Skírnir - 01.01.1889, Page 47
ÞÝZKALAND.
49
hélt tvaer ræður, aðra fyrir keisaranum sjálfum og hina fyrir
þýzkalandsher. Vilhjálmur svaraði og minntist á óbilandi bræðra-
lag síns hers og hins austurríkska. Keisararnir voru á dýraveið-
um í þrjá daga, en veiddu ekkert að kalla vegna iliviðra. 1
þeirri krossarigningu, sem Vilhjálmur lét dynja ofan yfir Austur-
ríki, fékk Taaffe, forseti ráðaneytisins, ekkert, enda er hann
meiri vinur Slafa en þjóðverja (sjá Austurríkisþátt). þá
fór keisarinn til Rómaborgar og voru hátíðarhöldin þar svo
stórkostleg, að ekki eru dæmi til slíks í manna minnum. það
var eins og rómverskur keisari úr forneskju væri kominn til
Italíu. Rómaborg var skrúdklædd og uppljómuð með feikna
tilkostnaði; það var höfð hersýning og flotasýning; nýjum járn-
barða var hleypt af stokkunum í Neapel og var þar T2 milión
manns viðstödd. Vilhjálmur keisari ók í vagni sem hann
hafði meðferðis frá þýzkalandi til páfahallarinnar «il Vaticano».
þeir páfi sátu nokkra stund á tali, en svo fór páfinn að spyrja
keisara úr spjörunum; þá ruddist bróðir keisarans inn og talinu
var hætt. Páfi var óánægður með keisarann, þvi hann dregur
taum hinnar ítölsku þjóðar móti honum.
þegar Vilhjálmur keisari kom heim til Berlín úr þessari
utanlandsför, færði bæjarstjórnin honum heillaóskir, og kvaðst
ætla að láta reisa gosbrunn til minningar um þessa frægðarför.
Keisarinn tók þeim snúðugt og bað þá að halda betur í hem-
ilinn á þeim blöðum, sem væru að níða sig og oflofa föður
sinn. þeim féll allur ketill í eld, sem von var, en þeir eru
allir í hinum frjálslynda flokk (Fortschrittler).
Hamborg gekk inn í tollsambandið þýzka í októbermánuði.
Hin mikla «fríhöfn», sem svo kallast, var þá fullgjör. Hún er
gjörð á árunum 1881—88 og hefur kostað um 150 miliónir
marka (1 M = 89 aurar). Hið þýzka ríki leggur til 40
miliónir af þessu fé. Hamborgarar hafa reist afarmikil stór-
hýsi til að geyma vörur í við höfnina og nota eingöngu rafur-
magnsljós við hana. Keisarinn var staddur við hátíðina, sem
var haldin þegar þetta stórvirki var fullgjört, og hélt lofræðu
um Hamborg.
Seinna fór keisarinn til Leipzig ; þar var lagður hyrningar-
steinn undir nýtt hús fyrir ríkisrétt þýzkalands. þegar vorar 1889
4