Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1889, Side 32

Skírnir - 01.01.1889, Side 32
34 FRAKKLAND. um leyfi til að mega lýsa yfir opinberlega, að hann hefði verið boðinn fram til kosninga án vitundar og vilja hans sjálfs. Hann fékk ekki leyfið, en birti bréf sitt í blöðunum. f)á voru tekin af honum foringjavöld og skipuð dómnefnd af herfor- ingjum til að dæma mál hans. Hinir tólf þingmenn, sem eru Boulangistar (fylgisveinar Boulangers, helztur þeirra er Laguerre) tóku sig nú saman um, að láta kjósa hann við aukakosningu 25. marz, þó hann væri enn ekki rekinn úr hernum. Bou- langer var kallaður fyrir nefndina 23. marz í París. Við kosn- ingar 25. marz í Laon fékk hann 45,000 atkvæði, og tveir aðrir fengu hvor um sig 25,000 atkvæði. þannig varð að kjósa aptur i þessu kjördæmi og Boulanger lýsti yfir, að hann afsalaði sér þingmennskunni í hendur fylgismanni sínum Daumer, en mundi sjálfur bjóða sig fram til kosningar 15. april í Dé- partement du Nord (norðurfylki). Daumer var kosinn og sýndi þetta að Boulanger vissi hvað hann fór. Hinn 27. marz var hann dæmdur rækur úr hernum, að minnsta kosti í 5 ár, með leyfi til að bera einkennisbúning og með eptirlaunum. Nú sendi Boulanger kjósendunum í norðurfylki opið bréf 29. marz. Hann kvaðst vilja heimta nýjar kosningar til þings og endur- skoðun á stjórnarskipuninni. þingið og stjórnin væru máttlaus og ónýt. Viðvíkjandi utanríkismálum sagði hann sama og hann hafði sagt, þegar hann var hermálaráðgjafl: «Ef jeg óskaði ófriðar, þá væri jeg ýieimskingi; ef jeg ekki byggi allt undir ófrið, þá væri jeg fyrirlitlegur þorpari». Daginn eptir, 30. marz, var ráðaneyti Tirards steypt af því það vildi ekki ganga að því, að ræða endurskoðun stjórnarskipunarinnar sem fyrst. Eptir 3 daga fékk Carnot forseti Floquet til að skipa ráða- neyti. Floquet var forseti í neðri deild þings. þegar Alex- ander annar Rússakeisari var staddur í París, fám árum eptir að hann hefði kúgað uppreisn Pólverja, kallaði Floquet til hans á tröppunum fyrir framan dómhúsið í París: Vive la Pologne, monsieur (lifi Pólland, herra minn)! þetta fyrirgaf Alexander honum aldrei og heldur ekki sonur hans Alexander þriðji. En nokkru eptir ræðu Bismarcks, hélt Floquet sendiherra Rússa stórveizlu og urðu þeir mestu mátar. Má af því ráða, að

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.