Morgunblaðið - 30.12.2000, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 30.12.2000, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ Æðakölkun „veldur þunglyndi“ 30 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000 VIKU m Los Angeles Times. Hjartasjúkdómar meðal kvenna E strógen kann að draga úr hættunni Með hjartað á réttum stað. Associated Press MEÐ því að taka hormónið estrógen geta konur dregið úr hættunni á að taka hjartasjúkdóma, samkvæmt nýrri rannsókn er gerð var við Há- skólann í Suður-Kaliforníu (USC) í Bandaríkjunum. Virðast þessar nið- urstöður stangast á við niðurstöður fyrri rannsókna. Þessi nýja rannsókn var gerð á heilbrigðum konum og dálítið öðru- vísi gerð af hormóninu og kann að veita bestu vísbendingar, sem hing- að til hafa fundist, um að estrógen- meðferð geti ef til vill dregið úr hættunni á hjartaáfalli. Fyrri rann- sóknir voru gerðar á konum sem þegar höfðu hjartasjúkdóma. Niðurstöður rannsóknarinnar, sem gerð var á 220 konum, voru kynntar á fundi Bandaríska hjarta- vemdarfélagsins (American Heart Association) í New Orleans nýverið. Dr. Howard Hodis við USC stýrði rannsókninni og komst að því, að konur sem tóku estrógenskammt daglega reyndust eiga mun síður á hættu að fá hjartasjúkdóma, s.s. hjartaáfall, er fram liðu stundir. í annarri rannsókn, sem einnig var kynnt á fundinum, komust kana- dískir vísindamenn að því, að meiri líkur eru á að konur fái hjartaáfall þegar þær hafa blæðingar, eða rétt eftir blæðingar, þegar estrógen- magn í líkamanum er lægra af nátt- úrulegum orsökum. Þessar tvær rannsóknir munu að öllum líkindum ýta undir umræður um víðtæka notkun hormónameðferðar. Farmingham- rannsóknin Meint tengsl á milli hjartasjúk- dóma og estrógens komu fyrst fram í kjölfar svokallaðrar Farmingham- hjartarannsóknar á áttunda ára- tugnum, þegar vísindamenn hófu nokkurra áratuga rannsókn á íbúum bæjarins Farmingham í Bandaríkj- unum. Varð niðurstaða vísinda- mannanna sú, að 55 væri mikiivægur aldur fyrir konur hvað hjartasjúk- dóma varðar. Mjög sjaldgæft er að konur fái hjartaáfall fyrir þann ald- ur. Þegar þær voru orðnar 55 ára fór tíðni hjartaáfalla meðal þeirra að nálgast mjög tíðnina meðal karla. Hin augljósa niðurstaða var að breytingin tengdist tíðahvörfum. Leiddu vísindamennirnir getum að því, að meira magn estrógens í blóði kvennanna fyrir tíðahvörfin vernd- aði þær fyrir hjartasjúkdómum. Ymsar fyrri rannsóknir virtust renna frekari stoðum undir þessa til- gátu, auk þess að benda til annarra kosta við hormónameðferð, þ.ám. aukinnar beinþéttni, minnkaðrar blóðfitu, minni hættu á ristilkrabba, betri húðlitar og ef til vill minni hættu á Alzheimer-sjúkdómi. En nýlegar rannsóknir, sem mikið hefur verið fjallað um í fjölmiðlum, leiddu í Ijós að hormónameðferð var til lítilla eða engra bóta fyrir konur sem þegar voru með hnútahersli, eða útfellingar, í slagæðum. Hodis bend- ir aftur á móti á, að í flestum fyrri rannsóknum hafi verið notað Prem- arin, sem er flókin mixtúra af estró- genum einangruðum úr þvagi fyl- fullra mera. Við sína rannsókn hafi hann einungis notað 17-beta-estra- diol, eða þá gerð estrógens sem myndast í konum. Rannsókninni er ekki lokið, en hún hefur staðið í tvö ár, og sagði Hodis að þær kvennanna, er taka þátt í rannsókninni, sem ekki hafi fengið estrógen og ekki kólesteról- lækkandi lyf hafi