Morgunblaðið - 30.12.2000, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000 57
BRÉF TIL BLAÐSINS
Tvöföldun
Reykjanesbrautar
Frá Sigurgeiri Þoi-valdssyni:
MIKIÐ hefur verið fjasað um tvö-
földun Reykjanesbrautarinnar að
undanförnu og vilja margir að
framkvæmdir verði hafnar, ekki
seinna en strax. En er það nokkur
lausn á vandanum; hinum tíðu
slysum að undanförnu, þótt braut-
in verði tvöfölduð? Þá fyrst geta
hinir ungu og ábyrgðarlitlu ung-
lingar, sem vart eru vaxnir upp úr
leikjum sínum með „Matsboxbíla"
og líta enn á alvörubílana sem leik-
föng, farið að „kitla pinnann" svo
um munar, „gefa í á fullu“ og láta
hvína í hjólbörðunum. Nei, slys-
unum mundi ekki fækka, þótt
Reykjanesbrautin yrði fjórfölduð,
á meðan ekki er hægt að koma því
inn í höfuðið á fólki, að eina ráðið
til að koma í veg fyrir slysin, er að
aka örlítið hægar og einbeita sér
betur að akstrinum. Hraðinn og
tillitsleysið í umferðinni, hvar sem
er á landinu, á mestan þátt í hin-
um fjölmörgu slysum, sem verða á
ári hverju. Haldið þið virkilega,
landsmenn góðir, að aldrei mynd-
aðist hálka eða hálkublettir á nýju
brautinni, sem yrði þess valdandi
að bílar færu þversum á veginum
og rynnu í veg fyrir aðra, sem
færu í sömu átt, kannski með
skelfilegum afleiðingum? Ég bara
spyr í fávisku minni! En þótt ég sé
ekki alvitur, vaknaði hjá mér prýð-
is hugmynd, einn góðan veðurdag,
sem felst í því, að koma fyrir veg-
legum hindrunum á núverandi
Reykjanesbraut, með 1 km milli-
bili, á leiðinni frá Hafnarfirði til
Keflavíkur. Þetta yrðu samtals 30
hindranir. Auðvitað yrðu þær að
vera vel merktar, á fleiru en einu
tungumáli, til að koma í veg fyrir
að ókunnugir brytu allt undan bíl-
um sínum, með því að aka óvar-
lega yfir þær. Vitanlega mætti
fækka hindrununum niður í 15,
með því að hafa 2 km á milli og
jafnvel 10, með því að hafa 3 km á
milli. En þótt þær yrðu ekki fleiri
en það, mundu þær valda því, að
hraðinn minnkaði verulega og
slysum fækkaði til muna. En að
vísu mundu þessar hindranir
skapa einhver vandamál, sem fæl-
ust aðallega í því, að þegar mikill
snjór væri á brautinni, ættu
stjórnendur snjóruðningstækja
erfiðara með að komast hratt
áfram og yrðu að hægja verulega á
ferðinni við hindranirnar, sem
merkja mætti með blikkandi ljós-
um, sitt hvoru megin vegarins, á
staurum, sem næðu l-2ja m hæð.
Onnur vandamál eru hverfandi lít-
il. Þetta mætti verða tilraunaverk-
efni og sjá, hvaða árangri það skil-
aði á næstu árum eða þar til ný
Reykjanesbraut verður á áætlun.
Það kann ekki góðri lukku að
stýra, þegar uppdópaðir og ölvaðir
unglingar setjast undir stýri á
„leikföngunum" sínum og aka
stefnu- og fyrirhyggjulaust út í
umferðina, með það eitt að mark-
miði, að komast sem hraðast áfram
og skeyta þá lítt um aðra vegfar-
endur. Stundum, þegar gott er
veður, ferðast ég fótgangandi á
nóttinni um helgar, meðfram
Hafnargötunni í Keflavík og verð
ósjaldan vitni að því, að ungir öku-
menn þeysast fram hjá mér á 150-
170 km hraða m/v klst. og oftar en
ekki eru tveir í kappakstri. Svo
hratt er ekið fram hjá mér að
ógjörningur er að greina númer
ökutækjanna og eins gott að vera
ekki of nærri akbrautinni þegar
þeir geysast hjá. Ekki má mikið út
af bera, þegar síkt ökulag er við-
haft. Ekki þarf meira til en hjól-
barði springi eða hemlar bili, til að
stórslys verði. En hver er tilgang-
urinn með slíku aksturslagi? Jú,
hinir ungu ökumenn vilja með
þessu sýna öðrum hversu „töff'
þeir séu og hversu kraftmiklum
„græjum“ (bílum) þeir hafi yfir að
ráða. í mörgum tilfellum eru hinir
ungu ökumenn með bifreiðar for-
eldra sinna að láni, sem hafa svo
ekki hugmynd um hvernig akst-
urslagi er beitt, nema eitthvað fari
úrskeiðis, en sem betur fer hefur
það ekki oft átt sér stað að und-
anförnu, hér á Hafnargötunni, svo
Frá Stefáni Hermannssyni:
í BRÉFI til Morgunblaðsins sem
birtist 15. desember s.l. frá fulltrú-
um foreldrafélags Álftamýrarskóla
og Hvassaleitisskóla er því lýst að
mikil þörf sé fyrir göngubrú á
þessum stað. Bréfið er að hluta til
samhljóða bréfi sömu aðila sem
sent var 7. nóvember s.l.
