Morgunblaðið - 30.12.2000, Page 20

Morgunblaðið - 30.12.2000, Page 20
20 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Viðskipti með hlutabréf innan Veróbréfaþings ísfands og utan á árinu Aukning* í viðskiptum með hlutabréf ÚRVALSVÍSITALA Aðallista VÞÍ lækkaði um 19,31% frá síðustu ára- mótum til síðasta viðskiptadags árs- ins, sem var í gær. Vísitalan er nú 1.305,900 stig. Viðskipti með hlutabréf á VÞÍ námu alls 57 milljörðum króna á árinu en voru 41 milljarður á árinu 1999. Aukningin er því 39%. Utanþingsvið- skipti með hlutabréf á árinu 2000 voru 137 milljarðar króna samanborið við 106 miUjarða árið áður. Heildarvið- skipti með hlutabréf á árinu 2000 námu samtals 194 miHjörðum króna en 147 milljörðum á árinu 1999 og jukust því um nærri þriðjung á milli ára eða 32% Markaðsverðmæti bankanna lækkar um 12 milljarða Markaðsverðmæti íslandsbanka- FBA er mest á Aðallista Verðbréfa- þings íslands, eða 41,5 milljarður króna. Landsbankinn kemur næstur, en hann er metinn á 23,6 milljarða, og Eimskip er þriðja verðmætasta félag- ið, metið á 22,3 milijarða. Næstu félög þar á eftir eru Búnaðarbankinn, Öss- ur og Sjóvá-Almennar tryggingar. Samanlagt verðmæti viðskipta- bankanna þriggja, Islandsbanka- FBA, Landsbankans og Búnaðar- bankans er 84,6 milljarðar króna. Samanlagt verðmæti bankanna fjög- urra fyrir ári, þ.e. áður en íslands- banki og FBA voru sameinaðir, var hins vegar tæpir 97 milljarðar. Sam- anlagt verðmæti bankanna hefur þvi minnkað um 12 milljarða króna á árinu, eðatæpl3%. 30. október síðastliðinn tók Verð- bréfaþing Islands í notkun nýtt við- skiptakerfi og hóf þá að flokka veltu- mestu hlutabréfin sérstaklega. Sú flokkun er í samræmi við svipaða flokkun kauphalla NOREX-sam- starfsins. í tilkynningu frá Verð- bréfaþinginu segir að valið verði end- urskoðað tvisvar á ári þannig að nýr listi yfir veltumestu fyrirtækin taki gildi 1. janúar og 1. júlí ár hvert. Við val á félögum á listann sé litið til síð- ustu 12 mánaða og markaðsvirðis á ákvörðunardegi en skilyrðin séu eðli máls samkvæmt breytileg og taki mið af markaðsaðstæðum á hverjum tíma. Miðað sé við að velta með bréfin nemi yfir 5 milljörðum króna á 12 mánaða tímabili og markaðsverðmæti félag- anna í flokknum sé yflr 10 milljörðum króna. Þá segir í tilkynningu Verð- bréfaþingsins að gert sé ráð fyrir að veltumestu félögin verði ávallt u.þ.b. 8-12 talsins. Mögulegt sé að nýskráð félag bætist í þennan flokk strax við skráningu ef líkur eru taldar á mikilli veltu með félagið. Einnig sé hugsan- legt að félag skráð á Vaxtalista komist á listann. Val í Úrvalsvísitölu Aðal- lista Verðbréfaþings íslands sé óháð þessari sérstöku flokkun á veltu- mestu félögunum. I tilkynningu Verðbréfaþingsins er greint frá hvaða tíu félög hafa verið valin á listann yfir veltumestu félögin á VÞI fyrir tímabilið frá 1. janúar til 30. júní 2001 Þau eru, raðað eftir veltu: Íslandsbanki-FBA hf.; Kaup- þing hf.; Össur hf.; Landsbanki Is- lands hf.; Baugur hf.; Eimskipafélag íslands hf.; Samherji hf.; Trygginga- miðstöðin hf.; Búnaðarbanki Islands hf.j Olíufélagið hf. I tilkynningunni kemur fram að þau félög sem falli út að þessu sinni séu Opin kerfi hf. og Marel hf., þar sem markaðsverðmæti þeirra nái ekki 10 milljörðum. Kaupþing hf. sé nýtt á listanum. Velta með hlutabréf Kaupþings hf. séu reiknuð hlutfalls- lega miðað við heilt ár en Kaupþing hf. var skráð á Verðbréfaþing í októ- ber síðastliðnum. Fram kemur í tilkynningu Verð- bréfaþingsins að ef hlutabréf félags teljist til veltumestu hlutabréfanna sé svokölluð viðskiptalota bréfanna í við- skiptakefi Verðbréfaþings um tvöfalt stærri