Morgunblaðið - 30.12.2000, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 30.12.2000, Blaðsíða 27
MORGUNB LAÐIÐ ERLENT LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000 27 Tugir farast í ferjuslysi AÐ minnsta kosti 60 manns fórust og margra er enn sakn- að eftir að íljótaferja með 400 manns um borð sökk í gær eft- ir árekstur við aðra ferju á ánni Meghna í suðaustur Bangla- desh í gær. Að sögn lögreglunnar í Chandpur, sem er um 100 km frá Dhaka, var svartaþoka þeg- ar ferjurnar skullu saman. Um 100 manns hefur verið bjargað. Ferjan sem sökk hefur verið dregin upp og fundust ekki fleiri lík um borð í henni. Hin ferjan komst heilu og höldnu til Dhaka. Áhöfn henn- ar verður yfirheyrð af lög- reglu. Leiðtogi aðskilnaðar- sinna snýr aftur til Kasmír LEIÐTOGI aðskilnaðarsinna í Kasmír, Hashim Quershi, kom til Indlands í gær frá Kaup- mannahöfn og var þegar tek- inn höndum af lögreglu. Quershi hefur verið eftirlýstur af indversku lögreglunni síðan 1971 vegna flugráns vélar Ind- ian Airlines. Hann er einn af stofnendum Frelsishreyfingar Jammu og Kasmír sem fylgir Pakistan að málum. Quershi sagði ástæðu þess að hann snýr við vera þá að hann styddi friðarumleitanir Atal Behari Vajpayee, for- sætisráðherra Indlands, sem lýsti yfir einhliða vopnahléi í Kasmír í lok nóvember. „Ég kom hingað til að styðja frumkvæði Vajpayee í friðar- málum," kallaði Quershi í átt að blaðamönnum á flugvellium í gær. „Við viljum binda enda á kúgun og blóðsúthellingar í Kasmír ... Við viljum sjálfstætt Kasmír og þess vegna er ég hér.“ Quershi varð frægur er hann rændi flugvél Indian Airlines á leið milli Srinagar og Jammu. Flugvélin var síðar sprengd í loft upp á Lahore-flugvellinum í Islambad. Quereshi sat inni í Pakistan í níu ár og þrjá mánuði fyrir verknaðinn en hefur búið í Amsterdam sl. 14 ár. Enn deilt í tékkneska ríkissjón- varpinu ENGIN lausn virðist í sjón- máli í deilum tékkneskra sjón- varpsfréttamanna og nýráðins sjónvarpsstjóra, Jiri Hodac. Hodac hótaði í gær að hann myndi biðja lögregluna um að fjarlægja fréttamennina sem hafa haft fréttastofuna á sínu valdi síðan fyrir jól. Fréttamennimir eru ósáttir við ráðningu Hodac, sem þeir telja hallan undir flokk Borg- aralegra demókrata, sem Vac- lav Klaus, fyrrverandi for- sætisráðherra, fer fyrir. Þeir sögðust í gær lítið mark taka á hótunum Hodac. Svo virðist sem Hodac og fylgismenn hans séu búnir að tapa baráttunni um hylli al- mennings en langflestir telja að hann eigi að segja af sér. Nýtt met í mannránum Bogota. AP. NÝTT met var sett í fjölda mann- rána í Kólumbíu á árinu sem er að líða en yfir 3.000 manns var rænt á árinu og státar landið því af þeim vafasama heiðri að eiga heimsmet í mannránum. Að meðaltali var yfir níu manns rænt daglega á árinu, að mestu leyti af vinstrisinnuðum skærulið- um og glæpamönnum sem eru á höttunum eftir lausnarfé. Það eru þó fjöldamannrán eins og þegar Frelsisher þjóðarinnar, ELN, rændi 80 manns í september frá veitingastöðum í Cali, næststærstu borg Kólumbíu, sem hækka heild- artöluna. Þessar upplýsingar koma fram í skýrslu samtakanna Frjálst land. Mörg mannrán eru aldrei tilkynnt til lögreglu. í skýrslunni segir að ELN hafi verið ábyrgt fyrir 27% af mann- ránum þeim sem tilkynnt voru til lögreglu. Stærsta uppreisnar- hreyfing landsins, Hin vopnaða uppreisnarhreyfing Kólumbíu (FARC) var ábyrg fyrir 24% mannránanna. Sameinuðu sjálfs- varnarsveitir Kólumbíu, sem er sveit hægrisinnaðra skæruliða er talinn bera sök á 8% mannrán- anna. Mannránum hefur einkum fjölgað vegna þess hversu hátt lausnargjald hinar vopnuðu sveitir hafa heimt fyrir fórnarlömb sín. Flest fórnarlambanna eru frá Kól- umbíu en um 36 útlendingar urðu þó fyrir barðinu á mannræningj- um. 264 börnum var einnig rænt á árinu. Borgarastríð hefur verið háð í Kólumbíu í 36 ár og uppreisnar- hreyfingar reiða sig í síauknum mæli á lausnarfé til að fjármagna starfsemi sína. Eftir því sem mannránum hefur fjölgað hefur hjartnæmum út- varpskveðjum fjölskyldna fórnar- lambanna til ættingja sinna í haldi einnig fjölgað. „Þetta hefur áhrif á alla, ekki eingöngu þá sem er rænt,“ segir David Buitrago, stjórnmálaskýr- andi Frjáls lands. „Allir eru hræddir." Að sögn samtakanna er nú eitt- þúsund þrjátíu og sex íbúum Kól- umbíu haldið föngnum af mann- ræningjum, í frumskógum, upp til fjalla og í borgum. Krafist er lausnargjalds fyrir flesta en sumir ræningjanna hafa sett fram póli- tískar kröfur. FAXAFEN8 Afgreiðslutími: Laugard. 10-18 Lokað gamlársdag Opnum aftur 4. janúar 10 8 R ey k j
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.