Skírnir - 01.01.1889, Blaðsíða 12
14
FRIÐUR EÐA ÓFRIÐUR.
um vorum, Rússum, greiða, þvi vér leystum hendur þeirra við
Svartahaf með sigrum vorum. Öll viðskipti vor við Rússa
stefndu að því að halda við gömlum vináttuböndum. (Bismarck
stendur upp).
Árið 1875 sýndu Rússar oss í fyrsta skipti óvináttubragð.
Hinn rússneski embættisbróðir minn Gortjakoff gerði oss rangt
til, að því er Frakkland snerti, í hraðfrétt. Svo kom stríðið
milli Rússa og Tyrkja. A undan því gerðu Rússar og Austur-
rikismenn samning um Bosníu1). Vér vorum glaðir þegar ill-
viðrið fór i suðurátt. Friðurinn (i San Stefanó) var ekki Rúss-
landi hagkvæmari en Berlinarsamningurinn2) árið eptir. Jeg
lá veikur i Friedrichsruhe, þegar Rússar skoruðu á mig að
kalla saman stórveldafund. Jeg gerði það hálfnauðugur því
það var' ábyrgðarhluti að stýra þeim fundi. En jeg tókst það
á hendur af skyldurækt til að halda við íriðnum. Fundurinn
var haldinn og jeg þori að segja, að jeg, að svo miklu leyti
sem hagur ættjarðar minnar leyfði það, kom fram á honum
eins og jeg hefði verið fjórði fulltrúi Rússa3), og jafnvel betur
(hlátur). Eptir fundarlokin sagði jeg við sjálfan mig: nú fæ
jeg víst hið hæzta rússneska heiðursmerki með demöntum í
(hlátur). En i stað þess var heimtað af mér, að jeg skyldi
heimta hitt og þetta af Austurríki, sem jeg ekki gat gengið
að; ef vér hefðum hrint Austurríki frá oss, þá hefð-
um vér orðið undirlægjur Rússa. |>á komu hótanir; svo
neyddist jeg til þess sem jeg hafði lengi komizt hjá, að velja
um Rússland eða Austurríhi. Jeg valdi Austurríki og þá (1879)
var sá samningur gerður, sem hefur verið birtur nýlega. það
er rangt að segja, að þessi birting sé sama og að setja Rúss-
um tvo kosti, frið eða ófrið.
Samningurinn er og verður báðum rikjunum í hag (heyr).
Hann er þess vottur að þau eru samtaka í öllum hættum.
Eins er um oss og Itali — vér styðjum og verndum
hvorir aðra. Traust allra sambandsríkjanna til þess, að ekkert
þeirra verði undirlægja annars, er vottur þess hversu öruggt
*) Austuríki heldur Bosniu enn.
a) þessu lýgur Bismarck, segja Rússar.
3) Lygi, segja Rússar.