en hjá öðrum félögum. Við- skipti séu þó möguleg með smæstu fjárhæðir, en þau hafi ekki áhrif á verðmyndun. Þá segir í tiikynning- unni að veltumestu félögin hafi verið hvött.til að birta fréttir sínar á ensku samtímis því að þau birti þær á ís- lensku, til þess að auðvelda erlendum fjárfestum að fylgjast með þeim. Mestu viðskipti á einum degi Heildai-viðskipti á Verðbréfaþingi Islands í gær námu rúmum 12.500 milljónum króna og þar af með hluta- bréf fyrir rúmar 8.000 milljónir króna. Þetta er nýtt met því áður höfðu dagleg heildarviðskipti mest náð tæpum 11.200 milljónum króna 31. desember 1998. Heildarfjöldi við- skipta með hlutabréf var 3.210. Hlutabréfavelta félaga á Adallista VÞÍ 2000 Hlutafélag á aðallista Austurbakki hf. Bakkavör Group hf. Baugur hf.* Búnaðarbanki ísiands hf.* Delta hf. Eignarhaldsfélagið Alþýðubankinn hf. Hf. Eimskipafélag íslands* Fiskiðjusamlag Húsavíkur hf. Flugleiðir hf.* Frjálsi fjárfestingarbankinn hf. Grandi hf.* Hampiðjan hf. Haraldur Böðvarsson hf. Hraðfrystihús Eskifjarðar hf. Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. Húsasmiðjan hf. Íslandsbanki-FBA hf.* íslenska járnblendifélagið hf. Jarðboranir hf. Kaupþing hf. Kögun hf. Landsbanki íslands hf.* Lyfjaverslun íslands hf. Marel hf.‘ Nýherji hf. Olíufélagið hf. Olíuverzlun íslands hf. Opin kerfi hf.* Pharmaco hf. Samherji hf.* SÍF hf.* Síldarvinnslan hf. Sjóvá-Almennar tryggingar hf. Skagstrendingur hf. Skeljungur hf.* Skýrr hf. SR-Mjöl hf. Sæplast hf. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hf. Tangi hf. Tryggingamiðstöðin hf.* Tæknival hf. Útgerðarfélag Akureyringa hf. Vinnslustöðin hf. Þorbjörn hf. Þormóður rammi-Sæberg hf.* Þróunarfélag íslands hf. Össur hf.* * Hlutafélög sem mynda úrvalsvísitölu Aðallista VPl Heildarvelta m. Markaðsverð hlutabr., millj. kr. 29/12, milli. kr. 220,2 691 718,7 2.722 11.357,5 14.031 5.734,4 19.475 881,1 5.016 707,7 3.749 9.663,3 22.323 124,7 - 4.619,7 6.460 774,6 3.534 2.000,7 6.655 1.384,6 2.535 1.093,8 - 62,4 - 185,4 - 1.601,5 5.221 22.988,3 41.500 232,6 2.204 738,8 1.908 41.711,8 15.207 1.439,9 3.015 11.848,7 23.618 968,8 1.560 7.178,3 9.428 2.671,6 3.696 5.336,2 10.987 526,9 5.695 5.274,1 9.030 3.547,5 15.743 10.849,6 12.303 2.698,0 4.067 637,6 3.256 1.044,9 17.433 1.445,4 2.029 1.679,0 - 2.165,3 2.800 1.512,7 2.507 218,6 1.014 702,4 - 25,8 - 8.569,1 11.655 717,5 1.761 1.128,2 5.976 1.449,1 - 277,7 4.395 2.324,2 4.160 613,4 4.125 18.555,5 18.622 Radiomiðun kaupir Hátækni RADIOMIÐUN hf. hefur keypt öll hlutabréf í Hátækni ehf. sem er sölu- og þjónustu- aðili fyrir fjarskipta-, hita- og loftræstitæki og mun Há- tækni ehf. starfa áfram í nú- verandi mynd í sjálfstæðu félagi. Hluti kaupverðs var greiddur með hlutabréfum í Radiomiðun hf. FBA ráðgjöf hf. leiddi samningaviðræður fyrirtækjanna, ásamt því að annast aðra milligöngu í þess- um viðskiptum. í tilkynningu um kaupin segir að markmiðið með þeim sé að styrkja stoðir beggja fyrirtækjanna á þeim markaði sem þau starfa á en hann ein- kennist af örum vexti, hraðri þróun og breytileika. Velta Hátækni á árinu 2000 nemur um 275 milljónum króna og mun samanlögð velta Radiomiðunar hf. ásamt dóttur- og hlutdeildarfélögum eftir kaupin verða yfir 1.400 milljónir króna á þessu ári. Starfsemi SÍF hf. undir Aðalstöðvar SÍF hafa verið fiuttar í Fornubúðir í Hafnarfirði. einu þaki SIF hf. hefur fiutt aðalstöðvar fyrirtækisins úr Fjarðargötu að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði þar sem innkaupa- og sölustarfsemi fyrirtækisins á íslandi, SÍF-Island, er til húsa. Að Fomubúðum verða því undir einu þaki skrifstofur móðurfélags