Fréttir frá Íslandi - 01.01.1884, Page 19

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1884, Page 19
BJARGRÆÐISVEGIIi. 21 skip hér við land petta ár en að undanförnu (á fjórða hundrað), og bar ekki á aflaskorti hjá peim, pví að peir drógu fiskinn í óða-önn í landhelgi, að minsta kosti fyrir suðrströndum íslands, pó að íslenzku bátarnir yrði ekki varjr rétt í kring um pá. Yerzlunarlagið hefir verið petta sama og áðr víðast hvar; verzlunarstaðir voru sumstaðar gjörtæmdir pegar undir haustið, og engan hlut par framar að fá nema brennivin og annan slík- an óparfa, enn gagnsvara var lítil, að minsta kosti sumstaðar. J>ó viljum vér minnast á tvö fyrirtæki, sem komu upp, enn pví miðr ekki urðu að fullu liði, sízt hið fyrra; pað var blaatfisk- isverzlun við Englendinga á sjó uti. Englendingar höfðu ráð- gert að senda gufuskip upp til Islands í marzmánuði, og kaupa fiskinn blautan með höfði og hala af sjómönnum á sjó úti, og ætluðu peir svo að flytja fiskinn í ísi til Englands, og selja hann par eins og nýjan. J>orlákr kaupmaðr Ó. Johuson í Reykjavík var peirra önnur hönd hér í iandi til pess að semja við sjómenn um söluna. Sjómenn vildu ekki selja fiskinn minna enn 7 aura pd. blautan úr sjónum, sem lætr nærri að svara til pess, að skippundið að bonum söltuðum sem venjul. saltfiski væri 100 kr.; pað pótti peim ofdýrt, einkum er litið væri til hins mikla verðfalls á fiskinum; pegar peir komu, kváðu peir upp, að peir vildi gefa 5 aura fyrir pundið, er svarar til nál. 70 kr. fyrir skippund af saltfiski. Gerðu peir ráð fyrir að sigla út um flóann pegar róið væri á daginn, enn leita hafna á nóttum, og gera pá að fiskinum. J>að fór nú að sigla um flóann síðast í marz, enn sjómenn tóku pví pá svo drengilega, að peir réru fram hjá pví og virtu pað ekki viðlits, af pví að peir vildu hafa sína 7 aura. Loks samdist svo, að báðir létu undan, og kusu Englendingar heldr að gefa 6 aura fyrir pundið enn fara heim svo búnir. Enn pá var aflaleysið og gæftaleysiði svo að skipinu tókst loks eftir langa mæðu og illan leik að fá nokkra hleðslu og fór svo heim aftr 10. apríl. Bæði var, að aflaleysið hamlaði og gæftaleysið, svo hafði pað ekki nægan ís pegar til kom; enn ekki mun pað sizt hafa spilt, að landsmenn tóku pví dræmt og óliðlega, og jafnvel var talið sannað, að einhverir hafi selt peim skemdan fisk: úldinn úr netjum; enn

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.