Morgunblaðið - 30.12.2000, Page 42
MORGUNBLAÐIÐ
4 42 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000
MINNINGAR
+
Hjartkær eiginmaöur minn, faöir okkar og
sonur,
SVANBERG ÁRNASON,
Furulundi 1E,
Akureyri,
lést á gjörgæsludeild Fjóröungssjúkrahússins
á Akureyri miövikudaginn 27. desember.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtu-
daginn 4. janúar kl. 13.30.
Ragnhildur Thorddsen,
Ólafur Björn Svanbergsson,
Sigurður Árni Svanbergsson,
Fanney Svanbergsdóttir.
+
Ástkær faöir okkar, tengdafaðir og afi,
EINAR ÁGÚST FLYGENRING,
Skúlabraut 7,
Blönduósi,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri laug-
ardaginn 23. desember.
Jarðsungið verður frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 3. janúar kl. 15.00.
Súsanna S. Flygenring, Sigurður Flygenring,
Anna María Flygenring, Tryggvi Steinarsson
og barnabörn.
+
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
INGIBJÖRG JÓNA JÓNSDÓTTIR,
Vatnsholti 4,
Reykjavík,
lést föstudaginn 29. desember.
Vildfs Guðmundsdóttir,
Jón Ingi Guðmundsson, Sigríður Helga Þorsteinsdóttir,
Guðrún Elísabet Guðmundsdóttir, Skarphéðinn Haraldsson
og barnabörn.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ERLENDUR EYJÓLFSSON
frá Jaðri, Vestmannaeyjum,
Álftamýri 54,
lést fimmtudaginn 28. desember.
Fyrir hönd aðstandenda,
Helga Aaberg.
+
Elskulegur eiginmaður minn,
RICHARD WYNVEEN
bóndi,
Baldwin,
Wis. USA,
lést miðvikudaginn 20. desember sl.
Helga Magnúsdóttir Wynveen frá ísafirði.
j
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
AÐALBJÖRN Þ. BJÖRNSSON,
Hátúni 8,
Reykjavík,
sem lést föstudaginn 22. desember, verður
jarðsunginn frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn
2. janúar kl. 13.30.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknar-
deildar Kópavogs fyrir einstaka umönnun.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á líknardeild Landspítalans.
Kristinn L. Aðalbjörnsson, Lilja Hauksdóttir,
Ingólfur B. Aðalbjörnsson, Sigurlaug Jónsdóttir,
Rósa Aðalbjörnsdóttir,
Linda S. Aðalbjörnsdóttir, Örnólfur Lárusson,
Sólveig M. Aðalbjörnsdóttir, Árni Reynisson,
Björn V. Aðalbjörnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
HLOÐVER F.
MAGNÚSSON
+ Hlöðver F. Magn-
ússon fæddist á
Hellum í Landsveit 2.
september 1924.
Hann lést á heimili
sínu á Hellum 9. des-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Magnús Jónsson,
bóndi á Hellum, f. 9.
júní 1891, d. 2. mars
1972, og kona hans
V. Ingibjörg Filipp-
usdóttir, ljósmóðir, f.
23. ágúst 1891, d. 24.
október 1976. Hlöð-
ver átti þrjú systkini,
Guðrúnu, f. 3. desember 1920,
maki Friðþjófur Strandberg, f. 29.
desember 1921, Áskel, f. 11. októ-
ber 1926, d. 31. desember 1994,
eftirlifandi maki Guðmundina
Magnúsdóttir, f. 2. september
1936, og Ingibjörgu, f. 29. apríl
1931, maki Þorsteinn J. Þorsteins-
son, f. 20. aprfl 1931.
Eftirlifandi sambýliskona Hlöð-
vers er Margrét Sigurjónsdóttir,
Hlöðver Filippus Magnússon
bóndi á Hellum er látinn. Hibbi eins
og hann var alltaf kallaður, lést
þann 9. des. sl. Þó hann og vafalaust
flestir aðrir hafi átt von á að jarð-
vist hans færi senn að Ijúka, kemur
andlátsfregn alltaf á óvart. A.m.k.
óraði mig ekki fyrir því, er ég fór
frá Hellum föstudagskvöldið 8. des.
sl. að heyra andlátsfregn hans
morguninn eftir. Að útfór hans, sem
fór fram laugardaginn 16. des. sl. í
kyrrþey að ósk hans sjálfs, afstað-
inni fer ekki hjá því að minningar
leiti á hugann. Minningar um góðan
og traustan vin. Að rekja þá sögu
alla er útilokað í örstuttri grein, þó
ég hljóti að minnast á örfá atriði.
