Morgunblaðið - 30.12.2000, Page 38
•i 38 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Stigið á
stokk við
áramót
„Það ku vera ágætt að skrifa heitin sín
niður, bœði til aðgera þau áþreifanlegri
ogsvo auðveldara sé að átta sig á þeirn
á nýársdagsmorgun þegargleðskaþnum
lýkur. Nýársheitasérfræðingar segja til
dæmis uþþlagt að líma blað með skrif-
uðum heitstrengingum uþþ á sþegil, svo
þærséu sífellt í augsýn. “
Þegar nýtt ár gengur í
garð stíga margir á
stokk og strengja þess
heit að gera eitthvað
sem þeir létu ógert á síðasta
ári. Þessi nýársheit eru af ýms-
um toga. Algengt er að fólk
heiti að hætta að reykja,
kannski ekki alveg á miðnætti
þegar gamla árinu lýkur end-
anlega, heldur frekar daginn
eftir þegar gleðskapurinn er
úti, eða alla vega fyrstu vikuna í
nýju ári. Það er líka mjög al-
gengt að fólk
ákveði að
missa nú
nokkur kíló,
eða a.m.k. að
bæta ekki á
VIÐHORF
Eftlr Hönnu
Katrínu
Friðriksson
sig enn fleirum. Og miðað við
marga lista yfir algeng nýárs-
heit, sem er að finna á Netinu,
þá ætla margir sér að fara bet-
ur með peninga, fara betur með
annað fólk, finna sér betri vinnu
sem gefur líka meira í aðra
hönd, verða skipulagðari í leik
og starfi, stunda líkamsrækt,
njóta útivistar, bæta sambandið
við elskuna sína, yfirmenn, und-
irmenn og fjölskyldu, borða
hollari fæðu, læra að elda góðan
mat og horfa minna á sjón-
varpið. Sumir ákveða meira að
segja að verða betri mann-
eskjur og hljóta að þurfa lengri
tíma en á milli áramóta til þess.
Allt er þetta auðvitað gott og
blessað og engin ástæða til að
letja fólk sem er uppfullt af
góðum ásetningi. Spekingar,
jafnt á Netinu sem annars stað-
ar, kunna hins vegar ýmis ráð
til að auka líkurnar á að heit-
strengingamar verði ekki bara
orðin tóm, en sú hætta mun
vera umtalsverð. Það er til
dæmis alls ekki talið ráðlegt að
setja sér markmið sem afar
ólíklegt er að náist. Sem dæmi
má taka að það er glórulaust að
setja sér það markmið að vinna
í happdrætti á árinu. Nýársheit
um batnandi fjárhagsstöðu nást
víst ekki nema á öllu minna
spennandi hátt.
Fólki er líka ráðlagt að beina
heitum sínum í ákveðinn farveg.
I stað þess að lýsa því til dæmis
yfir að nú vilji það ekki lengur
liggja í leti alla daga á það að
setja sér markmið um reglulega
hreyfingu. Þetta gera margir í
ársbyijun, þjakaðir af þung-
meltum stórmáltíðum. Oft
bregða bollurnar á það ráð að
kaupa ársmiða í líkamsrækt-
arstöðvum og heita því að
breyta nú lífsstílnum svo um
munar. Og þegar sjálfsstjórnin
bregst eru líkamsræktarstöðv-
arnar allt í einu búnar að vinna
í happdrætti, því þær hafa
rukkað alls konar letingja um
háar fjárhæðir og sjá þá aldrei
meir. Líklega er því ástæða til
að setja þá undanþágu við
happdrættisregluna hér að ofan
að hún nái ekki til eigenda lík-
amsræktarstöðva.
Svo haldið sé áfram með ráð-
leggingar nafnlausra netspek-
inga: Það ku vera ágætt að
skrifa heitin sín niður, bæði til
að gera þau áþreifanlegri og
svo auðveldara sé að átta sig á
þeim á nýársdagsmorgun þegar
gleðskapnum lýkur. Nýársheita-
sérfræðingar segja til dæmis
upplagt að líma blað með skrif-
uðum heitstrengingum upp á
spegil, svo þær séu sífellt í aug-
sýn. Þetta ráð gæti reynst þeim
vel sem hefur heitið að draga úr
hégómleik sínum og hætta að
eyða löngum tíma við spegilinn.
