Morgunblaðið - 30.12.2000, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ESB-formennsku-
tíð Frakka gefín
slæm einkunn
London. Thc Daily Telegraph.
HÁLFS árs formennskutímabili
Frakka í ráðherraráði Evrópusam-
bandsins (ESB) lýkur nú um ára-
mótin og harma það fáir, að sögn The
Daily Telegraph, að aðrir taki nú við
formennskuhlutverkinu. Svíar
gegna þvi næsta hálfa árið.
Munu jafnvel stuðningsmenn
vinstriflokkanna sem standa að
frönsku ríkisstjóminni vera á því
máli, að ekki hafi vel tekizt til.
Leiðtogar Frakklands, þeir Jacq-
ues Chirac forseti og Lionel Jospin
forsætisráðherra, voru fullir sjálfs-
trausts og metnaðar er þeir tóku við
ESB-formennskunni í sumar sem
leið, en mega nú þola orrahríð gagn-
rýni á frammistöðuna. Peir hafa
enga sannfærandi sýn á hvert ESB
skuli stefna. í leiðara hins vinstri-
sinnaða dagblaðs Liberation í fyrra-
dag segir: .Atburðarásin [á leiðtoga-
fundinum] í Nice sýndu hve alvarlegt
tjónið er. Það örlar ekki á neinum
skýrum hugmyndum um það hvert
framtíðarfyrirkomulag hinna evr-
ópsku stofnana skuli vera, fyrir utan
hinn illskilgreinda boðskap um
„dýpkun" ESB-samstarfsins.“
I fréttaskýringu f sama blaði er
fullyrt að formennskutímabilið hafi
verið, þrátt fyrir árangur á fáeinum
sviðum, verið „pólitísk hörmung" og
að afrakstur leiðtogafundarins í Nice
væri „langt frá þeim metnaðarfullu
markmiðum sem stjómin í París
hafði stefnt að“.
Að ekki skyldi takast að fá aðild-
arríkin til að fallast á að gefa neit-
unarvald sitt í skattamálum eftir er í
greininni kallað „alvarlegur áfanga-
ósigur fyrir uppbyggingu Evrópu".
Til að ná áþreifanlegum árangri
hefðu Chirac og Jospin þurft að ná
samkomulagi við Þjóðverja um að
vera samstiga í að knýja í gegn
metnaðarfulla umbótaáætlun, eða þá
að fá öll hin aðildarríkin á sitt band
með sveigjanlegum sannfæringar-
krafti, en þeim hafi tekizt hvorugt.
Þessi gagnrýni í Liberation er nýj-
asta dæmið um að franska for-
mennskumisserinu sé gefin slæm
einkunn, einkum af hálfu vinstri-
manna í meginlandsríkjunum, sem
eru vonsviknir yfir því að ekki skuli
hafa tekizt að hnekkja neitunarvaldi
aðildarríkjanna í skatta- og félags-
málum.
I þýzkum ljölmiðlum hafa verið
áberandi frásagnir af hrokafullri að-
ferðafræði franskra stjómmála-
manna og stjómarerindreka í við-
ræðustjómun á vettvangi ESB
síðastliðna mánuði. Fulltrúar hinna
smærri ríkja sambandsins og
ríkjanna sem em að semja um aðild
hafi einkum og sér í lagi fengið að
kenna á þessu. Fær franski Evrópu-
málaráðherrann Pierre Moscovici
sérstaklega slæma dóma í þessu
sambandi.
Franska stjómin hefur varizt
gagnrýninni. Utanríkisráðherrann
Hubert Vedrine hefur í því skyni
fullyrt að engu öðra hinna aðildar-
ríkjanna fjórtán myndi hafa tekizt
betur upp.
Baiikastjóri Englandsbanka um pundið og EMU
Segir evruna þurfa
að styrkjast frekar
London. AFP.
GENGI evrunnar á alþjóðlegum
gjaldeyrismarkaði er vissulega
byrjað að styrkjast á ný, en enn er
langt í land að gengisþróun hennar
geri það fýsilegt fyrir Breta að
sameina sterlingspundið Evrópu-
myntinni. Þetta sagði Eddie
George, bankastjóri Englands-
banka, í fréttaviðtali í brezka rík-
isútvarpinu BBC í gær.
Sagði George að þrátt fyrir að
gengi evrannar hefði styrkzt tölu-
vert á mörkuðum að undanförnu
væri samt enn fjarri því að gengi
evru og punds væri með þeim
hætti að það gerði inngöngu Bret-
lands í Efnahags- og myntbanda-
lagið (EMU) fýsilega.
„Nauðsynleg forsenda fyrir því
að það komi til greina að ganga í
myntbandalagið er að evran hafi
styrkzt; hún er nú að byrja að
styrkjast," sagði George. Miðað
við „gömlu myntirnar" væri gengið
enn undir 3,20 þýzkum mörkum
gegn sterlingspundi, en það væri
brezku efnahagslífi beinlínis skað-
legt að taka upp evruna á meðan
gengið er á þessu róli, að hans
sögn.
Hornsteinn gildandi stefnu
brezku ríkisstjórnarinnar í mynt-
bandalagsmálinu era svokallaðir
„efnahagslegir prófsteinar", en þar
vega þyngst gengi punds og evru
og að hagsveiflan í Bretlandi og á
evra-svæðinu nálgist nægjanlega.
