Fréttir frá Íslandi - 01.01.1884, Blaðsíða 10
12
FRÍKIRKJUSÖFNUÐRINN 1 REYÐARFIRÐI
inn af mönnum eru peim meðmæltir, þó að ])eir annaðtveggja
pori eða vilji ekki láta á því bera, enda eru fleiri enn færri,
og eins af þeim, er fagna fyrirtæki þeirra, sem lítið eða ekkert
vita eða skilja í því, sem um er að ræða; flestir halda að það
sé bæði annað og þýðingarmeira enn það er.
þjóðkirkjuprestrinn í Reyðarfirðinum, Daníel Halldórsson,
hafði ekki fengið eyrisvirði af því sem honum bar eftir lögum
af tekjum frá fríkirkjumönnum; leitaði hann þá álita æðri
manna, til að vita hvernig hann ætti að ná sér niðri, og varð
það niðrstaðan, að hann skyldi taka það lögtaki hjá þeim. I
trausti til þess, að yfirvaldið hefði rétt að mæla, lét Daníel
prestr hirða tekjur sínar lögnámi, og fór þar eftir hinni beinu
skipun. Einn af hinum helztu forvígismönnum fríkirkjumanna,
Jónas bóndi Símonarson á Svínaskála, kærði prest fyrir sýslu-
manni, og dæmdi sýslumaðrinn svo, að prestr skyldi skila, þeim
aftr. J>essi ósamkvæmni milli dómarans og þeirra, er fjárnám-
ið skipuðu, er af því sprottin, að dómarinn bygði dóm sinn á
því, að grundvallarlög Ðanaveldis sé gildandi á Islandi þar
sem stjórnarskrána þrýtr; enn í þeim stendr, að enginn sé
skyldr til að inna af hendi persónulegar fjárframlögur til ann-
arar guðsþjónustu enn hans eigin.
Ennfremr hafði Daníel prestr leitað úrskurðar ráðherrans
um það, hvernig hann ætti að haga sér gagnvart þessum
cvandræðamönnum», sem engum ráðum eða rétti skeyttu þar
eystra. Ráðgjafinn svaraði með bréfi dags. 8. nóv., og þar eð
bréfið er svo mikilvægt, setjum vér hér enn aðalkafla þess.
jþjóðkirkjuprestrinn má færa inn í kirkjubækrnar hjá sér skírn
þá, er fríkirkjuprestrinn hefir framkvæmt, með því að þjóð-
kirkjan telr gilda þá skírn, er framkvæmd er utan hennar; enn
fermingar og hjónavígslur fríkirkjuprestsins má hann ekki bóka,
því það eru þýðingarlaus verk. Grafa skal dána úr fríkirkju-
söfnuðinum í kirkjugarði þjóðkirkjunnar, enn enga ræðu eða
helgisiði mega fríkirkjumenn hafa þar við, enn sóknarprestrinn
má, ef hann vill, ausa þá moldu á venjulegan hátt. Alla inn-
komna og burtvikna skal hann rita í kirkjubókina. Eftirlit
með barnafræðslu skal hann hafa hjá báðum, enn ekkert eftir-
lit þarf hann að hafa með fermingu fríkirkjumanna, því að
hún er að eins skipuð fyrir menn í þjóðkirkjunni, og ekki hvíl-