SIF hf, skrifstofur og vörugeymsla fyrir rekstrarein- inguna SÍF ísland, sem og skrif- stofur dótturfyrirtækjanna Salt- kaup og Saltskip. Við þessa flutninga munu um 120 starfsmenn fyrirtækisins á ís- landi starfa undir sama þaki, sem án efa mun efia upplýsingamiðlun, samræmingu og samstöðu starfs- manna á Islandi, að því er segir í fréttatilkynningu frá SÍF. Þá skapast með fiutningunum nokkur hagræðing við rekstur húseigna. SÍF hf. hefur gengið frá sölu á hluta af húseign fyrirtækisins við Fjarðargötu 13-15 en til stend- urað selja eða leigja alla húseign- ina. Hjá SIF samstæðunni starfa samtals um 1.700 starfsmenn sem staðsettir eru í fimmtán löndum við fullvinnslu, markaðssetningu og sölu sjávarafurða til yfir 60 landa um heim allan. Hagvöxt- ur og sam- runi ein- kenndu liðið ár HAGVÖXTURINN á heims- vísu er talinn hafa verið um 4,9% á síðasta ári að því er kemur fram í samantekt The Econom- ist og hefur vöxturinn ekki mælst meiri síðastliðin sextán ár. í Bandaríkjunum var hag- vöxturinn liðlega 5% eða all- miklu meiri en í evrulöndum og í Japan. Þegar leið að lokum árs- ins fóru menn að hafa áhyggjur af minnkandi hagvexti og að lendingin kynni að verða nokkuð hörð. Seðlabanki Bandaríkjanna hækkaði vexti þrisvar sinnum á árinu til þess að slá á þenslu en í desember tilkynnti hann að vextir kynnu að lækka í janúar. Tækni- og netfyrirtæki hröpuðu Gengi evrunar gagnvart Bandaríkjadal féll verulega á árinu og náði lágmarki, 0,83 döl- um, síðla í október en hefur styrkst nokkuð síðan. Verð á olíu fór hæst í hátt í 37 dali á fatið á árinu og hafði ekki verið hærra í heilan áratug. Vegna þrýstings frá vestrænum ríkjum ákváðu OPEC-ríkin að auka framleiðsluna um haustið og lækkaði oh'verðið undir lok ársins. Verð á hlutabréfum tækni- og netíyrirtækja náði hámarki í mars en eftirspumin hafði verið gríðarlega mikil svo líkja mátti við gullgrafaraæði. Nasdaq-vísi- talan hríðféll hins vegar það sem eftir lifði árs og í endaðan des- ember var hún 38% lægri en í upphafi ársins og 50% lægri en þegar hún var sem hæst. I kjöl- farið fóru netíyriríæki á hausinn þai’ sem fjárfestar misstu áhuga á að leggja þeim til meira fé. Stærstu samrunar sögunnar Tilkynnt var um samruna America Online (AOL), sem er stærsta netþjónustufyrirtæki heimsins og fjömiðlarisans Time Warner í janúar. Samkeppnisyf- irvöld í Bandaríkjunum lögðu blessun sína yfir samrunann í lok ársins. Þegar samkomulagið tókst í janúar var um stærsta samruna fyrirtækja að ræða í sögunnni; markaðsverðmæti þessara tveggja fyrirtækja var þá 340 milljarðir dala. En fljótt skipast veður í lofti og í lok árs- ins hafði markaðsverðmæti þeitxa lækkað um 140 milljarða dala eða liðlega 41%. Vodafone varð stærsta far- símafyrirtæki heimsins þegar það keypti þýska keppinautinn Mannesmann og var sá samn- ingur stærri en AOL og Time Wamer en verðmæti hlutabréfa hins sameinaða fyrirtækis og annarra fjarskiptafyrirtækja féll mjög síðari hluta ársins vegna áhyggna fjárfesta af mikl- um kostnaði við kaup á leyfum tyrir þriðju kynslóð farsíma. Af bílum og bönkum I bílaiðnaðinum tókst sam- starf með General Motors og Fí- at. Ford keypti Land Rover af BMW sem einnig losaði sig við Rover Group í Bretlandi. DaimlerChrysler keypti 34% í Mitsubishi og hlut í Hyundai. Samþjöppun var einnig á meðal fjárfestingart>anka: UBS keypti Paine Webber í Bandaríkjunum og Credit Suisse keypti DLJ. Hins vegar varð ekkert af sam- runa stærstu bankanna í Þýska- landi: Viðræður Deutsche Bank og Dresdner Bank fóru út um þúfur og viðræður Dresdner og Commerzbank.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.