reynst vera með aukna þykkt æðaveggja (IMT), sem bendi til æðakölkunar, en hjá þeim konum sem tekið hafi estrógen hafi æðaveggir aftur á móti þynnst, sem bendi til minni hættu á hjartasjúk- dómum. Niðurstöðumar hjá konum sem hafi tekið bæði estrógen og kól- esteróllækkandi lyf séu engu betri en hjá þeim sem einungis hafi tekið estrógen. ÞUNGLYNDI á efri árum kann að mega rekja til æðakölkunar, að því er vísindamenn telja. Greint er frá þessu á fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC. Því er spáð að árið 2020 verði þunglyndi orðið næstalgengasta or- sök fötlunar í heiminum. Margir telja að þetta sé vegna þess að lífsstíl nú- tímans íylgi sífellt meiii streita. En vísindamenn við Öldrunai’- heilsugæslustofnunina við Háskólann í Newcastle hafa sýnt fram á að or- sakimar kunni að vera líkamlegar. Telja þeir að þunglyndi á efri árum kunni að mega rekja til kölkunar í æð- um sem liggja til heilans. Gerðar vom rannsóknir á 40 látn- um einstaklingum og hafði um það bil annar hver fengið alvarlegt þung- lyndiskast að minnsta kosti einu sinni. Þunglyndi er mjög algengt meðal fólks sem þjáist af Alzheimers-sjúk- dómnum eða elliglöpum en rannsókn- in leiddi ekki í Ijós neinar vísbend- ingar um annað hvort í heilavefnum. Aftur á móti fundust margar vís- bendingar um kölkun og þrengingu í æðum sem liggja til heilans í þeim einstaklingum sem þjáðst höfðu af þunglyndi. Vísindamennimir segja, að ef niðurstöður þeirra fáist staðfest- ar í frekari rannsóknum kunni að vera ráðlegt að hefja reglulegar rann- sóknir á eldra fólki sem þjáist af þunglyndi og leita að æðaskemmdum. Þunglyndi er algengt í kjölfar hjartaáfalls eða heilaáfalls og niður- stöður fyrri rannsókna benda til að þunglyndi ríflega þrefaldi hættuna á að maður deyi á næsta hálfa ári eftir áfallið. Stjómandi rannsóknarinnar, dr. Alan Thomas, tjáði fréttavef BBC að tengslin þama á milli yrðu ekki fyllilega útskýrð með þeirri stað- reynd að hjartasjúkdómar valdi þunglyndi. Niðurstöður rannsóknarinnar em birtar í Joumal ofNewology, Neuro- surgeryand Psychiatry. TENGLAR Journal of Neurology, Neurosurgery and Psychlatry. http://Jnnp.bmjjourn- als.com. Hversu marg- ir arfberar eru í manni? Vísindamenn eru ósammála um hversu mörg gen eru að fínna í manninum en vísbendingar hafa komið fram um að þau séu færri en áður var talið. Og það teljast góðar fréttir. AP. Associated Press Með aukinni þekkingu á genum mannsins og samspili þeirra innibyrðis og við umhverfið er vonin sú að unnt verða að þróa fram öflug lyf við mörgum af þeim illvígu sjúkdómum sem heija á mannkynið. Á mynd- inni gengst Donovan Decker, 36 ára gamall Bandaríkjamaður, undir genameðferð í tilraunaskyni. HVERSU marga arfbera, eða gen, þarf tií að búa til einn mann? Ef til vill ekki mikið fleiri en þarf til að búa til litla jurt. Að minnsta kosti benda nýlegar áætlanir um eitt af grundvallaratriðum líffræðinnar til að þetta sé líklegt. Arum saman var yfirleitt talið að í erfðamengi mannsins, sem er að finna í hverri einustu manneskju, væru á bilinu 60 til 100 þúsund gen. Það er harla gott í samanburði við þau 25.500 gen sem eru í lítilli jurt sem nefnist arabidopsis thaliana, eða gæsamatur. Og það er margfalt meira en þau 19 þúsund gen sem eru í agnarsmáum ormi er nefnist caenorhabditis elegans eða 13.600 genum ávaxtaflugunnar, droso- philia. Vísindamenn