Skírnir - 01.01.1889, Blaðsíða 69
NOREGUR OG SVÍtJÓÐ.
71
Sofía Svíadrottning hefur dvalizt iengi í smábæ á Englandi
við sundið milli Frakklands og Engiands sér til heilsubótar.
í þeim bæ giptist Oskar, sonur hennar, fátækri stúlku af
sænskum aðalættum, sem hét Ebba Munck. Prinsinn settist
síðan að í Karlskrona og nefndist Bernadotte. þetta kvonfang
mæltist alstaðar vel fyrir.
Mestur hlutinn af hinu mikla riti Viktor Rydbergs «Under-
sökningar i germansk Mythologi» er nú kominn út. Anderson,
sendiherra Bandaríkjanna i Höfn, þýðir það á ensku og það
kemur út jafnsnemma í Lundúnum.
Skáldið Strindberg1) ritar nú mestmegnis leikrit og er um-
svifamikill í þvi sem öðru. Hann vill breyta leiksviðinu, út-
búnaði leikenda o. s. frv. og gjöra allt einfaldara og óbrotnara
en nú er.
Skáldið A. U. Bááth hefur þýtt margar af Islendingasög-
um á sænsku og Jenny Nyström hefur málað ágætar myndir
í þær.
Önnur ríki í Evrópu.
I Belgiu, Hollandi, Sviss, Portúgal, á Spáni og Grikklandi
hafa engin merkis-tíðindi gerst árið 1888. Hollendingakonungur
Vilhjálmur þriðji hjarir enn á lifi, en fæst ekki við stjórnarstörf.
Spánarkonungur Alfons þrettándi, er ekki meir en tveggja ára
gamall enn þá. Sumarið 1888 var sýning í Barcelona og var
hann þar með móður sinni Kristínu. Óvitinn varð að hlusta
þar á ræður og leiddist honum það heldur en ekki.
Georg Grikkjakonungur hélt afmæli 25 ára stjórnar sinnar
árið 1888. það hefur ekki komið áður fyrir, svo jeg viti til
í sögunni, að faðir og sonur hans hafi haldið afmæli 25 ára
konungsdóms sama árið hvor um sig. þegar Georg kom tíl,
ríkis, hafði Grikkland 1,200,000 ibúa, en nú hefur það 2,200,000
og hefur tekið miklum framförum i allar stefnur.
l) Sjá Skírni 1888 bls. 65.