Skírnir - 01.01.1889, Blaðsíða 64
66
DANMÖRK.
og i engu landi er jafnmikil ósiðsemi, jafnmörg óskilgetin börn
að tiltölu eptir fólksfjölda.
Hin íslenzka sýning var út í horni i húsi því, sem fiski-
sýningin var í. Flattur þorskur hékk uppi yfir henni. Upp-
talning líkt og i Heljarslóðarorustu er hér óþörf. f>að sem
Danir ráku mest augun i, var tveir faldbúningar og ágætt safn
af eggjum. Annars var hin islenzka sýning ómerkileg. Sýning
Grænlendinga bar langt af henni. Grænlendingar kunna vel
að smíða úr beini, sauma úr skinnum o. fl. f>ar voru sýnis-
horn af grænlenzkum húsum og hibýlum, sel- og hvalveiða-
færum o. s. frv. Færeyingar höfðu sýning i horninu andspænis
íslendi. Prjónles þeirra og vaðmál var ekki eins vandað og
venja er til heima á Fróni og Danir skopuðust að færeysku
sódavatni, sem var þar til sýnis.
Auðmaðurinn Jacobsen hafði látið reisa hús á sýningunni
til að sýna ölgerð sína. Auk þess lét hann reisa mikið hús
fyrir utan sýninguna sjálfa og voru i því sýnd frönsk málverk
og myndasmíði. Öll þau listaverk, sem í það hús komu, voru
flutt hingað á hans kostnað, og auk þess bauð hann fjölda af
frönskum listamönnum og blaðamönnum, að dvelja í Höfn um
tíma á sinn kostnað. Hann keypti myndir fyrir 100,000 krónur
og lofaði að kaupa seinna fyrir hálfa milión. Margir héldu,
að hann gæti ekki staðizt allan þenna kostnað, en hann neit-
aði því í blaði einu, að hann væri orðinn gjaldþrota. Jacob-
sen bauð að gefa Höfn hið mikla safn sitt af myndasmiðum
úr marmara, bronze o. s. frv. á nýja Carlsberg (Glyptothek)
og þáði bæjarstjórnin það, sem nærri má geta.
Saxakonungur og Svíakonungur komu á sýninguna auk
|>ýzkalandskeisara, sem áður er getið.
Túborgarbruggarar reistu 80 feta háa flösku og mátti
komast upp að stút hennar á iyptistól (Elevator). Rafurmagns-
ljós var haft á sýningunni. Á sýningunni var hús með vél þá
(Centrifuge), sem áður er nefnd; hún skildi rjóma úr mjólk,
strokkaði og kasaði osta o. s. frv. Á sýningarsvæðinu var
nautasýning, hestasýning, fjársýning, leikfimissýning o. fl.
Talið erað 1800,000 krónum hafi verið eytt í sýninguna, en