Morgunblaðið - 30.12.2000, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 30.12.2000, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ■ Öryrkjar leita til forsetans vegna viöbragða stjórnvalda: r Ráðherrar hundsa æðsta dómstölinn /roRJÉTiNN T&rAu^O Þetta verður ekki létt við að eiga Garðar minn. Þetta eru nú fagmenn. merki NORÐURORKA kynnti nýverið nýtt merki fyrirtækisins en það hannaði Jóhann Heiðar Jónsson. Til- laga hans varð hlutskörpust í lokaðri samkeppni sem fyrirtækið stóð að en alls bárust 15 tíllögur í keppnina. Jafnframt voru verðlaun fyrir nýtt nafn á sameinuðu fyrirtæki Hita- og vatnsveitu Akureyrar og Rafveitu Akureyrar, en nafnið Norðurorka varð fyrir valinu og verðlaunahafinn var Hlynur Kristjánsson. Form hins nýja merkis byggist á efnafræðilegri samsetningu vatns en það sýnir eitt súrefnisatóm bindast tveimur vetnisatómum. Auk þess mynda formin nokkurs konar ör sem vísar í norður og þrískiptíng for- manna vísar til hinnar þríþættu orkuframleiðslu fyrirtækisins. Þá hefur jafnframt verið ákveðið að Norðurorka fái slagorðið Nýtt afl. Morgunblaðið/Björn Gíslason Jöhann Heiðar Jónsson við hið nýja merki Norðurorku. Morgunblaðið/Högni Sigurþórsson Uppaf Fremri-Breiðadal er fjallið Skógarhorn. Fyrir botni dalsins er Þverfjall og Breiðadalsheiði þar inn af. Bleik tún undir bleikum himni Flateyri. Morgunblaðið. ALLT frá landnámstið hefur þjóð- leiðin milli Onundarfjarðar og Skutulsfjarðar legið um Breiða- dalsheiði. í aldanna rás var bærinn á Fremri-Breiðadal áfangastaður ferðamanna á þessari erfiðu leið sem telst með hæstu fjallvegum landsins. Akfær vegur var lagður um heiðina árið 1936 en þrátt fyrir það var heiðin að mestu leyti teppt og ófær á vetuma fram á áttunda áratuginn þegar breytingar urðu á snjómokstri. Kenningar um að Breiðadalurinn dragi nafn sitt af orðinu breði sem þýðir hjarnbreiða eða fannbreiða eru því ekki alveg úr lausu lofti gripnar þótt til sanns vegar megi færa að Breiðadalur sé einnig dala breiðastur á þessum slóðum. Hvemig sem á málið er lit- ið þykir það í frásögur færandi að enn skuli sjást stingandi strá á tún- unum í þessum snjóþunga dal þcgar svo langt er liðið á veturinn. Hollvinasamtök félagsvísindadeildar Eiga að efla samskipti Haraldur Ólafsson STOFNUÐ voru 1. desember sl. Holl- vinasamtök félags- vísindadeildar Háskóla Is- lands. Formaður þeirra er Haraldur Ólafsson prófess- or. Hann var spurður hvert væri markmið þessara samtaka? „Að efla fagleg samskipti deildarinnar og þeirra sem lokið hafa þaðan námi og allraannarra sem starfa við félagsvísindi hér á landi. Það er einnig markmið samtakanna að stuðla að því með öðrum að kynna félagsvísindin út á við og eiga þannig hlut að því að sýna fram á gildi þeirra fyr- ir land og þjóð.“ -Hver verða viðfangs- efhi samtakanna? „Þau verða væntanlega fólgin í ýmsum verkefnum í samráði og samstarfi við marga aðila. Það verður reynt að hafa skipulag sam- takanna þannig að þau verði sveigjanleg þannig að hægt verði að ná til sem flestra faghópa innan félagvísindanna. Hugsanleg verk- efni eru mörg. Fyrsta verk stjóm- ar samtakanna er að ná tíl fulltrúa faghópa og þeirra greina sem kenndar eru við félagsvísindadeild. Það hefur verið rætt um að meðal verkefna verði að setja upp frétta- vefi á Netinu. Jafnvel hefúr komið fram hugmynd um að stofna raf- rænt tímarit um félagsvísindi, tímarit sem verði mjög vandað og fræðilegt. Þá er einnig áhugi á að standa fyrir fyrirlestrum og fund- um með öðrum og jafnvel að að- stoða við að halda ráðstefnur. Þá er hugsanlegt að samtökin getí verið ráðgefandi um rannsóknarverk- efni og komið með ábendingar um þróun náms við deildina. Einnig er hugsanlegt að samtökin getíð stuðlað að endurmenntun í