Skírnir - 01.01.1885, Blaðsíða 64
66
ENGLAND.
umboðsmenn hans mök við þrælasalana eða önnur svik í frammi,
sumstaðar komu óeirðir upp og uppreisnir, og því var Gordon
jafnast á ferðum og átti í eitingaleik við ódygga kynflokka ogr
umboðsmenn um allan þenna landageim. Jarlinn hafði boðið
honum i laun 10,000 pund sterlinga, Gordon vildi ekki talca
meira enn 2000. þegar jarlinn varð að skila af sjer völdum
1879, sætti Gordon því færi og sagði af sjer virðing og vanda
i Súdan. Áður enn hann hjelt heim á leið, tókst hann sendi-
för á hendur til Abessiniukeisara og fjekk þar heldur óvinveittar
viðtökur. Keisarinn hatar Egipta og alla Tyrkja, og ljet Gor-
don vita, að hann hefði lif hans í hendi sjer. Gordon bað
hann á móti að trúa sjer til, að lífið stæði sjer á minnstu, og
hann mundi svo flytja erindi sitt og mæla af fullri einurð sinni,
sem hann fyndi sjer skylt. Við þetta dró úr stóryrðum keisar-
ans, þó litið sem ekkert fengist af honum af því sem til var
mælzt um samningagerð við Egipta. Gordon kenndi bæði
þreytu og lasleika þegar hann hjelt aptur til átthaganna (1880)
og hjet þá að njóta næðis og langrar hvíldar. Hún varð þó
skemmri enn menn ætluðu, því árið á eptir fylgdi hann vara-
konunginum nýja, Nipon jarli, til Indlands. Hann átti að vera
skrifari varakonungsins, en á leiðinni sá hvor um sig, að álit
þeirra áttu hvergi saman, og þegar Gordon kom i land í Bombay,
bað hann sjer lausnar af embættinu. Sínlendingar áttu þá í
ófriði.við Rússa, og Lí-Hung-Chang (Tsjang) þótti vel að bera,
er Gordon var aptur á austurvega kominn, og sendi vin sin-
um boð og vildi hafa tal af honum og ráð. Gordon brá
skjótt við, og fjellust vinirnir í faðrna þegar þeir fundust. I
þeirri ferð var það, að Gordon samdi langa tilskipun eða fyrir-
skipunarskrá um það, hvernig Sinlendingar skyldu haga rikis-
vörnum á sjó og landi. Eptir ráðum hans og reglum hafa
þeir líka farið í öllum höfuðatriðum, og hefir það nú komið
fram i vörninni mót Frökkum. Frá Sínlandi fór hann til St.
Mauritius (eyjar i austur frá Afríku) og hafði þar mælingaum-
boð á hendi um tima, bæði hafsins og parts af suðurströnd
Asiu. 1882 kvaddi landstjóri Englendinga í Suðurafriku (Cap-
landinu) hann þangað, og ætlaði að neyta ráða hans og dugn-