Skírnir - 01.01.1889, Page 14
16
FRIÐUR EÐA ÓFRIÐUR.
er hætta búin af Frakklandi og Rússlandi; vér verðum strax
að láta skríða til skara; vér þurfum 1000 miliónir — jeg veit
ekki hvort þér treystið mér svo vel, að þér genguð að því
(hlátur), en jeg vona það. En það er víst, að ef vér rötum i
stríð, þá verður það þjóðstrið, sem ættjarðarást allrar þjóðar-
innar háir (ópað, heyr), |>á mun öll þjóðin norðan frá Memel
og suður til Bodenvatns loga upp eins og púðurgöng og við þenna
«furor teutonicus» (þýzkt æði) mun naumlega nokkur mótstöðu-
maður þora að eiga (heyr, óp). Vér erum friðsöm þjóð, en
ef mótstöðumenn vorir halda, að vér elskum friðinn af þvi vér
séum hræddir við leikslok i ófriði, þá skjátlast þeim furðan-
lega (heyr, heyr). Vér erum vissir um sigur þýzkalands, en jeg
segi: eitthvert annað riki verður að kveikja upp striðslogann;
vér kveikjum hann ekki. Vér leitumst við að halda friði við
nágranna vora, einkum Rússa; jeg þarf ekki að segja, að eins
er um Frakka. þér vitið hvað vægir vér erum við franska
njósnarmenn; út af slíkum smámunum dettur oss ekki i hug
að hleypa oss í ófrið; vér höldum oss við hið fornkveðna: sá
lætur undan, sem vitið hefur meira (hlátur). Blöð Rússa hafa
vísað oss norður og niður; nú, vér skulum ekki dekstra þau; vér
munum að eins sjá um, að samningar þeir, sem vér höfum gert
við Rússa séu haldnir (heyr, heyr).
Sama er að segja um Búlgaríu. Til 1885 varnaði enginn
Rússlandi að ráða eins og það hafði rétt tii í Búlgaríu. Að því
er oss snertir, verðum vér að halda oss við samningana og get-
um ekki skipt oss af hvað Búlgaria segir. Ef menn vegna
hinnar litlu Búlgaríu vildu kveikja stríðsloga um alla Evrópu,
þá mundu þeir í lok ófriðarins varla vita, hvers vegna þeir
hefðu háð hann (hlátur). Ef Rússland skoraði á oss að mæla
með kröfum þess í Búlgariu við Soldán, þá mundi jeg strax
gera það.
Jeg bið yður að ræða frumvarpið, ekki vegna þess að
hætta sé á ferðum, en til þess að vér getum því betur safnað
hinum volduga her vorum og útbúið hann. 1 útlöndum halda
menn að þeir geti ógnað öss. þeir ættu ekki að vera að því;
einkum eru hótanir útlenzkra blaða álcaflega heimskulegar. það
er máttlaus prentsverta; vér erum ekki hræddir við hana.