Morgunblaðið - 30.12.2000, Síða 2

Morgunblaðið - 30.12.2000, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Brynjar Gauti Tákn friðar og ástar MIKIÐ er af dúfum í höfuðborginni enda eru dúfur afar félagslyndir fuglar. Þær setjast gjarnan að í þéttbýli og hafa í gegnum tíðina búið í sátt og samlyndi við mannfólkið, sem hefur notað hana sem tákn friðar og ástar. Hætt er við að þeim dúfnahópi sem sveif þarna yfír höfuðborginni hafi þótt heldur kalt í veðri enda talsvert frost þótt veður væri stillt. Gert er ráð fyrir svipuðu veðri næstu daga. Kennaraverkfail hefur áhrif á vímuefnaneyslu Afleiðing- arnar koma í ljós að loknu verkfalli VERKFALL framhaldsskólakenn- ara og sú óvissa sem fylgir getur haft slæm áhrif á vímuefnaneyslu ung- menna að mati Þórarins Tyrfings- sonar, yfírlæknis á Sjúkrahúsinu Vogi. Innlagnir ungmenna á sjúkra- húsið hafa ekki aukist frá því verk- fallið hófst. Þórarinn segir að þeim ungmenn- um sem leita sér meðferðar í fyrsta skipti hafi ekki fjölgað sérstaklega eftir að verkfallið hófst. Hann segir að fyrstu merki um hvort verkfallið hafi haft slæmar afleiðingar komi fram þegar skólastarf hefst að nýju. Þegar sé los á þessum aldurshópi í þjóðfélaginu og ungmennin eigi mörg hver erfitt uppdráttar. Þórarinn segir marga þætti ráða því að neysla vímuefna fari úr bönd- unum. „Eitt af því sem heldur neysl- unni í skefjum er venjulegur vinnu- tími og venjulegur skólatími og ákveðið aðhald. Ef það minnkar er hætta á því að þeir gæti ekki að sér og auki neysluna," segir Þórarinn. Jóhann Thoroddsen, sálfræðingur á forvarnadeild SAA, segist hafa orðið var við aukningu á vímuefna- neyslu ungmenna. Hún sé þó ekki stórfelld. Helst séu það krakkar sem hafi neytt vímuefna áður sem auki við neyslu sína og hafi foreldrar lýst áhyggjum sínum. Jóhann segir skól- ann hafa veitt þessum ungmennum nauðsynlegt aðhald. Mikil sala á þorskkvóta fyrir áramót Verð á varan- legum kvóta hefur lækkað um 22% MJÖG lífleg sala hefur verið með bæði skip og aflahlutdeildir fyrir þessi áramót. Eggert Sk. Jóhannes- son, hjá skipamiðluninni Bátum & kvóta, segir að aðilar, sem hagnast hafi á útgerð, hafi sumir hverjir fjár- fest í greininni aftur. Stundum skap- ist spenna vegna þess að útgerðir stíli inn á að fjárfesta á því skattári sem er að líða. Reynsla undanfarinna ára hafi sýnt að útgerðirnar fjárfesti síðustu dagana í desember. Verð á varanlegum aflahlutdeild- um í þorski er nú 740 krónur fyrir veiddan fisk en verðið var lengi vel 950 krónur og nemur lækkunin því um 22%. Verð á þorskaflamarki á Kvótaþingi hefur að undanförnu ver- ið á bilinu 100-110 krónur fyrir kíló- ið. Verð á óveiddum þorski í króka- kvótakerfi er nú 500 krónur en var lengi vel 560 krónur sem er um 11% lækkun. Leiga á krókaaflamarki inn- an ársins hefur verið frá 63-67 kr. fyrir kílóið. Lækkun á verði aflahlut- deilda nú má að sögn Eggerts að- allega rekja til minnkandi þenslu í starfsemi lánastofnana og einnig hefur gæftaleysi slegið á eftirspurn eftir aflahlutdeildum. Eggert segir að lífleg sala hafi verið með bæði skip og aflahlutdeild- ir fyrir þessi áramót, reyndar mun meiri viðskipti en árin á undan. „Greinin hefur verið að skila mörg- um vel reknum útgerðum ágætum hagnaði og skattkerfið stýrir þessum aðilum til þess að fjárfesta í atvinnu- greininni. Okkur virðist að nú sé meiri áhugi en oft áður að fjárfesta frekar með beinum hætti í aflahlut- deildum. Meira var um það áður að útgerðir fjárfestu í hlutabréfum. Einnig spilar það sterklega inn í að verð á kvóta er hagstætt um þessar mundir og endurspegla kvótakaupin þá trú aðila sem í greininni eru að verð muni hækka en sú hefur ávallt verið tilhneigingin eftir áramótin þegar vertíð stendur sem hæst.“ Slapp svo til ómeidd þegar bfll fór fram af brú „Það hefur einhver vakað yfír mér“ „ÞAÐ hefur einhver vakað yfir mér, ég held að það sé ljóst,“ sagði Hulda Þorgilsdóttir, 17 ára stúlka sem slapp ótrúlega vel úr umferð- aróhappi á Leiruvegi við Akureyri í fyrrakvöld. Bíll hennar fór í loft- köstum út af Leirubrú og hafnaði niðri í fjöru. Bifreiðin, sem er lítill tveggja dyra fólksbíll, er gjörónýt og þurftu slökkviliðsmenn að klippa hana út úr bílnum, en Hulda slapp með skrámur og bólgur á hand- legg. Hulda býr á Svalbarðseyri og var á leið til Akureyrar þegar óhappið varð. Hún sagði að þegar hún kom inn á brúna hafi þar verið lúmsk hálka, sem varð til þess að bfllinn fór að skrika. „Þannig ók ég yfir alla brúna, bfllinn bara rásaði og ég reyndi að hægja á mér, en negldi samt ekki niður,“ sagði Hulda. Göngubrú er hægra megin á brúnni og kant- steinn þar sem hún endar og á þeim stað hafnaði bifreið Huldu að lokum, en tókst þá á loft og hentist ofan í fjöru eftir að hafa far- ið nokkrar veltur. „Það bjargaði mér að það var fjara, bfll- inn hefði endað ofan í sjó hefði verið flóð og ég var alveg pikkföst inni í bílnum," sagði Hulda. „Þegar bíllinn tókst á loft í áttina út í sjó hugsaði ég með mér hvort ég myndi sleppa lifandi frá þessu. Ég hélt satt best að segja að þetta væri mitt síðast.a,“ sagði hún og benti á að hún hefði verið í bflbelti og væri ekki í vafa um að það hefði bjargað því að ekki fór verr. „Ég er alltaf í öryggisbelti þegar ég ferðast í bíl og hvet menn eindregið til að nota þau. Þau hafa margsannað gildi sitt.“ Hulda fékk ökuleyfi í maí síðastliðnum og seg- ist aka mikið, en hún stundar nám á Ak- ureyri og ekur á milli, stundum marg- ar ferðir á dag, segir hún. Hún sagði að óhappið hefði ekki haft nein áhrif í þá átt að hún hræðist að keyra bfl í framtíðinni. „Ég var mjög heppin og er þakklát því góða fólki sem kom mér til að- stoðar á slysstaðnum,“ sagði Hulda Hulda Þorgilsdóttir Sérblöð í dag ÁLAUGARDÖGUM -í ísland mætir Indlandi, Indónesíu og Úrúgvæ / B1 : Vetrarveður setur strik : í reikning ensku liðanna / B1 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.