Skírnir - 01.01.1885, Blaðsíða 6
8
ALMENN TÍÐINDI.
slita, skal á það minnzt í niðurlagi þessa kafla, eða aptan við
ársfrjettirnar, en vjer víkjum nú sögu vorri að öðrum málum,
sem síðar eru upp komin, en varða flestar þjóðir vorrar álfu
og fleiri, og eru svo vaxin sem hin eldri, að vel og góðgjarn-
lega þarf til að stilla, ef hjá vandræðum skal komizt og mis-
klíðum.
Fyrir kappsmuni margra frægra ferðamanna og landkannara
hefir mönnum orðið á þessari öld mun kunnugra enn fvr um
hinn innri landageim Afriku, um kosti landanna og afurðir, um
stórárnar, t. d. Níl, Niger og Kongó, og um þær flutninga-
leiðir, sem um ár og vötn liggja, og svo frv. því fylgdi, að
mörgum tók að leika hugur á landeignum í þeirri álfu, eða
færa þar út verkastoðvar hinna siðuðu þjóða. það var eptir
frægðárferðir Stanleys um þvera Afriku frá Sansíbar og með-
fram Kongó, að siglingarnar fóru vaxandi ár af ári eptir alls-
konar varningi og ávaxtagæðum Suðurálfunnar. A suman
varninginn er minnzt i »Skírni« 1883 (64—65. bls.). Afríka
er ef til vill sú kostamesta af öllum álfum heimsins, og fróðir
menn telja svo, að tala þeirra manna (af villiþjóðunum), sem
lifa þar nú af þvi sem náttúran framleiðir yrkingarlaust, muni
vera á milli 120 og 200 millíóna, en þar geti 1000 millíóna
haft nóg til framfæris, þegar helmingur álfunnar er korpinn i
hendur og undir ræktun siðaðra þjóða. Af þessu má ráða,
hvert verkasvæði þeim er hjer markað til bólfestu og allskonar
framtaksemi. þar sjest líka mót til — og það þegar til muna
— að hjer verði »handagangur i öskjunni« sem við segjum á
Islandi. það var, sem fyr var á vikið, eptir ferðir og uppgötv-
anir landkannaranna (Livingstones, Camerons, Nachtigalls, Ger-
hard Rohlfs, Stanleys og fl.), að samtök og fjelög hófust i
Evrópu til að ná fleiri stöðvum í Afriku, reisa öflugri skorður
við mansali, og svo frv. Leópold Belgjakonungur gerðist for-
stöðumaður og verndari þessa fjelags, sem komst á stofn í
Bryssel 1876, og siðar nefndist, »Alþjóðafjelagið við efri Kongó
(til landnáms og verzlunar)«, er Stanley hafði kannað hinn syðri
hlutaá miðbikiálfunnar, rennsli fljótsins, kvislir þessog þær ár, sem
i það renna. Fjelagið gerði hann að fulltrúa sínum og forustu-