Skírnir - 01.01.1889, Page 10
12
FRIÐUR EÐA ÓFRIÐUR.
lands. Jeg held því að engin hætta sé oss búin, sem stendur,
af Rússum. Við austræna málið1) erum vér ekki mest riðnir.
J>au ríki, sem eru mest við riðin, verða að afráða hvort þau
vilja sættast við Rússa eða heyja strið við þá. Vér þurfum þvi
ekki að auka her vorn vegna yfirvofandi ófriðarhættu; jeg vil að
þetta frumvarp verði samþykkt án nokkurs tillits til þess.
Jeg man hvað ófriðlega var látið 1858. þá varð jeg eins
og lóð á klukkustreng að dingla fram og aptur milli Berlín
og Frankfurt eptir því hvort konungi (Friðrik Vilhjálmi 4.)
þótti látið of ófriðlega við Austurríki eða honum þótti ráð-
gjafarnir of ístöðulausir. Jeg fór eptir ósk konungs til Parísar
til að semja við Napoleon 3. um, að prússneskt herlið færi um
Sviss. þá var búið við Evrópustríði, og ef vér hefðum tekið
þátt í ófriðnum2), þá hefði allt staðið í ljósum logum; svo kom
allt í einu friðurinn í Villafranca. Svo I8633) héngu sendi-
herrar Frakka og Englendinga i mér allan morguninn, svo mér
hitnaði um tunguræturnar. Um miðjan daginn skemmti jeg
mér við að heyra sömu skammirnar dynja yfir mig á þing;
Prússa (hlátur). Jeg kippti mér ekki upp við þetta, en þolin-
mæði Alexanders keisara var á enda og hann vildi hefja ófrið
með oss. En konungur vildi ekki jafna þýzkar misklíðir með
útlendri hjálp. Ef hann hefði sagt já i staðinn fyrir nei, þá
hefði hið mikla Evrópustríð komið 1863. Annar kon-
ungur hefði ef til vill ekki gert það — í útlöndum þekkja
menn ekki skyldurækt og samvizkusemi þýzkra stjórnenda (heyr)
og ábyrgð ráðgjafanna. Árið 18644) kom ný hætta og hótanir.
En þá sá jeg hvað óárennileg þýzkaland og Austurriki eru
ef þau eru samtaka (heyr). Svo kom hið mikla stríð (milli
Austurrikis og Prússa) 1866. þá þurftum vér að sýna viðleitni
og stillingu til að komast hjá Evrópustríði. Arin 1867—70
vofði sífellt mikill ófriður yfir höfði oss. Ástandið var slíkt
að opt var sagt við mig: þetta er óþolandi; það er miklu
') Búlgaría.
a) milli Frakka og Austurrikismanna.
3) Uppreisn Póllands.
*) ófriður við Dani.