Morgunblaðið - 30.12.2000, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
l
LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000 41
UMRÆÐAN
Tímamót í grunnrann-
sóknum á Islandi?
Á ÖLDINNI sem er að líða hefur
atvinnulíf vestrænna þjóða tekið
miklum stakkaskiptum, breyst frá
einfaldri nýtingu náttúruauðlinda í
flókinn þekkingariðnað sem hvílir að
miklu leyti á hugviti og afrakstri
rannsókna. Helstu einkenni þessarar
þróunar sem blasa við öllum eru upp-
lýsingabyltingin og tölvuvæðingin
sem eru afleiðing örra framfara í raf-
eindatækni. Öll sú tækni hvílir á ein-
faldri rafrás, smáranum, sem leit
dagsins Ijós árið 1948 og mætti með
þessum ríkjum blasir löng og þyrn-
um stráð leið til framfara án sinna
bestu þegna. í Bandaríkjunum settu
báðir stóru flokkamir rannsóknir og
þróun á oddinn í nýliðnum forseta-
kosningum. Þar hafa mikilvæg ríki á
borð við Kaliforníu létt á takmörk-
unum á innflutningi menntafólks af
ótta við að standast ekki samkeppni í
hátækniiðnaði með innlendu vinnu-
afli einu saman. Það er eftirtektar-
vert að ungir vísindamenn sem nú
streyma til Bandaríkjanna koma
ekki einungis frá Asíu og austurhluta
Evrópu heldur frá löndum á borð við
Bretland.
Eg hef undanfarin ár tekið eftir
viðhorfsbreytingu íslenskra náms-
manna í framhaldsnámi til framtíð-
arstarfa á erlendum vettvangi. Þrátt
fyrir framfarir (og jafnvel byltingu) á
flestum sviðum rannsókna og þróun-
ar á íslandi og aukins vægis þekk-
ingar og hátækni í framleiðslu virðist
sem æ fleiri hámenntaðir einstak-
lingar geti allt eins hugsað sér fram-
tíðarstörf erlendis. Þannig blasir við
ný víglína í byggðarstefnu á Islandi.
En hvernig bregst þekkingarþjóð-
félag við skorti á mannauði? Einung-
is með hiklausri sókn í rannsóknum
og rannsóknatengdu námi sem ekki
ber sýnilegan ávöxt fyrr en löngu eft-
ir upphaf sitt, því menntun á flestum
sviðum nútímatækni og vísinda er að
minnsta kosti tíu ára ferli.
Höfundur erformaður Rann-
sóknarráðs íslands og prófessor.
i^Nýtt - riýtt
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18.
Lau. frá kl. 11-16
KafFi
§olí
Ilafliði Pétur
Gíslason
gildum rökum nefna uppgötvun ald-
arinnar. Það vii'ðist ekki vera tiivilj-
un að síðustu Nóbelsverðlaun 20. ald-
ar í eðlisfræði voru á dögunum veitt
fyrii' þróun arftaka smárans annars
vegar og hins vegar hönnun samrása
í tölvum. Framtíðin mun eílaust bera
í skauti sér samtvinnun tölvu- og
erfðatækni, en erfðavísindi eru hvati
helstu vaxtarbrodda hátækninnar á
síðustu ánim líðandi aldar eins og ís-
lendingar hafa orðið vitni að. Senni-
Rannsóknir
Hvernig, spyr Hafliði
Pétur Gíslason, bregst
þekkingarþjóðfélag við
skorti á mannauði?
lega mun ný öld einkennast í jafn rík-
um mæli af þróun á þessu sviði og
tölvutækni hefur einkennt síðustu
áratugi líðandi aldar.
Hvernig bregðast svo þjóðir hins
vestræna heims við djörfum kröfum
þekkingarþjóðfélagsins? í flestum
tilvikum með stóraukinni áherslu á
grunnrannsóknir sem hafa langtíma-
sjónamið að leiðarljósi. Menn reyna
að sjá fyrir þarfir þjóðfélagsins á
fyrstu áratugum aldaiinnar, mæta
væntingum sem hugsanlega hafa
ekki enn verið skilgi'eindar. Þetta
verður ekki gert nema með menntun
þeirra kynslóða sem takast eiga á við
verkefnin, vísinda- og tæknimanna
framtíðarinnar. Víðast hvar er stórfé
varið til þessara framtíðarþarfa,
enda eðlilegt þar sem auðlegð þjóð-
anna ræðst af því fjöreggi sem
menntun þegnanna skapar. Sem bet-
ur fer gegnir svipuðu máli um Islend-
inga, fjárveitingar til grunnrann-
sókna fara vaxandi og í fjárlaga-
frumvarpi næsta árs er framlag til
rannsókna á háskólastigi og rann-
sóknasjóða Rannsóknarráðs íslands
aukið myndarlega með væntingum
um þríggja ára átak í þessum málum.
Vonandi er þetta einungis upphaf-
ið að nýjum áherslum á menntun og
rannsóknir á Islandi. Það getur ekki
verið tilviljun að stórar og smáar
grannþjóðir Islendinga hafa flestar
valið sömu leið, stórátak í gninn-
rannsóknum til að auka eigin viðbún-
að við síharðnandi samkeppni um
menntaða einstaklinga. Það er ekki
víst að allir geri sér Ijóst hversu
landamæri skipta litlu máli í þekk-
ingarflæði nútímans. Þannig hafa
mörg lönd fyrrverandi Eystrasalts-
bandalagsins hálftæmst af ungum
vísindamönnum, einkum á sviði
tækni og raunvísinda, vegna mikillar
ásóknar ríkari granna í vestri. Við
RIFJAÐU UPP ÁRIÐ 2000 Á mbl.ÍS
Á mbl.is finnur þú fréttaannál fyrir árið sem er að líða
með úrvali frétta og fréttaljósmynda.
pt:'' 'Á —1
I'f
frrr. 4, :W l'i
\ f*»tn t % V
\ fll ■i. "ttýizifrf
FRÉTTAANNÁLL Á
mbl.is