Af þessu tilefni er rétt að upp-
lýsa að erindið var lagt fyrir Sam-
göngunefnd Reykjavíkurborgar
þann 5. desember s.l. þar sem upp-
lýst var að forathugun á þessu
verki væri þegar hafin. Þar var
einnig minnt á að þegar deiliskipu-
lag vegna breikkunar Miklubraut-
ar var samþykkt fyrr á þessu ári
kom fram í umsögn um athuga-
mér sé kunnugt um. Þegar lög-
reglan í eftirlitsferð birtist skyndi-
lega, eru ungmennin fljót að hemla
niður og aka „eins og englar" þar
til lögreglan hverfur á brott, (til að
sinna öðrum verkefnum), þá er aft-
ur „geflð í“ og sama ástand skap-
ast.
Nei, Reykjanesbrautin í núver-
andi ástandi er ekki aðalsökudólg-
urinn hvað varðar stórslys á henni
heldur fyrst og fremst fífldirfska
og andvaraleysi ökumannanna
sjálfra, sem annaðhvort kunna
ekki eða vilja ekki aka eftir að-
stæðum hverju sinni. Sjálfur ek ég
oftast á 80 km hraða m/v klst. á
leiðinni til og frá Reykjavík, finnst
það þægilegur hraði við bestu að-
stæður og síðan axlirnar komu til
sögunnar, fer ég út á þær og vík
þannig fyrir umferðinni á eftir
mér, sér í lagi þegar þung umferð
er á móti. Fyrir aftan mig gæti
verið kona í barnsnauð eða einhver
sem þyrfti raunverulega að flýta
sér. Það munar ekki svo miklu,
hvort maður er 5 mínútum lengur
að komast á áfangastað, mestu
máli skiptir, að komast þangað
heill á húfi og með óskemmt far-
artæki!
Góðir landsmenn! Lærið af
reynslu annarra (eða reynsluleysi)
og akið eins og þið viljíð að aðrir
aki, þá mun ykkur vel farnast í
umferðinni!
SIGURGEIR ÞORVALDSSON,
Mávabraut 8c, Reykjanesbæ.
semdir að göngubrú á þessum stað
yrði sett framarlega ef ekki fremst
í forgangsröðun slíkra mannvirkja.
Kostnað vegna brúargerðarinn-
ar á Vegasjóður að bera að miklu
leyti, þar sem um brú yfir þjóðveg
er að ræða, en fjárveitingar á Veg-
áætlun til göngubrúa á höfuðborg-
arsvæðinu eru ekki merktar ein-
stökum verkum og í raun í heild
allt of lágar. Engu að síður verður
leitast eftir fjármögnun eins og
frekast er unnt.
Stefnt er að því að tillögur um
nákvæma staðsetningu og gerð
brúarinnar verði unnar á þessum
vetri.
STEFÁN HERMANNSSON,
borgarverkfræðingur.
Göngubrú yfír Miklu-
braut við Framheimilið
Yerðgildi ofar manngildi
Frá Hrönn Harðardóttur:
HVERT stefnum við eiginlega sem
þjóð? Er svo komið í okkar upplýsta
tæknivædda samfélagi að okkur
skiptir engu hvernig menntalegt
uppeldi og aðbúnað börn okkar fá.
Erum við svo upptekin að skara eld
að eigin köku að við gefum okkur
ekki tíma til að berjast fyrir grunn-
réttindum barna okkar.
Skiptir það okkur engu að fólk
leggi á sig margra ára nám eftir að
skyldunámi lýkur til að fræða ein-
staklinga og koma þeim til mennta.
Við eigum slíku fólki mikið að þakka.
Nú er nóg komið. Ár eftir ár kveður
við sama sagan, verkföll kennara og
flótti leikskólakennara í önnur störf.
Það þykir engum skrýtið sem vill sjá
það. Állir vita að laun kennara og
leikskólakennara eru í engu sam-
ræmi við menntun og ábyrgð. Hvar
er góðærið sem allir tala um, er ein-
ungis hægt að hækka laun ráðherra.
