Skírnir - 01.01.1885, Qupperneq 128
130
RÚSSLAND.
hinnar grisku kirkju, og því bæri Rússum að reisa hús tit
prestask'óla handa prestsefnum Bolgara við hliðina á lcirkjunni
rússnesku í Sjipkaskarðinu,#) og skoraði síðan á «Slafavina-
fjelagið,» að senda öll rit sin og sem mest af rússneskum bók-
um til allra slafneskra þjóðflokka. f>egar menn minnast, að
Zarinn í Pjetursborg er páfi grisku eða austrænu kirkjunnar, er
hægt að skilja, að honum og stjórn hans verður að falla þungt
um, er hann hljtur að banda á móti alslafahreifingunum, en
þjónar hans og drottins veita þeim alhugað fulltingi. Vjer
löstum ekki þetta bandalag trúar og þjóðernis, en verðum að
benda á, að hið sama á sjer stað á Póllandi (og víðar), og hjer
eru það klerkar og yfirhirðar hinnar vestrænu (kaþólsku) kirkju,
sem bezt berjast í gegn hinu viðbjóðslega þjóðkúgunarvaldi
Rússa. I raun og veru mætast á Póllandi tveir páfar, en leik-
urinn er að því leyti ójafn, að annar þeirra hefir millión vopn-
aðra manna undir mérkjum sínum. Andleg vopn þeirra ætl-
um vjer öðrum á met að leggja, en um hjátrú og hindurvitni
mun óhætt að segja, að þar muni nokkuð á endum standast.*) **)
*) J>ar sem svo margir fjellu af Rússum, er þeir sóttu varðlið Tyrkja
1878.
**) pví mun annars óhætt að trúa, að prestarnir á Rússlandi, einlcum
þeir sem sveitaköllum þjóna, sje afar lítilsigldir að menntun og lær-
dómi. En það litla, sem alþýðan í sveitunum nernur, eða bændurnir,
verður jafnan til prestsins að sækja, og þegar bændurnir vilja, að synir
sínir læri að lesa og skrifa, senda þeir þá til prestsins. Hann er víða
fátækur maður, á við bág kjör að búa, og vinnur baki brotnu, sem
hendir á voru landi, og þiggur því hverja þóknun sem býðst. Til
hans er fleira leitað, Menn sækja hann til að stökkva vígðu vatni
á ný hús, á engjar og akra í þurrkatíð eða öðru gróðrarleysi, og að
þylja yfir sjúkum mönnum og gripum. Hann er sálnahirðir safnaðar-
ins, læknir, og ráðgjafi í þrætum og vandamálum. Hið fyrsta er ef
til vill ljettast, og i því helzt fólgið að lesa messur og valta yfir
kirkjurækninni, hún aptur í því. að fórna til dýrðlinganna, gera bænir
sínar fyrir líkneskjum þeirra, hneigja sig fyrir þeim og kyssa þær. En
bjer verða bæadur að bíða, þar til er herrafólkið er búið að afgreiða
sig. Bændur á Rússlandi eru orðlagðir fyrir hvorttveggja: sóðaskap og
drykkjuskap, og afþví prestar eiga svo mikið saman við þá að sælda,
verða fegnir heimboðum þeirra, drekka með þeim og spila, þá fer svo