eru enn fullkomlega ósammála um hversu margir arfber- ar eru í manneskju. Tilgátur er sett- ar hafa verið fram eru á bilinu 27.462 til 153.478 gen, eða að með- altali um 62 þúsund. Fyrirtækið Human Genome Sciences Inc. í Bandaríkjunum áætlar til dæmis að í genamenginu séu yfir 120 þúsund gen, byggt á greiningu á efnaboðum frá genum um gerð prótína. Talan kemur á óvart En undanfarið hefur frammámað- ur alþjóðaáætlunarinnar, sem hefur lokið grófri kortlagningu á menginu, sagst reikna með að í genaskránni séu á bilinu 30 til 40 þúsund gen. „Það kemur á óvart hversu lág talan er,“ sagði dr. Francis Collins, fram- kvæmdastjóri bandarísku erfða- mengisrannsóknastofnunarinnar. í júní sl. kynntu tveir hópar vís- indamanna hvor sína rannsóknina, þar sem áætlað er að genin séu á bilinu 28 til 35 þúsund. Manni kann að finnast þessar tölur óþægilega nálægt því sem er í gæsamatnum eða elegansorminum. I orminum eru aðeins 959 frumur, í samanburði við þær trilljónir fruma sem eru í mannslíkamanum. Og hvorki jurtin né ormurinn þurfa að takast á við erfið verkefni á borð við að læra ís- lensku eða komast að því hver sigr- aði í raun og veru í bandarísku for- setakosningunum. En vísindamenn benda á að líf- fræðilegur margbreytileiki lífvera sé fólginn í fleiru en stærð gena- mengis þeirra. Til dæmis geti það skipt miklu máli hvaða munur er á því hvenær tiltekin gen séu virk og hvenær ekki hvað varðar þróun líf- veru. Auk þess sé lífvera í rauninni byggð og stjórnað af þeim prótínum sem genin í þeim láti þær búa til. Flestu fólki hafi verið kennt að eitt gen forriti eitt prótín en raunin sé sú að sum gen geti leitt af sér fleiri en eitt prótín. Þetta kunni að eiga við um yfir helming genanna í mannslíkamanum. Þar að auki geti lífverur orðið flóknari með því að búa til marg- brotnari samsetningar úr sömu grunnefnunum. Með sama hætti og maður getur notað Lego-kubba til að byggja einfalt hús eða eftirlík- ingu af Vatíkaninu, segir Gerald Rubin við Háskólann í Kaliforníu, Berkeley, og Howard Hughes- læknamiðstöðina. Þegar allt komi til alls sé ein heilafruma úr manni ekki svo frá- brugðin heilafrumu úr flugu en í mannsheilanum eru mun fleiri slík- ar. Rubin hefur mikla æfingu í að hugsa um tengsl á milli genafjölda og margbreytileika. Þegar hann og samstarfsmenn hans tilkynntu í fyrra að þeir hefðu fundið 13.600 gen í ávaxtaflugunni töldu margir vísindamenn að talan væri of lág, segir Rubin. Þetta voru jú færri gen en í elegansorminum sem virðist vera mun einfaldara kvikindi. En Rubin telur að þessi niður- staða sín hafi „losað þá úr þeim hjól- förum að líta svo á að það hlyti að vera fylgni á milli margbreytileika og fjölda gena.“ Góðar fréttir Hvað varða genafjöldann í mönn- um eru það góðar fréttir fyrir vís- indamenn ef hann reynist vera „minni en við höfum óttast," segir Phil Green við háskólann í Wash- ington í Seattle. Hann telur að genin í mönnum séu um 35 þúsund og bendir á að minni fjöldi bendi til að það séu færri prótín í mönnum sem vísindamenn þurfi að safna saman til að búa til skrá yfir alla partana í mannslíkamanum. Og því færri sem genin séu, því minna verk sé það að finna öll þau gen sem eiga hlut að máli í einkennum manna eða sjúk- dómum sem hrjá þá. „Við ættum að geta fundið svörin fyr,“ segir Green.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.