AP
Jacques Chirac Frakklandsforseti og Göran Persson, forsætisráðherra
Svíþjóðar, á fundi í Stokkhólmi í siðasta mánuði.
í viðtalinu varaði George hins
vegar við því, að hagþróun í Bret-
landi mundi að líkindum verða fyr-
ir neikvæðum áhrifum af vænt-
anlegum hagvaxtarsamdrætti í
Bandaríkjunum.
anuíferThverlra Okv eromsi oast u r
Beint
teiqutlugj
Nú þegar eru fjölmargar brottfarir
uppseldar svo það er um að gera
að tryggja sér sœti í sólina strax.
3. 10. og 17. jan 1 vika
Örfá sæti laus
möguleiki á framlengingu
um 1 viku
Tilboðin miðast við
2 í íbúð á Los Cactus.
Innifalið: Flug, flugvallarskattar,
gisting, ferðir til og frá flugvelli
erlendis og íslensk fararstjórn.
Opið í söluskrifstofu okkar
f Kringlunni:
Laugardag 30. des. 10-16
Sunnudag 31. des. 9-13
5. jan 5 dagar
möguleiki á framlengingu
um 1 viku
Lágmúla 4: sími 585 4000, grænl númer: 800 6300,
Kringlan: sími 585 4070, Kópavogl: sími 585 4100,
Keflavík: sími 585 4250, Akureyri: sími 585 4200,
Selfoss: sfmi 482 1666
- og hjá umboðsmönnum um land allt.
www.urvalutsyn.is
Sími 585 4070
Einnig er hægt að bóka á netinu
Samverkamenn
Milosevic flýja land
The Daily Telepraph.
MARGIR af samverkamönnum og
skjólstæðingum Slobodans Milos-
evics, fyrrverandi forseta Júgó-
slavíu, hafa á síðustu vikum flúið
land, af ótta við að hin
nýja stjóm lýðræðis-
sinna, sem tekur við
völdum í byrjun jan-
úar, muni sækja þá til
saka.
Sem kunnugt er
bar lýðræðissinninn
Vojislav Kostunica
sigurorð af Milosevic í
forsetakosningunum í
Júgóslavíu í lok sept-
ember, og kosninga-
bandalag lýðræðis-
flokka vann stórsigur
í þingkosningunum í
Serbíu, öðra samb-
andsríkja Júgóslavíu,
fyrr í þessum mánuði.
Sigurvegarar kosn-
inganna hafa síðan
keppst við að gefa yf-
irlýsingar um að réttað verði yfir
Milosevic og þeim sem störfuðu í
skjóli hans. Nýja Júgóslavíustjórn-
in, undir forystu Kostunica, hefur
síðan í október haft stjórn á landa-
mæram ríkisins, og þegar hin nýja
ríkisstjórn í Serbíu tekur við völd-
um í byrjun janúar lokast síðasta
flóttaleiðin fyrir samverkamenn
Milosevics; flugvellirnir. Margir
þeirra hafa enda yfírgefið landið
að undanförnu.
Hadzi Dragan Antic, fyrrverandi
ritstjóri Politika, elsta dagblaðsins
í Belgrad, og fyrrverandi elskhugi
Mariju, dóttur Milosevic, keypti
sér til dæmis flugmiða til Kúbu og
síðan hefur einnig frést af honum í
Moskvu, þar sem hann mun hafa
tengsl við háttsetta menn. Félagar
Antics innan serbneska Sósíalista-
flokksins vísa því þó á bug að hann
hafi flúið land og segja hann vera í
„meðferð" erlendis. The Daily
Telegraph innti fyrram samstarfs-
mann hans á Politica eftir þessu,
en sá mun hafa hlegið við og sagt
að þá væri um „varanlega með-
ferð“ að ræða.
Annar skjólstæð-
ingur Milosevic sem
flúið hefur land er
Miodrag Zecevic,
fyrrverandi banka-
stjóri Jubmes-bank-
ans, en hans er nú
leitað af lögreglunni.
Mihail Kertes, fyrr-
verandi yfirmaður
júgóslavnesku toll-
gæslunnar, hefur hins
vegar þegar verið
handtekinn og ákærð-
ur fyrir að misnota
vald sitt sem embætt-
ismaður. Líklegt er að
margra félaga forset-
ans fyrrverandi bíði
slík örlög, og að sama
skapi er víst að marg-
ir munu reyna að flýja þau.
„Flugvöllurinn hérna mun brátt
minna á lokaatriðið í kvikmyndinni
Casablanca“ hafði The Daily Tele-
graph eftir einum af aðstoðar-
mönnum Kostunica. „Þeir sem
hafa eitthvað að fela hafa enn tíma
til að flýja land flugleiðis, en það
tekur enda.“
Milosevic handtekinn
í janúar?
Vladan Batic, sem tekur við
embætti dómsmálaráðherra Serb-
íu, hefur heitið því að Slobodan
Milosevic missi brátt lögreglu-
vernd. Þá hafa háttsettir embætt-
ismenn gefið til kynna að forsetinn
fyrrverandi verði jafnvel handtek-
inn strax í janúar og sóttur til
saka. Sonur hans, Marko, flúði
land í október, en hann hélt til
Moskvu ásamt eiginkonu sinni og
syni.
Slobodan
Milosevic