Skírnir - 01.01.1889, Side 61
TYRKLAND.
63
á Finnlandi nú en áður, enda eru þeir tæpur sjöundi hluti af
ibúum Finnlands. Finnar vilja nú hafa allt á finnsku, en í
borgunum bera Svíar þá samt enn ofurliði.
í Skírni 1888 gat jeg um rímnakveðskap Rússa. Jeg
heyrði Rússa kveða rímur í Höfn sumarið 1888 og draga þeir
seiminn i endanum á hverri visu rétt eins og íslendingar.
Tyrkland.
Hundtyrkinn er bæði skuldseigur og lífseigur.
(Gladstone).
f>ó undarlegt megi þykja, þá má samt segja, að Tyrkland
hefur á þessu ári orðið áfast við Evrópu. Hinn 12. maí var
lokið járnbraut frá Serbíu til Saloniki í Makedoniu við Grikk-
landshaf; þessi grein út úr járnbrautaneti Evrópu er hin fyrsta
sem nær að því hafi. Hinn 12. ágúst var lokið járnbraut þvert
yfir Búlgaríu til Constantinopel (Miklagarðs), og er Constantino-
pel þannig orðin járnbrautarföst1), ef svo mætti að orði komast,
við Evrópu. Margir spá að þetta sé ills viti fyrir Tyrkjann og
hann eigi nú skammt eptir ólifað. En Tyrkinn er lífseigur.
Ferdinand af Kóburg situr í Sofía, höfuðborg Búlgaríu,
og lætur eins og vind um eyrun þjóta hallmæli Tyrkjans og
stórveldanna. Stambúloff, sem áður er getið, stýrir í raun
réttri landinu; hann er bæði vitur og einbeittur maður og hafa
ýmsir fengið að kenna á því.
Búlgarar sumir vilja fá skaðabætur af Tyrkjasoldáni fyrir
spellvirki Tyrkja 1876—78, en Soldán vill ekki borga. það
væri llklega ókljúfandi fyrir hann að borga allt það tjón, sem
Tyrkinn hefur gert öðrum i siðustu 2—3 hundruð ár. Annars
gætu Vestmannaeyingar sent mann til Miklagarðs að heimta fé
af Soldáni. Tyrkinn er skuldseigur og gengst ekki fyrir góðu
(það vita Rússar), svo það er óvíst hvort Vestmannaeyingar hefðu
nokkuð upp úr ferðinni.
) sbr. landfastur o. s. frv.