Hvernig væri að leiðrétta þetta
ójafnvægi og hækka laun þeirra í eitt
skipti þannig að þeir standi jafnfætis
öðrum stéttum með sambærilega
menntun. Við stærum okkur af því á
tyllidögum að eiga eitt besta
mennta- og heilbrigðiskerfi í heimi
en nú er svo komið að þaðan er stór-
tækur flótti, vegna launa. Ef litið er á
þetta í víðara samhengi má sjá að al-
mennt er ekki næg virðing borin fyr-
ir störfum sem lúta að mannlegum
samskiptum. Þetta getum við séð í
ýmsum umönnunarstörfum í kring-
um okkur. Ég held að flestir séu
sammála því að fólkið sem byggir
landið skipti meira máli en bygging-
arnar en sú forgangsröðun sést þó
ekki glöggt ef litið er á framkvæmd-
ir.
En hvort er dýrmætara, sá auður
sem við sköpum innra með okkur,
eða hinn veraldlegi? Er ekki rót
vandans sú að verðgildi er haft ofar
manngildi?
HRÖNN HARÐARDÓTTIR,
hjúkrunarfræðingur,
Tungubakka 6, Reykjavík.
Það er ekkert hundalíf að þurfa að dvelja í Hrísey.
Frábært hunda-
líf í Hrísey
Frá nokkrum hundaeigendum:
ÞÆR vinkonurnar Viktoría og Rósa
senda bestu kveðjur til Hríseyjar.
Þar afplánuðu þær stöllur sex vikna
einangrun á leið sinni frá Englandi
til framtíðarheimkynnanna á Fróni.
Þær voru í mjög góðu jafnvægi og
sáttar eftir dvölina og nú, þegar
hundaflóra Islands er þessum tveim-
ur úrvalstíkum ríkari, er full ástæða
til að þakka fyrir sig. Hríseyjardvöl-
in í einangrunarstöð gæludýra
reyndist henni Viktoríu okkar ofur-
boxer úrvalstími og var allt atlæti og
aðstoð frá stöðinni og Stefáni hunda-
bónda til mikillar fyrirmyndar. Vin-
kona Viktoríu, Rósa litla miniature
Yorkshire terrier, var ekki síður vel
haldin. Ef að einhverju mætti finna
voru þær fullvel haldnar, fordekrað-
ar og í þybbnara lagi þegar þær
kvöddu Hrísey. Á bryggjunni grétu
þær skilnaðartárum þegar þær
horfðu á eftir hundabóndanum vini
sínum.
Kærar þakkir, Stefán og þið á
Einangrunarstöðinni! Við stöndum
við bakið á ykkur í baráttunni fyrir
fleiri rýmum á stöðinni enda ófremd-
arástand að þurfa að bíða í 10-12
mánuði eftir einangrunarrými fyrif
heittelskaða heimilismeðlimi sem
hafa það eitt til saka unnið að vera á
fjórum fótum að jafnaði. Einangrun-
ardvölin er sjálfsagt öryggismál en
þarf að vera í boði þegar fólk og
skepnur þurfa á henni að halda og
með ámóta aðbúnaði og atlæti og
Hríseyjarstöðin býður upp á er vel
við unandi.
F.h. Viktoríu,
LILJA S. SIGURÐARDÓTTIR
MARGRÉTPÁLA
ÓLAFSDÓTTIR
F.h. Rósu,
RÚNAR GUÐBRANDSSON
SIGRÍÐUR E.
SIGURÐARDÓTTIR.
Ættingja leitað
Frá Einari Braga Bragasyni:
MAÐUR að nafni Howard Faber
var herlögreglumaður á Keflavík-
urflugvelli í kringum 1954. Hann
kvæntist íslenskri konu að nafni
Laufey Sigmundsdóttir. Þau eign-
uðust son, Wallie Mulder, og er
hann að leita að ættingjum sínum
hér á landi.
Hann biður þá sem kannast við
foreldra hans vinsamlega að hafa
samband við sig, annaðhvort með
því að skrifa bréf á neðanskráð
heimilisfang, eða senda tölvupóst.
WALLIE MULDER
4736 NE 17th Ave
PortlandOr 97211,
oregonwlf@aol.com
Fasteignasala tii sölu
Vel þekkt fasteignasala (nafn og viðskiptavild
m.m.) með áratuga reynslu.
Tilboð sendist augl.deild Morgunblaðsins fyrir kl.
17 5. janúar merkt: „Einstakt tækifæri — 10354“.
Skammt frá Hagaskóla
Endurnýjuð 5 herbergja íbúð, um 100 fm á 3. hæð
(efstu). Skipti möguleg á 2ja herb. íbúð (ekki jarð-
hæð), t.d. í lyftuhúsi.
Tilboð sendist auglýsingadeild Morgunblaðsins
fyrir 5. janúar nk. merkt: „Milliliðalaust — 10532“.
FISKBÚÐIN HAFBERG Gleðilegt
Gnoðarvogi 44, sími 588 8686 * * ár! *
Opið í dag, laugardag, frá kl. 9—14
STÓR HUMAR