Sumum nægir alls ekki að
búa einir að þekkingu um heitin
sin, heldur þurfa að deila þeim
með öllum ættingjum, vinum,
kunningjum og samstarfsfólki.
Þeim finnst jafnvel að vitn-
eskjan um að aðrir viti allt af
létta setji á þá mikla pressu að
standa sig. Allir þekkja svona
fólk. Og ef þeim nægir ekki að
deila þessu með 2-300 manns,
þá stendur þeim til boða að
gera heit sín opinber á sér-
stökum síðum á Netinu. Þeir
geta jafnvel samið um að fá
tölvupóst á tveggja vikna fresti,
þar sem þeir eru minntir á að
nú eigi þeir að vera að grenn-
ast/skemmta sér/vinna/safna
peningum/hugsa um annað fólk
o.s.frv., allt eftir inntaki heits-
ins.
Möguleikarnir á Netinu er
ótal margir. Þar er t.d. að finna
hvatningasíður fyrir gæludýra-
eigendur, þar sem þeim er bent
á mikilvægi þess að hundar
þeirra, kettir og gullfiskar
grennist/skemmti sér/hætti að
reykja/stundi útivist eða geri
hvað annað sem talið er geta
aukið lífsfyllingu dýranna.
Líklega er það svo, að fyrir
hvert eitt nýársheit sem staðið
er við liggja þúsund brotin.
Fæstir fá svipaða aðstoð og
nirfillinn Ebenezer Scrooge í
Jólaævintýri Dickens, sem eftir
heila nótt heimsókna að handan
sá loksins að sér og varð nýr og
betri maður. En þess ber líka
að geta að fáir þurfa vonandi á
jafnróttækri hjálp að halda, því
þeir eru fjarri því að vera slík
erkifól sem hann. Það eitt að
menn skuli vilja strengja heit
um nýtt og betra líf sýnir að
þeir eru meðvitaðir um að verða
betri manneskjur, á einn eða
annan hátt. Það eitt er ágæt
staða við áramót.
Stórt leikrit í
litlum umbiíðum
Á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins verður í
dag frumsýnt nýtt írskt leikrit, Með vasa
fulla af grjóti, eftir Mari Jones í þýðingu
Guðna Kolbeinssonar. Það eru þeir Hilmir
Snær Guðnason og Stefán Karl Stefánsson
sem fara með hvorki meira né minna en
7
14 hlutverk en leikstjórinn er Irinn Ian
McElhinney sem hefur leikstýrt verkinu
á Irlandi og í Englandi og fyrir dyrum
stendur frumsýning á Broadway í New
York. Hávar Siguijónsson hitti leik-
stjórann yfír kaffibolla rétt fyrir upphaf
síðustu æfíngar 1 gærdag.
AÐ er nánast eins og Ian sé
gamall kunningi þar sem
honum hefur oft brugðið
fyrir á hvíta tjaldinu og
sjónvarpskjánum á undanfömum
Wn. „Ég leik yfirleitt valdsmenn
af einhveiju tagi, lögreglumenn og
þess háttar náunga," segir hann og
ypptir öxlum. Hann hefur leikið í
kvikmyndum á borð við Michael
Collins, Hamlet og Angel að
ógleymdum sjónvarpsþáttunum um
Taggart. „Oftast nær er ég sprengd-
ur í loft upp fyrir miðja mynd,“ segir
hann og hlær. „Þetta gerist gjarnan
þegar ég sest inn í bíla. Kunningjar
mínir hafa haft á orði að það sé varla
óhætt að sitja í hjá mér.“ Hann hef-
ur stýrt öllum þeim sýningum sem
settar hafa verið upp á Með fulla
vasa af grjóti hingað til, á írlandi,
Bretlandi í Svíþjóð og nú á íslandi.
Auk annarra leikstjórnarverkefna í
heimalandinu hefur Ian leikið víða
um írland, Bretland og N-Ameríku,
meðal annars hjá The Royal Shake-
speare Company, í Abbey- og Gate-
leikhúsunum í Dublin og Lyric-leik-
húsinu í Belfast. Nýverið lék hann
einleik sinn Græna sprotann í Was-
hington DC. Hann er kvæntur höf-
undi verksins, Marie Jones og búa
þau í Belfast.
