Skírnir - 01.01.1889, Síða 25
ENGLANl).
27
Tekjur og útgjöld Englands voru líkt og i fyrra, um 90 mil-
iónir punda sterling. Goschen færði telcjuskatt úr 7 pence
(== 56 aurar) af 1 £ (= 18 krónur) niður i 6 pence (== 48
aurar). Hann varð að verja fé til héraðastjórnanna og lagði
því toll á aðflutt vinföng. Með þessu móti stóðust tekjur og
útgjöld vel á.
Flokkarnir á þingi eru ekki jafn fjölmennir nú og árið
1886, þegar kosningar fóru fram. Siðan hafa verið margar
aukakosningar og 1. marz 1889 stóðu þingflokkarnir að vígi
sem nú skal greina. Arið 1886 voru Salisburys liðar (Con-
servatives) 816, Chamberlains og Hartingtonsliðar (Liberal
Unionists) 78, Gladstones liðar (Liberals) 196 og Parnells liðar
(Parnellites) 80. f>annig hafði Salisbury 394, en Gladstone
276 fylgismenn. I marzbyrjun 1889 voru Salisbury liðar 312.
Uniónistar 70, Gladstoningar 203 og Parnellingar 85. þannig
hafði Salisbury 382 og Gladstone 288 fylgismenn. Árið 1886
hafði Salisbury 118 atkvæðum meir en Gladstone; i marz-
byrjun 1889 hafði hann ekki nema 94 atkvæðum meir1).
Einkum var það allmerkilegt að einn af þingmönnum Edína-
borgar, Buchanan, sem var valinn 1886, sem Uniónisti, lagði
niður þingmennsku. Hann kvaðst hafa breytt skoðun sinni og
vera kominn á mál Gladstones. Kosning fór fram 19. febrúar
og hann var endurkosinn. Af þessu má marka að hin enska
þjóð er að snúast á mál Gladstones, þó hún fari hægt að þvi.
Irland og írska málið er enn þá aðalmálið á Englandi
utanþings og innan. Balfour, Irlands ráðgjafi, hefur sett marga
irska þingmenn í fangelsi útaf fundahöldum og ræðum. Einn
af þeim, Mandeville að nafni, dó nokkru eptir að hann kom
út úr fangelsinu í Tullamore. Gladstor.ingar segja, að Balfour
hafi kvalið lífið úr honum. Enskt skáld, Wilfred Blunt, sem er
giptur dóttur Byrons, var settur í fangelsi fyrir ræðu. Hann
bauð sig fram á einum stað til þings, meðan hann sat i fang-
elsi. Kona hans hélt ræður og barðist á ýmsa vegu með
snilld fyrir kosningu hans. Mótstöðumaður hans varð samt
2) Siðan þetta var skrifað hefur Salisbury misst einu fylgismann við
aukakosningu og Gladstones flokk fjölgað um einn.