Skírnir - 01.01.1889, Blaðsíða 37
FRAKKLAND.
39
að lokum, nema hvað Boulanger verði að leggja miklu fyr út
í stríð við þjóðverja en Napóleon gjörði.
Ernest Boulanger er fæddur 1837 og var móðir hans ensk.
Hann varð undirforingi (lieutenant) í Algier 1856. Síðan vann
hann sér margt til frægðar. Arið 1857 fór hann langa her-
ferð i Algier. Arið 1859 i ófriðnum milli Frakka og Austur-
ríkismanna varð hann sár við Turbigo og fékk merki heiðurs-
fylkingarinnar (legion d’honneur) fyrir framgöngu sina. Árið
1861 barðist hann í Austur-Indlandi (Tonkin, Cochin Kina).
I ófriðnum við þjóðverja var hann hersveitarforingi (chef de
bataillon) og varð sár í orustunni við Champigny. Árið 1880
varð hann herdeildarforingi. Hann var sendur til Bandafylkj-
anna sem fulltrúi Frakklands, þegar þau héldu hátið í hundrað
ára minningu frelsis sins. Hann var því næst herdeiidarfor-
ingi í Afriku hálft annað ár, þangað til hann varð hermála-
ráðgjafi 7. janúar 1886.
þjóðveldið franska varð 18 ára gamalt 4. september 1888.
Engin stjórn á Frakklandi á þessari öld hefur orðið jafn lang-
líf. En ráðaneyti Floquets var hið 24. ráðarteyti, síðan þjóð-
veldið var stofnað og vinsældir Boulangers fóru dagvaxandi, svo
nú hugsaðist Floquet og fleirum heillaráð móti honum.
þegar Napóleon brauzt til valda 2. desember 1851, þá
var einn af þingmönnum þeim sem vildu verja þjóðveldið,
læknir, Baudin að nafni, skotinn af herliði Napóleons. Nú var
ráð Floquets, að allir sem elskuðu þjóðveldið skyldu ganga í
prósessíu þenna dag fram hjá gröf Baudins, til að láta í ljósi
viðbjóð sinn á Boulanger og öllu hans athæfi. Um sama
leyti var altalað manna á milli og i blöðunum, að Floquet
ætlaði að láta taka Boulanger höndum og draga hann fyrir
lög og dóm. Prósessían átti að verða stórkostleg, hundruð
þúsunda af fólki, en þegar til kom, urðu ekki nema tæpar 10
þúsundir i henni. Floquet féll nú allur ketill í eld og Bou-
langer var látinn afskiptalaus af stjórninni. I desembermánuði
voru haldnar tvær merkisræður á móti þessum vogest. Chal-
lemel-Lacour, mikill mælskumaður, hélt fyrri ræðuna í efri
málstofunni 19. desember. Einn af flokksmönnum Boulangers,
Naquet, sem ætlaði að svara bonum, var að kalla rekinn út