Skírnir - 01.01.1889, Page 80
82
ÁSTRALÍA.
ráðaneytið og þingið vildu ekki taka við þessum jarli og færðu
ýmsar ástæður til þess. Ein var sú, að Blake væri á móti
sjálfsforræði Ira og hefði aðrar skoðanir en ráðaneytið og
þingið. Ráðgjafinn í Lundónum ætlaði fyrst að hafa sitt fram
með hörku, en þegar hann sá að íbúarnir í Queenslandi voru
samtaka í þessu máli, þá lét hann undan, því hann gat ekki
neytt upp á þájarli. þessi sigur vakti mikla eptirtekt íÁstralíu;
eptir þetta vilja víst nýlendur Englendinga hafa hönd í bagga
með jarlskosningum og láta ekki stjórnina í Lundúnum vera
eina um hituna.
Ástralía hefur nú töluverðar bókmenntir. Árið 1888 var
haldin mikil hátíð í minningu þess, að það ár voru 100 ár
liðin síðan Astralia var byggð. Stór sýning var haldin í MeL
bourne; margar bækur komu út um framfarir Astralíu o. s. frv.;
ein af bókum þessum hét «Selection of Australian Poetry,
1788 —1888» (Úrval úr áströlskum skáldskap, 1788—1888).
Ástralíubúar eiga mörg skáld, en höfuðskáld þeirra var Alfred
Domet1) 1817—88. Kvæði eptir hann stóðu 1837 i enskum
tímaritum, en siðan flakkaði hann um viða veröld og vissi eng-
hvar hann var niður kominn. Browning1) hélt minningu hans á
lopti með kvæðinu, «What’s become of Waring?» (Hvað hefur
orðið af Waring (Domett)?). Arið 1872 sendi hann langa
kviðu frá New Zealand til Englands og var þá orðinn æðsti
ráðgjafi þar. Kviðan var úr Ástralíusögu og hét «Ranolf
and Amohia», Browning og Tennyson lofuðu hana mjög
mikið. Árið 1878 kom út kvæðasafn eptir hann og var meðal
þeirra jólasálmur, sem Longfellow Iofaði mikið.
Hinn mest ástralski af öllum áströlskum skáldum var samt
Adam Lindsay Gordon 1833—70. Hann var fjárbóndi mikill
og svo mikill hestamaður og reiðmaður, að aldrei hefur annar
eins þekkst á sjálfu Englandi. Kvæði hans lýsa eins vel hugs-
unarháttum Ástralíubúa og sögur Bret Hartes lýsa Kaliforníu.
Mörg kvæði hefur hann ort sem líkjast Skúlaskeiði og «Ríðum,
ríðum, relcum yfir sandinn* eptir Grím Thomsen og eitt af
kvæðum hans er talið hið bezta veðreiðarkvæði á enskri tungu.
New Zealand var komið í skuldir vegna þess, að miklu
') sjá Euglandsþátt.