Morgunblaðið - 30.12.2000, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 30.12.2000, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000 9 FRÉTTIR Jólagjöfum skipt Morgunblaðið/Jim Smart Loftpúðar blésu ekki út ÖSIN virðist lítið minnka í verslun- um þótt jólainnkaupin séu frá og skipta margir vörum milli jóla og ný- árs. I Eymundsson í Kringlunni voru bókastaflar á afgreiðsluborðinu þeg- ar ljósmyndara bar að garði og hóp- ur viðskiptavina beið afgreiðslu. „Það hefur verið líflegt,“ sagði Margrét Guðbergsdóttir, verslunar- stjóri í bókaverslun Eymundssonar í Kringlunni, um viðskiptin í gær. Hún var spurð hvort ákveðnum titl- um væri skipt umfram aðra og taldi að engin bók hefði tekið afgerandi forustu í þeim efnum. RANNSÓKN á banaslysinu á Reykjanesbraut 30. nóvember sl. þegar hjón á fimmtugsaldri og þrí- tugur karlmaður biðu bana heldur áfram. Ljóst er að loftpúðar við framsæti Peugeot-fólksbifreiðarinn- ar blésu ekki út við áreksturinn. Jóhannes Jensson, lögreglu- fulltrúi hjá lögreglunni í Keflavík, segir að ekki hafi verið tekin ákvörð- un um hvort hlutar bifreiðarinnar verða sendir út til rannsóknar. Hann gerir þó ráð fyrir að sérfræðirann- sókn fari fram á því hvers vegna loft- púðamir blésu ekki út. Grunnskólanum á Tálknafirði gefnar bækur Tálknafírði - Nýverið hélt For- eldrafélag grunnskólans fönd- urstund fyrir börn og foreldra en foreldrafélagið hefur staðið fyrir slíkum samkomum á aðventunni í mörg ár. Við þetta tækifæri færði Eygló Hreiðarsdóttir, fráfarandi formaður Foreldrafélags Grunn- skólans á Tálknafirði, skólanum bókagjöf. Bókaforlögin Vaka-Helgafell og Mál og menning styrktu félagið til verksins með því að ánafna því bókunum. Bækur sem nýtast skólanum vel Vaka-Helgafell gaf bækurnar fs- lensk hugsun í ræðu og riti í sam- antekt Jónasar Ragnarssonar og fslenskt orðtakasafn eftir Halldór Halldórsson. Mál og menning gaf bækumar íslensk samheitaorða- bók í riststjórn Svavars Sigmunds- sonar og Ensk-enska orðabók með íslenskum lykilorðum. Björk Gunnarsdóttir skólastjóri tók við bókunum og þakkaði gjöf- ina og þann hlý hug sem henni fylgdi. Sagði hún þessar bækur koma til með að nýtast skólanum og nemendum hans mjög vel. Morgunblaðið/Finnur. Eygló Hreiðarsdóttir afhenti Björk Gunnarsdóttur, skóla- stjóra Grunnskólans á Tálkna- fírði, bókagjöfína. Sex mánaða fangelsi fyrir ýmis auðg- unarbrot HÉ R AÐSDÓMUR Reykja- víkur hefur dæmt tæplega fimmtugan karlmann í sex mánaða fangelsi fyrir ýmis auðgunarbrot, aðallega inn- brot. Maðurinn neitaði sök að hluta í íyrstu en játaði síðan öll þau brot sem hann var kærður fyrir. Hjördís Hákon- ardóttir héraðsdómari kvað upp dóminn. Maðurinn var dæmdur fyrir þrjú innbrot og hylmingu á þýfi af gáleysi. Innbrotin voru framin á rúmum mánuði, frá 30. maí til 4. júlí sl. Þá var lið- ið rúmt ár frá þvi maðurinn var síðast dæmdur. Óslitinn sakaferill frá 1969 í dómnum segir að mað- urinn eigi að baki langan og óslitinn sakaferil sem hófst ár- ið 1969. Síðan þá hefur hann hlotið 35 refsidóma, einkum fyrir ýmiss konar auðgunar- brot, brot gegn umferðarlög- um, áfengislögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Mað- urinn hefur verið dæmdur til óskilorðsbundinnar fangelsis- vistar í samtals rúm 17 ár. Fínir áramótakjólar Útsalan hefst í dag Opið frá kl. 11-18 MORE* MORE A LIFE PHILOSOPHY Glæsibæ, sími 588 8050 Gleðilegt ár! Aramótafatnaður hiáXý€mfiituUi Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá Id. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00. Persta &y2y9cuvc [Borðstofustærðir] Sérverslun með stök teppi og mottur • Suðurlandsbraut 46 v.Faxafen • Sími 5686999 Áramóta- útsala á handhnýttum, austurlenskum gæðateppum á Grand Hótel? Sigtúni, Reykjavík, #| í dag, laugardag 30. desember, frá kl. 12-19 HÓTEb Allt að 45% afsláttur ef greitt er meó korti 5% aukaafsláttur við staðgreiðslu Verðdæmi Stærö Verð áður Nú stgr. Pakistönsk 60x90 cm 8.900 6.500 Pakistönsk ca 90x150 cm 29.800 18.700 Rauður Afghan ca 200x260 cm 77.400 58.800 Indversk Gabbeh ca 200x300 cm 49.400 25.500 og margar fleiri gerðir af afghönskum, tyrkneskum og persneskum teppum. RAÐGREIBSLUR REYKJAVIK sími 861 4883
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.