Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1894, Page 43

Skírnir - 01.01.1894, Page 43
Mannalát. 43 fyrir jarðabætnr. Hann óf manna bcst og var flestum ljósmæðrnm snjall- ari til hjálpar sængurkonum, og þótti vera valmenni. Hjálmur Jönsson, bóndi á Þingnesi í Borgarflrði andaðist 29. ágúst, um sjötugt. Hann var sonur Jóns bónda á Hóli í Lundarreykjardal — Ein- arssonar í Kalmanstungu, Þórólfssonar — og Onnu Jónsdóttur frá Deildar- tungu. — Kona Hjálms var Guðríður Jónsdóttir frá Deildartungu. Hann var fjáður vel, sæmdarmaðnr og vinsæll, og tryggur vinur vina sinna. Jónatan Þorsteinsson, er síðast bjó áVatnshömrum í Andakíl, andað- ist á Hæli í Flókadal 1. sept., nær fertugur að aldri. Hann var sonur Þorsteins bónda á Hæli Guðmundssonar og Ljótunnar Pétursdóttur, frá Norðtungu. Kona Jónatans var Snjáfríður, dóttir Péturs hreppstjðra á Grund Þorsteinssonar. Jónatan hafði verið atgjörflsmaður mikill til sálar og líkama, en varð holdsveikur og moð öllu þrotinn að heilsu síðustu árin. Hann var hagvirkur og skáldmæltur vel; í vnnheilsu sinni orti hann eink- um margt, sumt einkennilegt og fagurt. Ouðmundur Hagalín Ouðmundsson, bóndi á Mýrum í Dýrafirði, drukkn- aði 30. okt1, eins og þegar hefur verið getið (f. áMýrum 19. apríl 1843). Hann var sonur Guðmundar dbrm. Brynjólfssonar og Guðrúnar Jónsdóttur. Kona hans var Rósamunda Sigríður (f 1893), dóttir Odds bónda Gíslason- ar á Loðkinnuhömrum. Guðmundur Hagalín var fjárgæslumaður og auð- sæll, en þó góðgjörðamaður mikill, og talinn einn með nýtustu mönnum í héraði sínu. Hans Adolph Linnet, kaupmaður í Hafnarflði andaðist 2. nóv. (f. 15. maí 1825). Foreldrar hans, Hendrik kaupmnður Linnet og Regina Magða- lena kona hans, voru bæði dönsk að ætt. Kona Hans kaupmanns var Ragnbeiður Secrnp, og voru þau hjón náskyld. Hann ól allan aidur sinn í Hafnarfirði og lifði og dó í sama húsi og hann var fæddur í, og veitti þar sömu verslun forstöðu í 51 ár. Hann þótti jafnan vera áreiðanlegur kaup- maður og hjálpfús við skiptavini sína, og heiðnrsmaður í hvívetna. Þetta ár andaðist og fjöldi islenskra merkiskvenna og skal hér getið nokkurra af þeim: Sesselja Þórðardóttir, ekkja Þórðar bónda Jónssonar á Syðri-Reykjum í Biskupstungum (f 1882), andaðist í Reykjavík 1. jan. (f. á Torfastöðum í Bisknpstungum 4. marz 1821). Foreldrar hennar voru Þórður prestur Halldórsson á Torfastöðnm og síðari kona hans, Guðrúu Halldórsdóttir frá Vorsabæ. Sesselja var höfðingskona mikil, mjög heppin ljósmóðir og 1) Á 32. bls. er dánardagur hans talinn 29. okt., en & að vera 30. okt.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.