Skírnir - 01.01.1889, Qupperneq 50
52
ÞÝZKALAND.
menn þeir, sem hið þýzka nýlendufélag hafði sett i bæina á
Zanzibarströndinni, myrtir eða reknir burt aflandsbúum; höfðu
þeir unnið það til saka, að þeir óvirtu trú landsbúa og siði
og fóru hranalega að þeim, drógu upp þýzka fána, þar sem þeir
gátu komið þvi við o. s. frv. þýzk herskip voru send þangað
og gerðu þjóðverjar spellvirki hingað og þangað fram með
ströndinni, en hættu sér ekki upp í land; þeir skutu þorpið Vindi
gjörsamlega niður með sprengikúlum 31. október. En meira fengu
þeir ekki að gjört, Englendingar vildu ekki styrkja þá nema
á sjó, til að hamla þrælaverzlun og herferð í Afríku er enginn
hægðarleikur. Siðan 2. desember hafa Englendingar, þjóð-
verjar og ítalir skip á vakki fram með ströndinni, sem banna
þrælaflutning frá landi og vopnaflutning inn í landið. þjóð-
verjar höfðu misst alla fótfestu á meginlandinu þessu megin
Afríku um nýjár 1889.
í Skírni 1888 bls. 48 gat jeg þess, að þjóðverjar tóku
Malietoa konung á Samoaeyjunum höndum og fluttu hann
burt. þeir settu i stað hans undirlægju sína, Tamasese, en
eyjarskeggjar vildu ekki hafa hann og tóku sér annan konung,
sem hét Mataafa. þessir tveir konungar börðust nú um ríkið
og bar Mataafa ætið hærri hlut í viðskiptum þeirra, þó þjóð-
verjar hjálpuðu hinum. Er af því auðsætt, að eyjarskeggjar
vilja ekki þýðast þann konung, sem þjóðverjar hafa troðið upp
á þá. Um jólaleytið biðu þjóðverjar ósigur í bardaga við
eyjarskeggja. Bandaríkin eru mjög óánægð með atferli þjóð-
verja á eyjunum og hafa sent þangað þrjú herskip, jafnmörg
og þjóðverjar, til að gæta þess, að ekki sé þröngvað rétti
Amerikumanna, sem þar búa o. fl. þjóðverjar kvarta aptur
yfir því, að maður úr Bandaríkjunum, Klein að nafni, hafi verið
í broddi fylkingar fyrir eyjarskeggjum, spanað þá upp o. s. frv.
þing þjóðverja hefur starfað margt og mikið á þessu ári,
Fyrst samþykkti það frumvarp til laga um að velja skuli þing-
menn til 5 ára í stað 2 ára eins og verið hefur. Lögin gegn
sósíalistum vildi stjórnin gjöra strangari og láta þau gilda í 5
ár. Voru harðar umræður um þau. Einn af þingmönnum
sósíalista sagði frá, að stjórnin héldi úti mönnum (agents pro-
vocateurs), sem lifðu saman við illvirkja og óaldarlýð, spönuðu