Skírnir - 01.01.1889, Page 6
8
FRIÐUR EÐA ÓFRIÐÚR.
vinir1). England, Holland, Danmörk, Svíþjóð og Noregur
munu sitja hjá, ef þau eru ekki á einhvern hátt neydd til að
skerast í leikinn. Sama er að segja um öll smáríkin að þau
vilja helzt komast hjá ófriðnum í lengstu lög. En stórfisk-
arnir fara með smáfiskana eins og þeim sýnist hagfeldast;
smáfiskarnir mega vera glaðir, ef þeir eru ekki jetnir upp, en
fá að halda lífi og limum.
II. Ræða Bismarcks.
I Skírni 1888 bls. 16—18 sagði jeg frá falsskjölunum al-
ræmdu og hversu ófriðlega leit út um áramótin. Blað hinnar
rússnesku hermálastjórnar, «Invalide Russe», hafði sagt að þó
þeir þokuðu liði vestur að landamærum, þá væri fremur vörn
en sókn af hendi þeirra. Hinn 18. janúar 1888 svaraði blað
hinnar þýzku hermálastjórnar, «Militárwochenblatt», að ef jafn-
breitt svæði væri tekið fram með landamærum beggja, þá væri
meira herlið Rússa megin. Svo komu vetrarhörkur og snjóar
og fréttist ekki meira frá landamærunum, en hershöfðinginn
Gúrkó, sem varð svo frægur fyrir afreksverk sin í stríðinu við
Tyrki 1877—78, var skipaður yfirforingi yfir lið Rússa vestur
á Póllandi. Stjórnirnar i Vesturevrópu lofuðu friði. Tisza hélt
ræðu í Pest og kvaðst ekki halda að ófriður vofði yfir sem
stæði, en bezt væri að vera ekki varbúnir við honum. jbessi
orð hans bárust til Vínarborgar með hraðfrétt, sem sleppti
orðinu «ekki» á undan «halda». Vinarbúar urðu uppvægir
við þessa frétt, en hún var strax leiðrétt. Carnot talaði friðar-
orð við sendiherra þjóðverja og sendi Vilhjálmi keisara friðar-
boð. Vilhjálmur keisari sagði við forseta Prússaþings, að hann
vonaði, að friður héldist, og Salisbury sagði sama í Liverpool. En
þjóðverjar jóku setulið og fallbyssur á landamærum sínum
austur og vestur. Alexander keisari sagði ekkert um frið og
ófrið á nýjársdag Rússa 18. janúar, en sæmdi heiðursmerkjum
ýmsa af fjandmönnum þjóðverja. Seinna komst hann svo að
orði í svari sínu til Dolgorukoff, jarls í Moskvu, að hann vonaði
’) Nú (í marz 1889) er Serbía viss að vera með Rússum, og Rússa-
vinir hafa ráðin í Rúmeníu.