Skírnir - 01.01.1889, Side 49
ÞÝZKALAND.
51
fyrir miðjan septembermánuð, stóð kafli sem hét: «Aus Kaiser
Friedrichs Tagebuch, 1870—71» (Ur dagbók Friðriks keisara,
1870—71). f>ar sást, að þeim Friðrik og Bismarck hefur borið
margt á milli og að hugmyndin um að gera Prússakonung að
þýzkalandskeisara er meir runnin frá Friðrik en Bismarck.
Bismarck lét strax gera tímaritið upptækt og eptir nokkra leit
kom upp, að leyndar-jústitsráð, prófessor, Dr. juris Geífcken í
Hamborg hefði sent ritstjórninni þenna kafla. Bismarck sagði
i bréfi til keisara, að dagbókin væri fölsuð og fékk leyfi til að
höfða mál gegn Geffcken fyrir landráð. Geffcken var settur í
fangelsi hinn 29. september og átti rikisrétturinn i Leipzig að
rannsaka málið og dæma það. Rannsóknin endaði 4. janúar
1889 og var þá strax kveðinn upp dómur svo látandi, að það
væri reyndar ástæða til að halda, að Geifcken hefði látið
prenta ýmislegt, sem nauðsynlegt var fyrir ríkið að leyna, en
aptur væri ekki ástæða til að halda, að hann hefði vitað það.
Hann var dæmdur sýkn og leystur úr fangelsi eptir meir en 3
mánaða fangelsisvist og skyldi ríkið borga málskostnað. þetta
var kjaptshögg fyrir Bismarck, sem lét höfða málið.
Um árslokin kom fyrir atvik, sem heldur ekki var Bismarck
til frægðar. Kölnische Zeitung, eitt af aðalblöðum Bismarcks,
kom með þá ákæru gegn Morier, sendiherra Englendinga í
Pétursborg, að hann hefði gefið Bazaine njósnir um hinn þýzka
her 1870. Morier skrifaði Herbert Bismarck og bað hann að
bera þessa lygi aptur, því hann hefði fleygt þessu í Lundúnum
áður en það kom í Kölnische Zeitung. Herbert svaraði ekki og
þá setti Morier i Lundúnablöðin bréf frá Bazaine, sem neitaði
þessu. Spannst nú löng blaðarimma út úr þessu. þýzkur her-
foringi kvað Bazaine hafa sagt þetta, sem borið er á Morier, við sig.
En skriflegt vottorð er ætíð meira vert en munnlegt. Ekkja Vil-
hjálms fyrsta, Agústa, neitaði á prenti, að hún hefði borið í
Morier 1870 njósnir um her þjóðverja. Eptir þetta hefur verið
kalt um stund milli Englendinga og þjóðverja og þykir Bis-
marck og blöð hans hafa orðið undir í þessu máli.
það er enn þá fleira, sem hefur amað Bismarck. í Austur-
Afríku og á Samoaeyjunum í Ástraliu hafa þjóðverjar landnám
en hafa litla frægð af því. í Austur-Afríku voru embættis-
4*