Skírnir - 01.01.1889, Side 70
72
Afríka.
Bula Matari (Klettabrjótur) er ósigrandi.
(Afrikumenn um Stanley).
Stanley.
þrjú bréf hafa nýlega borizt frá Stanley og er hið síðasta
þeirra ritað 4. september 1888 á Bungangeta-ey í Aruwimi-
fljótinu. Eitt er til «Emin Relief Society» (félag til að bjarga
Emin), annað til Bruce, tengdasonar Livingstones, og hið þriðja
til «Geographical Society» (Landkönnunarfélagsins) í Lundúnum.
I júní 1887 yfirgaf Stanley herbúðir sínar í Yambuya við
Aruwimifljótið, sem rennur ( Congófljótið, og lét þar eptir
«Major» Barttelot með 257 manns, og vistir; átti hann að
koma í hægðum sínum í hömáttina eptir Stanley ef svo skyldi
bera til að hann yrði vistþrota eða neyddist til að hverfa aptur.
Stanley hitti í ágústlok Arabahöfðingja einn, þrælasölumann, og
skildi eptir hjá honum 56 veika menn og borgaði vel fyrir þá,
5 dollara á mánuði. Síðan leyndust 26 af mönnum Stanleys
burt frá honum. Hann varð að láta hengja tvo menn til að
halda saman mönnum sínum. Stanley fór lengi fram með
Aruwimi og átti ýmsa bardaga; eitruðum örvum var skotið á
hann og menn hans Og 2 af mönnum hans svikust burt. Veika
menn flutti hann á bát eptir fljótinu. Stanley fór Congóleið-
ina af því meðal annars, að hann hélt, að hann mundi ekki
hitta Araba á þeirri leið. En honum varð ekki að því.
J>ví næst komst Stanley í voðalegar ófærur. Hann kom inn
í ákaflega þéttan skóg, sem hann varð að höggva sig gegnum
og sá ekki sólarskímu liðlangan daginn. þar var fullt af villi-
dýrum og dvergvaxin þjóð, sem bjó um þessar slóðir, skaut á
þá eitruðum örvum úr fylgsnum sínum. þessir dvergar heita
Wambuti og Stanley segir, að þeir séu þjófgefnir, huglausir
og illmenni. I skóginum var loptið svo hráslagalegt, að margir
af mönn Stanieys veiktust og dóu. þeir lifðu á jurtarótum,
á hnetum og sveppum og þoldu hungur og þorsta. Hann
komst út úr skóginum 5. desember og lifðu þá 174 eptir af
389, sem hann lagði af stað með. því næst barðist hann til
matar og náði í nautpening. Menn hans voru skinhoraðir og