Kvikmyndaleikur á írlandi er ein-
mitt söguþráður leikritsins Með
fulla vasa af grjóti þar sem segir frá
tveimur náungum sem ráða sig sem
aukaleikara í Hollywoodkvikmynd
sem verið er að taka upp í friðsælu
sveitaþorpi á vesturströnd írlands
og setur lífið þar á annan endann
meðan á tökunum stendur. Vestur-
ströndin er vinsælt baksvið erlendra
kvikmynda, enda landslagið stór-
brotið. Yfirleitt eru heimamenn not-
aðir sem aukaleikarar, eins og til
dæmis í Braveheart (1995), en það
er skilyrði að tiltekinn hluti starfs-
manna séu heimamenn samkvæmt
nýlegum lögum um skattaívilnanir
til erlendra kvikmyndgerðannanna
sem vilja taka myndir á Irlandi.
Þessi lög hafa gert mikið til að laða
kvikmyndaframleiðendur að írlandi
og færir það þjóðarbúinu tekjur, og
írskum leikurum og tæknifólki tæki-
færi til að starfa við erlendar stór-
myndir. Ian segir að margir hafi vilj-
að túlka verkið sem umfjöllun um
menningarlega heimsvaldastefnu,
þar sem alþjóðlega afþreyingar-
maskínan breiði sig yfir lítið sam-
félag, líti niður til þess og noti að
vild. „Þetta má auðvitað lesa útúr
verkinu, en fyrst og fremst fjallar
það um þessa tvo pilta sem ná sam-
an og verða vinir.“
Kannski má segja sem svo að með
leikritinu hafi dæminu verið snúið
við því það hefur farið sigurför um
heiminn undanfarið ár.
Leikkonan og leikritaskáldið Mar-
ie Jones skrifaði um árabU fyrir
Charabanc-leikhúsið í heimaborg
sinni Belfast. Leikrit hennar hafa
verið leUdn víða um Bretland og ír-
land, í Bandaríkjunum, Kanada,
Þýskalandi og fyrrum Sovétríkjun-
um. Meðal þekktari verka hennar
má nefna Nóvemberkvöld, sem er,
líkt og leUcrit hennar Með fulla vasa
af gijóti, eitt vinsælasta leikritið frá
Norður-írlandi á síðari árum, og
hefur verið leikið víða um Irland og
Bretland, auk þess sem það var leik-
ið Off-Broadway í New York í hitt-
eðfyrra. Einnig hefur leikrit hennar
Konur á barmi hormónameðferðar
notið töluverðra vinsælda, en það
var frumsýnt í Belfast, sýnt á leikför
um írland og Skotland, og loks sett
upp á West End í London fyrir
þremur árum. Önnur leikrit hennar
eru meðal annars Ruby Murray,
Draumur Spóla, EftirUtsmaðurinn
og Hamstur á hjóh. Marie hefur
einnig skrifað útvarps- og sjón-
varpsleikrit fyrir BBC. Marie hefur
hlotið nokkur verðlaun fyrir verk
sín, meðal annars fyrir Með fulla
vasa af gijóti, en frumuppfærsla
leikritsins í Belfast hlaut Irish
Theatre-verðlaunin og Irish Times/
ESB-verðlaunin sem besta sýning
ársins. Þá hlaut leikritið nú í haust
Evening Standard-verðlaunin sem
besta gamanleikrit ársins í Bret-
landi. Hún hefur leikið í flestum
helstu leikhúsum írlands, í útvarpi,
sjónvarpi og kvikmyndum. Má þar
nefna að hún lék Söru Conlon í kvik-
myndinni í nafni föðurins, og móður
knattspyrnuhetjunnar George Best í
væntanlegri mynd um hann. Ian
segir að líkt og hann sjálfur sé fastur
í ákveðinni manngerð sjónvarpi og
kvikmyndum þá sé Mari nánast orð-
in hin dæmigerða írska móðir í kvik-
myndunum. Hann hlær og dregur
ekki úr írska hreimnum þegar hann
segir að dæmigerð setning fyrir
hana í kvikmyndum sé: „Ekki skjóta
son minn en viltu kannski tebolla?"
