Skírnir - 01.01.1902, Qupperneq 41
Dantnörk,
43
á eimskipaferðum og efla verzlun eyjanna. — Stjórnin sendi og nefnd
manna til eyjanna, til að kynna sér ástandið og gera tillögur um,
hvað gera skyldi.
Af stórmálum þeim, er stjórnin hafði lagt fyrir þingið, náðu þrjú
fram að ganga: kyrkjustjórnar-málið, skattamálið og skólamálið. Béttar-
farsmálinu varð enn eigi lokið, en framgang þess má vísan telja á
komanda vetri.
í vetur dó Borup borgmeistari í Kaupmannahöfn, og varð þá
bæjarstjórnin að kjósa nýjan borgmeistara. í bæjarstjórn liöfðu setið
jafnmargir af vinstri mönnum og lögjafningjum, og svo nokkrir hægri
menn. En nú gekk einn bæjarfulltrúi úr liði vinstri manna yfir í flokk
lögjaíningja, og urðu þeir við það fleiri. Það var Rump verkfræðingur,
sonur Rumps hægrimanna-ráðgjafa (fyrverandi). Nú var tvent til
fyrir vinstri menn, að fá mann úr sínum flokki kosinn með tilstyrk
hægri manna, — eða þá hitt, að láta lögjafningja ráða kosningunni,
og það varð. Greiddu vinstri menn ekki atkvæði. Réðu lögjafningjar
kosningunni og kusu til borgmeistara mann úr sínum flokki.
Þetta setti skelk mikinn í marga bæjarmenn, einkum verksmiðju-
eigendur og aðra efnamenn. Þótti þeim óheyrilegt, að borgmeistarinn
í höfuðstaðnum væri lögjafningi (sósíalisti).
Þetta kom ijóslega fram við bæjarstjórnar-kosningar, er fram fóru
skömmu síðar. Biðu vinstri menn þar hvervetna ósigur, og urðu hægri
menn kosnir.
Svo leið að nýjum kosningum til þings. Þá gerðu lögjafningjar
það uppskátt, að þeir mundu eigi framar eiga bandalag við vinstri
menn; fundu þeim til saka, að þeir hefðu eigi fylgt stefnuskrá sinni
ósleitilega síðan þeir komu til valda. Var það þó að eins lítill meiri
hluti lögjafningja, er þessum úrslitum réð; enda vóru aðfinningarnar
nálega allar hótfyndni ein, og flestar hrein ósannindi. Við þingkos-
ningarnar hafði þetta þau áhrif, að vinstri menn (stjórnarflokkurinn)
misti fáein þingsæti, en það hefir enga þýðing að tölunni til, svo fjöl-
mennir sem fylgismenn stjórnarmnar eru. Hitt var meinlegra, að flest
af þessum fáu sætum, er þeir mistu, vóru í Kaupmannahöfn, og fóllu
þar við kosningarnar nokkrir af merkustu þingmönnum þeirra, svo sem
Hage fjármálaritari, Philipsen bóksali, Joh. Ottosen skólastjóri o, fl.