Skírnir - 01.01.1889, Blaðsíða 22
24
ÝMISLEGT.
Sama er að segja um Stanley, að bréf frá honum eru
ókomin enn nema ómerkilegt bréf til Tibbú Tibs, Arabahðfð-
ingjans, sem heldur vörð við efri hluta Kongófljótsins. Stanley
hafði komið til herbúða sinna við Aruwimifljótið 17. ágúst
1888 (hann lagði af stað þaðan í júlí 1887) að sækja vistir ;
hann hafði hitt Emin pasja og ætlaði aptur til hans.
Árið 1888 var verið að grafa 3 stórskurði í heiminum,
Panamaskurðinn, Korintuskurðinn og Manchesterskurðinn. Uin
Panamaskurðinn skal jeg segja í Frakklandsþætti. Korintu-
skurðurinn gegnum eiðið við Korintuborg er líka grafinn af
Frökkum. Manchesterskurðurinn á að gera Manchester að
sjóbæ, og verður skipgengur.
Frá sýningunni i París verður næsta árs Skírnir aðgreina.
FifFelturninn er nú algjör. Hann er rúm 900 feta á hæð.
Minningarvarði (obelisk) Washingtons í bænum Washington er
555 feta á hæð, en engin bygging í heimi kemst i hálfkvisti
við Eiífelturninn; 180 vinnumenn hafa unnið að honum og
hann er allur úr járni. Rafurmagnsljós verður haft ofan á
honum; 10,000 manns geta verið í turninum i einu og yfir-
smiðurinn Eiffel ætlar að búa ofan á honum sjálfur. |>að
kostar 5 fránka (3 kr. 60 aura) að fara upp efsta lopt í
honum, en minna upp á neðri loptin. Á hverju lopti eru
stórar veitingastofur. Parisarbúar urðu dauðhræddir einn dag
er .sagt var að turninn hallaðist, en það hefur reynst ósatt. Á
Parísarsýningunni verður flest að sínu leyti eins stórkostlegt
eins og turninn!
England
England, bound in with the triumphant sea.
(England, girt sigrandi sæ).
Shakespeare’s Richard II.
Act 2, Scene i.
Floti og her. þingsaga. Gladstone. Wales. Kanada. Afríka.
Lundúnir. Imþerial Federalion. Mannalat.
England er hið eina land í Evrópu, sem ekki hefur lög-
leitt almenna herskyldu. |>ess vegna spá dönsku blöðin (hvort