auglýsenda á börnum hef-
ur alls ekki náð hámarki ennþá. Það
munu verða framleiddar vörur í
framtíðinni beinlínis fyrir böm,“
segir lektor Kennaraháskólans og
sérfræðingur í auglýsingum fyrir
böm, Birgitte Tufte, í samtali við
danska dagblaðið Politiken.
Hún bendir á að þær fjárhæðir
sem unglingar fá í fermingargjafir
séu orðnar mjög háar, algengt sé að
fá því sem svarar 200.000 ísl. kr. en
sumir fái allt að 600.000 ísl. krónum.
Það er einnig af sem áður var að
ætlast sé til þess af unglingum að
þeir greiði hluta af því sem þeir
vinna sér inn til heimilisins.
-------*-H-------
Meintur
vopnasali
segist vera
saklaus
Jerúsalem. AFP.
ARKADY Gaydamak, viðskiptajöfur
og milljarðamæi-ingur, sem frönsk
yfirvöld segja samsekan Jean-Christ-
opher Mitterand, syni forsetans fyrr-
verandi, í ólöglegri vopnasölu til Áng-
óla fyrir nokkram ámm, segist vera
saklaus. Gaydamak hefur leitað hælis
í Isi’ael að því er kemur fram í ísr-
aelska dagblaðinu Haaretzí gær.
Mitterand var handtekinn í síðustu
viku og er verið að rannsaka hvort
hann hafi þegið milljónir að gjöf frá
Pierre Falcone, forstjóra vopnafyrir-
tækisins Brenco, í tengslum við söl-
una. Falcone hefur einnig verið hand-
tekinn.
Gaydamak segir í viðtali við Haar-
etz að hann sé eftirlýstur vegna
skattsvika en ekki vopnasölu af
frönsku ríkisstjórninni. Hann sé þó
saklaus af öllum ákærum. Hann bæt-
ir við að lögfræðingar hann séu í
sambandi við frönsk yfirvöld og að
hann muni snúa aftur til Frakklands í
lok janúar. Gaydamak, sem fæddist í
Rússlandi, hefiu- vegabréf frá fjómm
löndum, Frakklandi, ísrael, Kanada
og Angóla. Gaydamak segir að rann-
sóknin á vopnasölunni sé hluti valda-
baráttu franska forsætisráðherrans
Jospins og Chiracs forseta, en per-
sónulegar árásir á sig miðist að rúss-
neskum gyðingi sem hafi gert það
gott í fjármálum og segir að hafi verið
reynt að láta líta út fyrir að hann sé
rússneskur njósnari eða í mafíunni.
-----------------
Áramótin
Varað við
tölvuþrjótum
Washington. AFP.
BANDARÍSK stofnun, er annast
varnir gegn tölvuglæpum, varaði á
fimmtudag fyriríæki og einstaklinga
við því að tölvuþrjótar myndu freist-
ast til að nota frídaga um áramótin
til að brjótast inn í tölvukerfi.
Einkum er talin mikil hætta á að
tölvuþrjótar ofhlaði kerfi með því að
senda aragrúa fyrirspurna sem á
endanum valda því að kerfið hættir
að svara. Gefin em ýmis ráð, t.d. að
forðast að opna tölvupóst frá óþekkt-
um sendanda, endurnýja veimvarnir
og slökkva á tölvum sem enginn fylg-
ist með yfir helgina.