Skírnir

Ukioqatigiit

Skírnir - 01.01.1889, Qupperneq 8

Skírnir - 01.01.1889, Qupperneq 8
10 FRIÐUR EÐA ÓFRIÐUR. inum og aldrei hafa |>jóðverjar verið meir á glóðum. Flestir höfðu augun á hinum litlu dyrum nálægt sæti forseta, sem Bismarck er vanur að koma inn um, og heyrðist ekki annað í þingsalnum en þyturinn i mannþyrpunni. Klukkan 1,45 kom Bismarck inn með hið alþekkta rauða skjalaveski sitt i hend- inni og settist í sæti sitt; hinn risavaxni blýant hans lá þar á borðinu. Forseti hringdi og sagdi: Fiirst Bismarck, ríkis- kansellerinn, hefur orðið. Bismarck talaði hægt og ekki hátt. Nokkru fyrir klukkan 3 settist hann niður i 10 mínútur, en hélt áfram. Klukkan 3,ss endaði hann þessa miklu ræðu, sem meðal annars gefur yfirlit yfir margt af aðgjörðum hans í utan- rikismálum 1860—88. Hann drakk sódavatn og cognac til að hressa sig; 'sonur hans Herbert rétti honum það við og við. Jeg ætla þá að lofa Bismarck að segja lesendum Skírnis frá stórpólitikinni í Evrópu; jeg treysti honum til að gera það betur en nokkur Skírnisskrifari, fyrverandi eða núverandi; jeg þýði þá kafla úr ræðu hans, sem merkastir eru. Ræðan. «Jeg tek ekki til máls í dag til þess að biðja yður að samþykkja frumvarp það, sem er til umræðu. Jeg efast ekki um að þér, eins og nú er ástatt, munið auka her vorn. það er öllu fremur horfið í Evrópu sem jeg mun tala um. Jeg geri það nauðugur, því eitt orð getur spillt mörgu og mörg orð eru til litilla bóta. En jeg geri það til að stiila til friðar. Ef jeg ekki talaði, mundu menn halda að jeg, utanríkisráðgjafinn, þyrði ekki að tala um þetta mál. Jeg gæti látið mér nægja með að vísa til þess, sem jeg hef áður sagt hér1). Horfið er i raun og veru hið sama nú, að góðu og illu. þá vofði yfir ófriður við Frakkland. Siðan hefur Frakkland skipt um forseta. það er góðs viti, að þeir hafa ekki rokið upp á oss um leið. þeir hafa ekki ögrað oss. það virðist eins og þeir séu orðnir ráðsettari en áður. Jeg held líka að hugarþel Rússa til vor sé hið sama og ) Sjá Skírni 1888 bls. 5 — 7.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94

x

Skírnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.