Fréttir frá Íslandi - 01.01.1884, Síða 41

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1884, Síða 41
BÓKMENTIR. 43 Dr. Jónassen. Bók pessi kom í mjög góðar parfir og hefir pegar hlotið góðan orðstír. Aftan við hana er skrá yfir hin helztu læknislyf, verkanir peirra og meðferð. I náttúruvísindum kotn út Náttúrusaga handa alþýðu eftir Pál Jónsson; pað er ágrip af mannfræði og dýrafræði, mest ritað eftir dýrafræði Gröndals, grasafræði mest eftir Yau- pell, og steinafræði og jarðarfræði, að mestu eftir fyrirlestrum þorv. Thoroddsens á Möðruvallaskólanum. Kver petta er ætl- að alpvðu, enn virðist pó fremr vera skólabók enn alpýðubók. f>á kom og út F'órin til tunglsins, fyrirlestr eftir Sophus Tromholt, norðrljósafræðing, sem hér var pann vetr frá Nor- vegi. pað er alpýðleg lýsing á tunglinu, eins og vísindamenn ætla helzt að par sé umhorfs. Njola Bjarnar Gunnlaugssonar var og prentuð nú i priðja sinn. I fornfræði er helzt getandi um Corpus poeticum horeále (kvæðasafn norðrlanda), sem Guðbrandr Vigfússon gaf út í Oxford í tveim bindum pykkum (kostar yfir 2 T). f>að er sam- safn allra íslenzkra fornkvæða: eddukvæðanna, sagnakviðanna, drápa peirra, sem til eru eða brot af, og svo af vísum, sem ort hefir verið og finst í íslenzkum fornritum fram undir lok 14. aldar, pá er alment er talið að hinar fornu bókmentir sé á enda. f>ar eru og enskar pýðingar af pessum kvæðagrúa. |>ar með fylgja ritgjörðir eftir útgefandann um fornmentanám á síðari öldum, um goðatrú i fornöld og tímatal í fornöld. Efnið i tímatalsritgjörð hans er pað, að alt pað tímatal, er bygging Islands hefir verið miðuð við, sé vitleysa; hafi pað bygzt um 30 árum síðar enn sagt er, og alt sé eftir pví. Eátt af ástæðum hans er sannfærandi, enda hafa pær verið hraktar. Eddukvæðin og margt annað fleira af fornmentum vorum hinum elztu telr hann enskt að uppruna, eins og áðr hefir borið fyrir hjá honum. Safnið er mjög mikils vert að pví ieyti, að par er á einum stað svo margt, sem annars verðr að hafa saman og finna með mestu fyrirhöfn. Hér á landi var gefin út Flóamanuasaga (útg. J>or!eifr Jónsson), vönduð útgáfa og fagrlega prentuð. Prentað var og að nýju fyrsta bindi af Fornaldarsögum Norðrlanda eftir gömlu útgáfunni, Klarussaga keisarasonar, eftir óvönduðu handriti, og Mírmanns- saga, prentuð upp eftir Riddarasögum Kölbings. Árhók Forn-

x

Fréttir frá Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.