Skírnir - 01.01.1894, Page 17
Kirkjumál. 17
kr.) til kirkjubyggingar (17. júlí) og Staðarprestakalli í Grunnavík (2000 kr.)
til túngarðshleðslu (7. nóv.).
Bráðabyrgðaruppbðt fyrir fardagaárið 1894—1895 hlutu sömu presta-
köll og í fyrra, og sömu upphæð hvert þeirra cins og þá. Auk þeirra
var Eyvindarhólaprestakalli veitt 200 kr. bráðabyrgðaruppbót.
Biflíufélngið hélt ársfund 5. júlí. Þá var sjðður félagains 21.592 kr.
56 au. Á þeim fundi var samþykkt frumvarp til endurskoðaðra laga fyrir
félagið. Segir i þeim, að tilgangur félagsins sé að sjá um, að íslendingar
geti átt kost á Ritningunni í svo vandaðri þýðingu, og fyrir svo lágt verð
sem unnt sé. Biskup, sem er sjálfkjörinn formaður félagsins, getur veitt
þeim inngöngu í félagið, er þess óska; félagsmenn gjaldi 1 kr. í tillag ár
hvert, eða 10 kr. i citt skipti. Það er ennfremur af félagiuu að segja, að
það hóf í fyrra lögsókn á hendur gjaldkera sínum, er áður var, fyrv. há-
yfirdómara Jóni Péturssyni, til lúkningar á veðskuld, er tapast hafði vegna
ónógs veðs. Því máli lauk svo, að gjaldkeri var sýknaður aí kröfum fé-
lagsins, bæði í héraði og fyrir yfirdómi, en félagið missti skuldarinnar.
Kirkjur nokkrar hafa verið roistar á þessum missernm þar, er þær
hafa eigi áður verið. Á Sauðárkrók hefur verið nýlega reist kirkja, svo
og í Ólafsvík og Brekku í Mjóafirði, og nú síðast á Djúpavogsverslunarstað,
og önnur á Blönduósi þettaár; hafa söfnuðir víðast mjög stutt með fjárfram-
lögum bæði byggingar þessara kirkna, og víða annarstaðar þar sem kirkj-
ur hafa verið reistar af nýju. Hér skal þess og getið, að ábyrgðarmenn
sparisjóðsins á ísafirði hafa veitt 500 kr. til bænhúsbyggingar í Furufirði
á Hornströndum.
í ofviðri milli jóla og nýárs færðist Yestdalseyrarkirkja af grundvelli
sinum, og skemmdist svo mjög, að engin tök þykja að gera að henni,
heldur vorður að reisa hana með öllu af nýju. Kirkjan var þar nýlega
byggð, og þótti vönduð að öllu, og hið prýðilogasta guðshús.
Eptir skýrslu frá stiptsyfirvöldum höfðu, við árslok 1893, 55 kirkjur
lagt fé t hinn almenna kirkjusjóð, en öll fjárinnlög þeirra námu þá 23,932
kr. 11 au. í umsjón safnaða voru við lok þessa árs (1894) komnar 56
kirkjur.
Það gerðist til nýbreytni í íteykjavík þetta haust, að Jón Helgason
preBtaskólakcni.8ri tók að sér að halda uppi aukaguðsþjónustum í dóm-
kirkjunni, að kveldi annars hvers sunnudags fyrst um sinn. Voru slíkar
kveldguðsþjónustur hið besta sóttar.
Skirnir 1894.
2