Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1907, Qupperneq 11
13
an verið jarðað þar eins og annarstaðar í garðinum, og sést nú
ógjörla hvar í honum hún hefir staðið.
Handrit Nikulásar getur þess, að áður en Landakirkja var bygð,
hafi verið messað í smákirkjum í Kirkjubæ og Ofanleiti. En eftir
að hún kom hafa þar verið bænahús. Hlutaðeigendur hafa ekki
viljað missa alt. Bænahúsið i Kirkjubæ stóð fram á 19. öld. Þar,
sem það stóð, er nú hjallur, og er hann kallaður »bænahúsið«.
Kringum hann hefir til skamms tíma vottað fyrir kirkjugarði og
leiðum. En nú hefir það alt verið sléttað út. Svo sagði mér gam-
all maður í Vestmannaeyjum, Jón bóndi Jónsson i Gvendarhúsi hjá
Ofanleiti, að þá er síra Brynjólfur Jónsson var prestur í Eyjunum,
hefði enn verið 3 legsteinar í Kirkjubæjarkirkjugarði. Hefði þeir
verið svo máðir, að að eins hefði lítið eitt vottað fyrir letri á þeim.
Hefði síra Brynjólfur reynt með alúð að lesa á þá, en reynst það
ómögulegt. Hefði hann því álitið, að ekki væri neitt á móti því,
að slétta þá alveg, og gera svo úr þeim legsteina yfir aðra menn.
Og það hefði verið gert. Það væri nú legsteinarnir yfir sr. Jóni
Austmann, Magnúsi syni hans og Jóni Salómonsen, tengdasyni hans.
Eftir bænahúsið á Ofanleyti sjást nú engar menjar, en vottar
fyrir kirkjugarði, sem kringum það hafði verið. Það hefir þó stað-
íð fi’am undir miðju 19. aldar. Svo sagði mér Þórunn Sigurðardótt-
ir, mjög merk kona (f á Loftsstöðum 1899), að þá er hún bjó í
Fljótsdal í Fljótshlíð, kringum 1850, fór hún eitt sinn með manni
sínum kaupstaðarferð út í Vestmannaeyjar, og heimsótti kunningja-
fólk sitt þar. Kom hún þá að Ofanleiti og sýndi síra Jón Austmann
henni »kirkjuna«, — það hefir víst verið bænahúsið. — Sá hún þar
talsvert af útskurði, er henni þótti mjög fagur. En sr. Jón sagði
henni, að nú ætti að fara að rífa kirkjuna, og nú yrði allur þessi
fagri útskurður seldur á uppboði til eldiviðar. Sér væri ekki unt
að afstýra því, og mætti hann þó ekki til þess hugsa. — Þá er
Þórunn sál. sagði mér þetta, var eg með öllu ókunnugur Vest-
mannaeyjum og hugkvæmdist ekki, að spyrja hana frokar um þetta,
t. a. m. hvort »kirkjan« sem hún nefndi svo, hefði nú í raun og
veru verið annað en bænahús. Mér sýnist það nfl ljóst, að þar eð
byrjað var að byggja steinkirkjuna 1783, þá hafi hún verið fullgjör
löngu fyrir þenna tíma, og þá líka búið að rífa gömlu kirkjuna frá
1722, og því hafi það ekki getað verið Landakirkja, sem sr. Jón
sýndi Þórunni. Ef til vill hefir bænahúsið á Ofanleiti alla tíð verið
kallað kirlcja.