Skírnir - 01.01.1889, Blaðsíða 26
28
ENGLAND.
kosinn. í ræðu einni, sem Gladstone hélt um haustið 1888
i Wales, sagði hann að ekki hefði hinn alræmdi Ferdínand annar
í Neapel farið ver með politiska fanga en Balfour færi með þing-
menn Ira. þannig er irska málið enn þá óútkljáð.
I Skírni 1888 bls. 24 sagði jeg frá bréfum þeim, sem
Times hafði birt og sagt, að þau væru eptir Parnell. Parnell
krafðist að nefnd af þingmönnum skyldi rannsaka þetta mál.
Stjórnin vildi ekki ganga að því, en nefndi þriggja dómara nefnd
til þess. Parnell vildi ekki ganga að því og var frumvarpið um
það ekki samþykkt fyr en 8. ágúst, en umræður um það byrj-
uðu 16. júií. þessi dómaranefnd kallast «The Special Com-
mission*, og byrjaði hún á málinu 22. október. Times hefur
verið að leiða fram vitni, sem áttu að sanna, að þingmenn
íra og þjóðfélagið írska væri óbeinlínis og beinlínis valdir og
riðnir við öli hryðjuverk, morð og ódáðaverk á írlandi. Sagt
er að málið kosti Times 18,000 krónur á dag. Hinn 14
desember var málinu frestað til 15. janúar. Urslit málsins
verða að koma í næsta Skirni.
Hagfræðingar hafa reiknað út, að ef ekki hefðu flutzt svo
t ,
mikill grúi af Irum úr landi 1841—89, þá mundi Irland hafa haft
13 miliónir íbúa í stað 3Ví milióna, sem írland nú hefur. En
raunasaga Irlands er bráðum á enda, segir Wiiliam Ewart
Gladstone.
Hann verður áttræður 29. desember 1889. Parnell (Charles
Stewart) er ekki nema 42 ára og John Morley, sem gengur
næst Gladstone að forustu og skörungskap og tekur við eptir
hann, er fimmtugur. Parnell hefur verið i 13 ár á þingi og i
10 ár flokksforingi. Gladstone hefur verið á þingi í 57 ár og
verið flokksforingi hérumbil 30 ár. Tveir af sonum Gladstones
eru þingmenn; þriðji sonurinn er prestur á Hawarden, bú-
garði hans. Gladstone hélt gullbrúðkaup sitt haustið 1888; kona
hans er mesti kvennskörungur; hún hjálpar honum við ýms
ritstörf og heldur jafnvel einstaka sinnum ræður, þegar hann
er ekki viðlátinn. Bróðir Gladstones, 85 ára að aldri, er mót-
stöðumaður hans i pólitik. Hann hefur talað og greitt atkæði
móti honum alla sína daga. En þó að þeim hafi borið