Skírnir - 01.01.1894, Side 74
74
Ofriðnr Japansmanna og Kínverja.
Kórea heitir skagi mikill, er gengur út úr meginlandi Ansturálfunnar
í suður fyrir austan Kína. Landsmenn eru blendingur af Kínverjum og
Japansmönnum. Japansmenn reka jiar verzlun mikla, on landið er talið
skattskylt Kínverjum, en er að öðru leyti sjálfstsett, svo það sendir sjálft
erindsreka til annara rikja. Stjórn er þar öll í ólestri, eins og annars-
staðar, þar sem Kinverjar hafa yfirráðin. Út úr óstjórn í landinu varð
þar uppreisn í fyrra sumar. Konungur Kóreumanna hjet á stjórn Kín-
verja sjer til liðveizlu. En jafnframt krafðist Japansstjórn þess, að vera
í samviunu með Kinverjum um að bæla uppreistina niður og koma stjórn-
málum Kóreumanna í betra horf, og báru fyrir sig 10 ára gamlan sátt
mála því viðvíkjandi. Kínverjar önzuðu ekki þeirri kröfu, en bjuggu út
liðsafla til Kóreu. En Japansmenn urðu fljótari til, og tóku að bæla niður
uppreisnina, höfðu lokið því að mestu, þegar Kínverjar komu til Kóreu,
og höfðu höfuðborgina Söúl og konunginn á sínu valdi. Kínverjar skip-
uðu þeim að verða á brottu hið skjótasta, meö því að þeir einir ættu að
ráða þar lögum og lofum, en Japansmenn sátu kyrrir. Kom nú brátt til
vopnaviðskipta, og það áðnr en ríkin höfðu sagt hvort öðru stríð á hend-
ur. Varð sá atburður sögulegastur i þeirri inngangs-hríð, er Japansmenn
skutu í kaf herflutningaskip Kínverja með 1600 hermöunuro. Þar af varð
að eins 190 bjargað af Erökkum og Þjóðverjum. Elutningaskipið var á
á Ieiðinni til strandbæjar eins, sem Asam heitir, því að þar höf'ðu Kín-
verjar búizt fyrir, og gerðist þessi atburður fram undan þeim bæ. Svo
var lýst yflr ófriðnum 28. júlí.
Um það bil munu fiestir út í frá hafa búizt við því, að Kínverjar
mundu verða Japansmönnum yfirsterkari, svo framarlega sem til skarar
yrði látið skríða. Fólksfjöldamunurinn var svo afarmikill, Kínverjar um
400 miljónir, Japansmenn um 30 miljónir. A hinu höfðu menn oigi nægi-
lega glögga hliðsjón, þótt það væri að nokkru lcyti kunnugt, að hernaðar-
útbúnaður Kínverja var í hinní aumustu niðurníðslu fyrir botnlausa óráð-
vendni og óstjórn yfirmannanna, auk þess sem allt fyrirkomulagið var
gamalt og úrelt, þar sem aptur á móti Japansmenn hafa lært hermennsku
eins og annað af Norðurálf'uþjóðunum og allur útbúningur þeirra var í
ágætasta lagi.
Eptir ófarir Kínverja við Asam lýsti Kóreukonungur sig óháðan þeim
og gerðist svo bandamaður Japansmanna. Að því er vopnaviðskipti Bncrtir,
er hjer eigi rúm til að skýra frá öðru en aðalatburðum, er gerðust fram
að nýári. Japansherinn var i þrem aðaldeildum á landi í scptemberbyrjun