félags- vísindum." - Hafa engin svona samtök verið starfandi í tengslum við félagsvís- indadeild fyrr? „Ekki hollvinasamtök en innan deildarinnar eru nemendafélög hinna ýmsu greina og síðan eru félög hinna ýmsu fagreina þeirra sem útskrifaðir eru og starfa að þessum greinum, svo sem sálfræð- inga, félagsfræðinga, mannfræð- inga o.s.frv. Eitt fyrsta verkefni Hollvinasamtakanna verður að hafa samband við þessi fagfélög og ætlunin er að mynda samráðshópa hinna ýmsu greina. Það verður lagt allt kapp á að ná til sem allra flestra sem lokið hafa námi frá deildinni og reyndar allra sem áhuga hafa á félagsvísindum eða stunda nám í þeim greinum hvar sem er í heiminum.“ - Hefur orðið mikil þróun í þess- um vísindum frá því þú fórst að leggja stund á þau? „Já, alveg gífurleg. Þau hafa bæði þanist út að magni og gæð- um. Félagsvísindadeild er ein af þremur fjölmennustu deildum HÍ. Ég held að það eigi við um allar greinar sem kenndar eru við deild- ina að það þurfi að fara fram endurskoðun á námsefni með jöfnu millibili. Rannsóknar- aðferðir hafa breyst og orðið nákvæmari og þó aðgrundvöllur félags- vísinda sé hinn sami hefur bæst við gífurlega mikil ný þekldng og er stöðugt að bætast við hana.“ - Munu Hollvinasamtökin reyna að stuðla að auknu fjármagni tH deildarinnar? „Já, það er að sjálfsögðu eitt af verkefnum hollvinasamtaka hinna ýmsu greina háskólans að stuðla að framgangi greinanna og að hjálpa ► Haraldur Ólafsson fæddist í Stykkishólmi 14. jiilí 1930. Hann lauk stúdentsprófí frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1952 og stundaði cftir það háskólanám í Frakklandi og Svíþjóð eftir að hafa stundað blaðamennsku um hrfð. Hann lauk Fil.Iic-prófí f mannfræði og trúarbragðafræð- um frá Stokkhólmsháskóla 1966. Hann hefur komið viða við, hann var dagskrárstjóri RÚV í 6 ár, kennari við Háskóla íslands frá 1. janúar 1973. Varð Iektor, dós- ent og prófessor þar til í haust er hann hætti 70 ára. Hann átti einnig sæti á Alþingi um hríð. Hann er nú í Reykjavíkur- Akademfunni. Haraldur er kvæntur Hólmfríði Gunnars- dóttur doktor phil. í heilbrigðis- visindum. Þau eiga tvö börn. til við að útvega kennslugögn, hjálpargögn, standa að fundum og ráðstefnum og leita til aðila sem væru fúsir tíl að styðja ýmiss kon- ar starfsemi á sviði félagsvísinda." -Eru til hollvinasamtök ann- arradeildaíHP. „Já, þau kallast yfirleitt holl- vinafélög og þau eru til við hinar ýmsu deildir. Ég held að ég megi fullyrða að með starfi þeirra hafi ýmislegt áunnist.“ - Hvað með tengsl slíkra félaga við Hollvinasamtök Háskóla Is- lands? „ Þau eru að sjálfsögðu mikil og við leitum að sjálfsögðu mikið til starfsmanns Hollvinasamtaka Há- skóla íslans.“ - Hafa svona félög erlenda fyr- irmynd? „ Já, t.d. í Ameríku er þetta mjög algengt, að fyrrverandi nemendur hafi náin tengsl við sína gömlu menntastofnun og vinna oft gífur- legt starf, styrkja stofnunina og starfsemi hennar bæði fjárhags- lega og siðferðilega. Þó að fyrir- myndimar séu að sumu leytí er- lendar hljóta hollvinasamtök sem þessi að taka mið af aðstæðum hér á landi. Það er ekki síst mikilvægt að þeir sem fást við einhverjar greinar félagsvísinda fái tækifæri tíl þess að fylgjast með því sem er að gerast innan deildarinnar og í hinum ýmsu fagfélög- um.“ -Er þýðing félags- vísinda fyrir íslenskt samfélag mikil? „Já, hún er gríðarlega mikil. Þessi vísindi auka skilning okkar á okkar samfélagi og okkur sjálfum. Þótt þær greinar sem kenndar eru við félagsvísindadeild séu ólíkar eiga þær þó það sameiginlegt að fást við manneskjuna og rýna jafnt inn í innstu kima sálarinnar sem á ystu mörk atferlisins. Auka skilning á samfélag- inuogokkur sjálfum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.