Vorið 1945 fluttust foreldrar mín-
ir austan úr Skaftafellssýslu út að
Galtalæk. Þegar pabbi fór að skoða
jörðina snemmvors 1945 og fór
gangandi frá Landvegamótum að
Galtalæk, kom hann við á ýmsum
bæjum, m.a. að Hellum, átti tal við
Magnús bónda, kom í bæinn sem
öllum gangandi var þá skylt. Þá
áttu þeir fyrst tal saman pabbi og
Hibbi. Er ég fór í skóla haustið
1954, þá tíu ára gamall, var barna-
skólinn á Hellum til 1958, er ég lauk
fullnaðarprófi sem þá var kallað. Þá
vetur átti ég heima á Hellum.
Hibbi, þetta karlmenni, lék við okk-
ur ungdóminn sem jafningi. Eg hef
aldrei séð jafn miklu afli beitt af
þvílíkri hógværð. Minningar mínar
um Hibba á Hellum eru eitt af því
sem ég er þakklátur fyrir og vil
eiga. Sagan hélt áfram, þegar þau
Margrét systir mín fóna að draga
sig saman, á næst síðasta áratug
aldarinnar. Þeim fæddist dóttirin
Jóhanna á fertugasta afmælisdegi
Margrétar. Mér er óhætt að segja
að hamingja þeirra var fullkomin
þá. Ætti heimurinn marga menn
eins og Hibba væri hann vel viðhlít-
andi.
Systrum hans, systkinabörnum,
dætrum og Margréti votta ég mína
dýpstu samúð. Þið áttuð góðan að.
Þú og lífið lékust á
lán réð auðnu skipta.
Þín hefur lokast logabrá,
lifað höpp og gifta.
Genginn vinur gæfuslóð
gata lífs er búinn.
Þín æ minnast fögur fljóð,
frændur,vonin, trúin.
Leiddur sértu lífs áveg
lukkan ferðum stýri ótreg.
Höppin, gifta, þrek í þraut,
þinni sálu greiði braut.
Páll Sigurjónsson, Galtalæk.
Elsku Hibbi.
„.... Þröstur minn góður það er
stúlkan mín“. Þetta söngst þú svo
hátt þegar þú varst að slá á Far-
malnum gamla niðri við Borgir að
það yfirgnæfði hávaðann í traktom-
um og sláttuvélinni.
f. 2. febrúar 1949,
frá Galtalæk f Land-
sveit. Foreldrar
hennar eru Sigurjón
Pálsson, f. 9. septem-
ber 1911, d. 30. mars
1997, og Sigríður
Sveinsdóttir, f. 24.
janúar 1914. Hlöð-
ver og Margrét áttu
eina dóttur, Jó-
hönnu, f. 2. febrúar
1989. Einnig átti
Hlöðver dóttur af
fyrra hjónabandi,
Erlu, f. 6. október
1958.
Hlöðver helgaði allt sitt líf bú-
skap á Hellum og sveit.inni sinni,
sem hann unni af öllu hjarta. Með
búskapnum starfaði hann í nokk-
ur ár við fiskeldisstöðina í Fells-
múla, starf sem færði hann í mikla
nálægð við Veiðivötnin, sem voru
honum svo kær.
títfór Hlöðvers fór fram í kyrr-
þey frá Skarðskirkju í Landsveit
16. desember.
En allt er í heiminum hverfult og
skjótt skipast veður í lofti. Mér
finnst ótiúlegt að þú skulir geta
verið farinn frá okkur, þú sem varst
alltaf svo fullur af lífi og gleði og
krafti.
Minningarnar hrannast upp um
svo góðan frænda, vin og félaga.
Alltaf gat ég leitað til þín. Alltaf gat
ég fengið góð ráð og aðstoð. Alltaf
af höfðingsskap eins og þér var ein-
um lagið. Þær voru ófáar stundirn-
ar, sem ég átti með þér í jeppabras-
inu mínu og í veiðimennskunni. Og
dásamlegu stundirnar, sem ég átti
með þér, innan um lífið þitt í sveit-
inni. Þú svo sterkur og kunnir ráð
við öllu. Minningarnar veita mér
hlýju. Hibbi, það er svo notalegt að
eiga þessar minningar nú þegar þú
ert allur.
Mér er þó efst í huga þakklæti.
Þakklæti fyrir að hafa fengið að
ganga með þér. Þakklæti fyrir alla
gleðina með þér. Þakklæti fyrir all-
ar góðgjörðirnar í minn og minna
garð. Já, þakklæti fyrir allar stund-
irnar, sem ég hef átt með þér.
Elsku Margrét og Jóhanna, megi
góður Guð styrkja ykkur og veita
ykkur frið í sorg ykkar.
Hibbi, ég sakna þín.
Þinn frændi,
Hlöðver.
