Skírnir - 01.01.1889, Side 39
FKAKKLAND.
41
gríska og latína yrðu að rýma til meir en að undanförnu fyrir
nýju málunum.
í ágústmánuði var stórkostlegt verkfall i Paris. Vinnu-
menn, þjónar, vagnstjórar o. s. frv. gengu iðjulausir í stór-
hópum og heimtu hærri laun. þeir brutu glugga og gerðu
ýms spellvirki. Lögregluliðið gat naumlega hamið þá. Bæjar-
stjórnin í Paris borgaði hærri vinnulaun en aðrir, og var það
helzta tilefnið til verkfallsins; æsingamenn spönuðu vinnu-
menn upp. Einn þeirra, Eudes, varð bráðkvaddur meðan hann
var að halda ræðu og fyigdu 15,000 manns honum til grafar.
f>eim lenti á leiðinni saman við lögreglulið og herlið og voru
margir særðir og handteknir. Sprengikúlu var kastað á lög-
reglustofu, en gerði engan skaða. Stjórnin lét loka samkomu-
húsi vinnumanna. Nefnd, valin af bæjarstjórninni, átti að gera
Út um málið, en húsbændurnir vildu ekki ganga að því. Svo
hætti verkfallið smámsaman.
Eigendum Panamaskurðarins Iá við peningaþrotum og
vildu þeir fá stjórnina til að taka að sér skurðinn, en þingið
gekk ekki að þvi. Lesseps gamli, sem nú er 84 ára, kom
samt með sinni járnhörku og dugnaði Panamafélaginu á lagg-
irnar aptur, Boulanger hefur styrkt það og 15,000 vinnumenn
við skurðinn eru aptur teknir til starfa, Lesseps lauk 1869
við Suezskurðinn og byrjaði að grafa þenna skurð 1881 um
haustið. Hann verður 54 enskar mílur (11‘/s danskar) á Iengd.
f>að verður að grafa upp 3581 milión teningsfet af mold
og grjóti. Skurðurinn á að vera búinn 1890,
Hinn franski vísindamaður, efnafræðingurinn Chevreul,
varð 103 ára gamall 1888 og er fágætt, að miklir vísindamenn
nái jafnháum aldri,
Frakkar vörðu árið 1888 1000 miliónum fránka til auka-
útgjalda við her sinn. Freycinet var hermálaráðgjafi í ráða-
neytinu og hefur hann verið mjög natinn við að sjá um að
víggirðingar og allt. er til herbúnaðar heyrir, væri sem bezt úr
garði gjört.
Skáldsöguhöíundurinn Emile Zola ritaði þetta ár
skáldsögu «Le Réve» (draumurinn), sem fer í allt aðra stefnu
en aðrar skáldsögur hans, og getur hvert stúlkubarn lesið