Skírnir - 01.01.1894, Blaðsíða 21
Atvinnuvegir.
21
suðuramtinu, 20 í vesturamtinu, 32 í norðuramtinu og 4 í austuramtinu.
Samtals höfðu verið unnin 34,161 dagsverk í öllum félögunum. í suðuramtinu
voru þau flest hjá Jarðræktarfélagi Ecykjavíknr (1530 dagsverk og styrkur
til félagsins 447 kr. 90 au.) og næst því í Búnaðarfélögum Grímsneshrepps
(1272 dv.; st. 372 kr. 30 au.) og Ölfushrepps (1128 dv.; st. 330 kr. 10
au.). í vesturaintinu höfðn unnið mest Búnaðarfélög Miðdalahrepps (724
dv.; st. 211 kr. 90 au.), og Skúgarstrandarhrcpps (633 dv.; st. 185 kr. 20
au.). í Norðnramtinu hafði rnest, verið unnið i Frauiíaiafélagi Arnarnes-
hrepps (726 dv., st. 212 kr. 50 au.) og Búnaðarfélagi Svínavatnshrepps
(725 dv.; st. 212 kr. 20 au.), og næst þeim í Búnaðarfélagi Svarfdæla
(680 dv.; st. 199 kr.). í austuramtinu hafði Búnaðarfélag Fellna- og Fram-
tunguhrepps afkastað mestu (394 dv.; st. 115 kr. 30 au.). Auk þessa fékk
Búnaðarfélag suðuramtsins 2000 kr. úr landssjóði. Þess er að gota af þvi
félagi, að i firslok 1893 voru félagsmenn um 290 að tölu, en sjóður þess
að npphæð 28,050 kr. Þess var getið í riti þessu í fyrra, að tillögur og
tilboð þessa félags, um að gerast almennt búnaðarfélag fyrir land allt,
fengu lítinn byr hjá amtsráðuuum. Félagið ákvað þó á fyrra fundi sínum
þetta ár, að halda máli þeBSu vakandi enn um Binn, og gefa amtsráðunum
að nýju kost á að sæta hinum sömu boðum, er þeim voru áður gerð. Á
siðara ársíundi félagsins var sett nefnd manna til að hugleiða hvernig
samband gæti komist á milli Búnaðarfélags suðuramtsins og búnaðarfélaga
í sveitum.
Þetta ár varð eitt með bestu verelunarárum Landsbankans. Fasteign-
arveðlán á árinu námu 120,584 kr., sjálfskuldarábyrgðarlán 131,082 kr.,
handveðslán 24,485 kr., ábyrgðarlán sveita og bæjarfélaga 1025 kr., „ak-
kreditivlán11 1065kr., víxlar 329,209 kr., ávisanir 44,043 kr. í árslok átti
bankinn útistandindi í skuldabréfalánum 968,544 kr., en í sjóði 97,763 kr.
^7 au. Innstæðufé hjá bankanum með Bparisjóðskjörum, var í árslok
794,141 kr. 15 au., en þeir, scm það fé áttu voru nm 2900; hafa innlög
í sparisjóð nldrci verið jafnmikil og þetta ár. Yarasjóður bankans var í
árslok 141,104 kr. 90 au. og auk þess nam þá varasjóður Keykjavíkur
sparisjóðs 14,232 kr. 80 au. Um 300 þúsund kr. hafði fé það verið, er
Þ1 útlanda var sent þ’etta ár fyrir milligöngu bankans. Að því skapi
fara póstávísanir minnkandi og þar með skuldir landssjóðs við ríkissjóð,
enda kvað nú svo komið, að ríkissjóður eigi ekkert inni hjá landssjóði.
Nokkur nytsemdarfyrirtæki til eflingar atvinnuvegum komust á fót
þetta ár hér á landi. Hlutafélög 2 voru stofnuð, annað á AuBtfjörðum,