Morguninn sem hann Hibbi
frændi dó vaknaði ég snemma. Ég
áttaði mig þó fljótt á því að það var
laugardagur og ákvað því að sofa
aðeins lengur.
Fljótlega var ég komin aftur í
draumaheiminn og fannst sem ég
stæði á hlaðinu á Hellum. Rauð-
bleik kvöldsólin litaði himininn og
þegar mér varð litið út í haga sá ég
hvar fjölmennur hópur fólks kom
ríðandi í átt að bænum í skipulegri
röð og yfir þeim ríkti mikill hátíð-
arblær.
Draumurinn varð ekki lengri en
þetta en seinna þennan sama dag
frétti ég að hann Hibbi hefði látist
þá um morguninn. Mér þykir því
víst að þetta fríða föruneyti sem
þarna var á ferðinni hafi komið til
þess að sækja hann Hibba og færa
hann yfir til betri heims þar sem
hann er nú frjáls og laus við sjúk-
dóminn sem hrjáði hann undanfarin
ár.
Ég er ein af þeim fjölmörgu sem
dvöidust í mörg sumur í sveitinni
hjá Hibba. Um þá dvöl á ég ótal
góðar minningar og því langar mig
að lokum að segja þetta: Takk
Hibbi, fyrir að kenna mér ekki að-
eins að stoppa í sokka, reka kindur,
elda hafragraut og keyra dráttarvél
heldur svo margt annað sem er og
verður gott veganesti í lífinu.
Til ykkar, elsku Margrét og Jó-
hanna, sendi ég mínar innilegustu
samúðarkveðjur og megi guð
styrkja ykkur í sorgykkar.
Helena Margrét Áskelsdóttir.
Til Hibba stóra:
Eg heyri söngrödd sterka óma,
frá hjartanu þínu staðfasta hljóma.
Með öryggi, rökfestu og hug,
hún þér lyftir á æðra flug.
Gestrisni, gæska og tryggð,
þér ávallt var eðlislæg dyggð.
Lífið þú gæddir, með krafti og auð.
An þín verður veröldin snauð.
Elsku Hibbi, ég sakna þín svo
mikið. Þú munt alltaf skipa stóran
sess í mínu hjarta.
Anna María.
JOHANNA GUÐRUN
SIGMUNDSDÓTTIR
+ Jóhanna Guðrún
Sigmundsdóttir
fæddist á Bjarna-
stöðum í Unudal í
Skagafirði 27. maí
1910. Hún lést á St.
Fransiskusjúkrahús-
inu í Stykkishólmi
20. desember síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Sig-
mundur Símonarson
og Helga Bjarna-
dóttir.
Jóhanna Guðrún
giftist Guðmundi
Jónssyni, f. 4. júní
1905, d. 27. apríl 1971. Þau eign-
uðust eina dóttur, Kristrúnu, sem
fæddist 27. júní 1945, d. 30 júlí
1993.
títför Jóhönnu Guðrúnar fór
fram frá Hofsóskirkju 29. des-
ember. Jarðsett var í Viðvík.
Okkur systkinin langar að minn-
ast ömmu okkar, hennar Jobbu eins
og hún var kölluð, með fáum orðum.
Amma giftist afa okkar, Guðmundi
Jónssyni, og eignuðust þau eina
dóttur, Kristrúnu, en hún lést árið
1993.
Nokkrum árum eftir að afi dó
fluttist amma til okkar að Helgafelli
og bjó hjá okkur alla
tíð, eða þangað til hún
þurfti að fara á sjúkra-
húsið í Stykkishólmi
þar sem hún dvaldist
síðustu árin.
Þegar mamma vann
utan heimilisins var
amma ætíð mikil stoð
og stytta og vildi allt
fyrir okkur systkinin
gera. Á hverjum
morgni vakti hún okk-
ur í skólann og útbjó
nesti handa okkur, og
var alltaf búin að hafa
til mat fyrir okkur
þegar við komum heim. Við finnum
það í dag hvað það var mikils virði
að hafa hana þegar á þurfti að
halda.
Amma talaði alltaf um hvað hún
saknaði afa og mömmu og hvað þau
hefðu farið alltof fljótt frá henni, og
hvað hún hlakkaði til að hitta þau
þegar hún myndi kveðja þennan
heim. Nú ert þú farin eftir mörg erf-
ið ár til afa og mömmu, þar sem þau
hafa örugglega tekið vel á móti þér.
Við þökkum fyrir allt elsku
amma. Þín barnabörn,
Jóhanna Kristín, Ástríður,
Guðmundur Helgi, Hinrik,
Ragnheiður, Óskar og Ósk.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins
í bréfsíma 5691115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf-
undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli
að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða
2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.