Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1907, Page 3
5
hvað þvílíkt. En svo hefir það skifst í Stóra- og Litla- þá er sjór-
inn hafði brotið undirlendið fast upp að klettsnefinu og þannig skift
undirlendis-ræmunni í tvennt. En þá er hún var öll afbrotin, svo
ekki var eftir nema sandurinn í vikunum báðum, þá hefir það upp-
haflega örnefni (? G rund, ? Fit) týnzt líka, og ekki orðið annað
eftir en forskeytið: »Langa«.
Á þessu fagra undirlendi, við Eiðið, er sagt að þrælar Hjörleifs
hafi sezt að, og þar hafi Ingólfur komið að þeim, elt þá þaðan í
ýmsar áttir og drepið þá. Dufþakr á t. a. m. að hafa flúið í brekku
þá, norðan í Heimakletti, sem Dufþekja heitir og á að hafa nafn af
honum. Um önnur örnefni verður ekki sagt, að þau minni á þræl-
ana, nema ef vera skyldi Faxi, snös norðan á Yztakletti, og Faxa-
sund þar neðan undir. Það er ekki skiljanlegt, að þau örnefni séu
kend við föxóttan hest. 0g þar eð kunnugt er um Faxaflóa, að
hann er kendur við mann er Faxi hét, og var úr Suðureyjum, þá
liggur nærri að ætla, að likt standi á með þessi örnefni, að þau séu
kend við vestrænt mannsnafn. Munntnæli telja líka Álfsey og
Bjarnarey vera kendar við tvo af þrælunum, er hafi heitið Álfr og
Björn. En þar eð það eru norræn nöfn, geta þær eyjar eins vel
verið kendar við aðra menn síðar. Raunar gáfu menn sumum vest-
rænum þrælum norræn nöfn, og er ekki hægt að fullyrða neitt um
þetta.
II. Herjólfsclalur.
Svo segir Landnáma, V. 5.: »Ormr ánauðgi son Bárðar Báreks-
sonar, bróðir Hallgiíms sviðbálka nam Vestmanneyjar«. önnur hand-
rit hafa: »Herjólfr, son Bárðar Bárekssonar, bróðir Hallgríms svið-
bálka [sniðbaka] bygði fyrst Vestmannaeyjar ok bjó i Herjólfsdal
fur innan Ægisdyr. Þar er nú hraun brunnit. Hans son var Ormr
auðgi, er bjó á Ormsstöðum við Hamar niðri, þar er nú blásit alt«.
Þessir staðir í Landn. bera það með sér, að hvorugur þeirra
er ritaður af kunnugleik. Fyrtaldi staðurinn er tekinn eftir eldra
handriti, og veit ritarinn þá ekkert um bústað landnámsmannsins og
sleppir alveg að geta hans. Sá er síðartalda staðinn reit, hefur afl-
að sér betri upplýsinga. Hann veit það, að landnámsmaðurinn hét
Herjólfur og hverrar ættar hann var, að hann var faðir Orms hins
auðga og að hann bjó í Herjólfsdal. Það örnefni er enn til á Vest-
mannaeyjum, sem þegar er getið, og er þar mjög fagurt og byggi-