Hann bætir þvf við að hún sé reynd-
ar alls ekki dæmigerð írsk móðir í
raunveruleikanum. Með fulla vasa af
grjóti var upphaflega skrifað fyrir
leikhópinn Doublejoint árið 1996, og
fór þá í leikferð um írland. Tveimur
árum síðar bað John Sheehan, þá
nýráðinn leikhússtjóri við Lyric-
leikhúsið í Belfast, Marie Jones um
hentugt leikrit til að slá botninn í
fyrsta leikár sitt við leikhúsið. Marie
og Ian McElhinney ákváðu að Marie
myndi endurskrifa Með fulla vasa af
grjóti, og að í þetta sinn myndi Ian
leikstýra verkinu, sem var frumsýnt
Fallegur hljómur
TÖNLIST
Laugarneskirkja
DRENGJAKÓR
LAUGARNESKIRKJU
flutti jólasöngva, undir
stjórn Friðriks S. Friðrikssonar.
Einsöngvari: Garðar Thor Cortes.
Flautuleikari: Magnea Ámadóttir.
Pianóleikari: Peter Máté.
Miðvikudaginn 28. desember.
ÞAÐ er unnið merkilegt braut-
ryðjandastarf í Laugameskirkju
með starfrækslu drengjakórs, því
enn hefur tónlistarfólk almennt
ekki haslað sér völl á þessu sviði
þótt bama- og unglingakórar hafí
starfað í marga áratugi með mikl-
um ágætum hér á landi, kórar sem
hafa nær eingöngu verið skipaðir
stúlkum. Drengjakór er sérstakt
fyrirbæri og ef til vill besta leiðin til
að ala drengi upp í söng, sem ann-
ars hafa af ýmsum orsökum ekki
verið fjölmennir í venjulegum
bamakórum.
Fyrsti hluti efnisskrár var fluttur
af drengjakómum og eldri félögum
og var þessi „blandaði" kór nokkuð
vel hljómandi, þótt þeir eldri væru
á köflum helst til raddsterkir, eink-
um bassarnir. Fyrsta lagið var
Leiði mig Guð eftir Samuel Wesley
(1766-1837), enskt tónskáld og org-
elleikara. Hann var undrabam og
samdi óratoríuna Rut er hann var 8
ára. Annað lagið var Ave vemm
corpus eftir Mozart, er var fallega
sungið, og þar á eftir var sungið
Guð blessi herra húsbóndann, enskt
þjóðlag í hlaðinni og leiðinlegri út-
setningu eftir R.V. Williams. Næstu
tvö lög voru sérlega fallega sungin,
listaverkið Ave verum eftir Elgar
og Englar hæstir, fallegt sálmalag
eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Eldri
félagamir sungu svo einir Si iniq-
uitates observaveris eftir Wesley og
var töluverður þokki yfir söng
þeirra, þótt enn séu raddir þeirra
ekki fullmótaðar.
í næstu lögum, sem drengjakór-
inn söng einn, skiptust félagarnir á
að syngja einsöng, er sýndi tölu-
verðan raddmun í blæ og styrk, en í
heild var söngur þeirra fallega
framfærður. Fyrst var Ave María
eftir Eyþór Stefánsson, sungin fal-
lega af Birki Blæ Ingólfssyni og
Tómasi Páli Máté, og þar næst I
dag er glatt í döprum hjörtum eftir
Mozart, sungið af Bjarna G. Ing-
ólfssyni, Bjai-na F. Bjamasyni og
Geir Eggertssyni, og þrátt fyrir
smáóstöðugleika var söngurinn í
heild mjög góður. Kórinn lauk svo
fyrri hluta tónleikanna með Lof-
syngið Drottni eftir Hándel, af tölu-
verðum myndugleika.
Eftir hlé söng Tryggvi K. Valdi-
marsson Pie Jesu eftir Fauré og
þrátt fyrir smávandræði með tón-
stöðuna í miðhluta lagsins var söng-
ur hans einstaklega fallega fram-
færður. Jól, hið fallega jólalag
Jórunnar Viðar, var sérlega vel
flutt en þar átti Magnea Ámadóttir
fallegan einieik á flautu. Einsöngv-
aramir í Nóttin var sú ágæt ein eft-
ir Kaldalóns voru á ýmsum aldri.